Morgunblaðið - 25.03.1986, Page 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
69. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkjamenn svara iíbýskri eldflaugaárás;
Skutu á líbýska eftir-
litsbáta og eldflaugapall
Washington, 24. marz. AP.
BANDARÍSKAR herþotur skutu í dag eldflaugum
á tvo líbýska eftirlitsbáta á Sidraflóa fyrir norðan
Líbýu og ollu á þeim miklu tjóni. Bandarískar
herþotur skutu einnig eldflaugum á eldflaugapall
í Líbýu. Skýrði Larry Speakes, talsmaður Banda-
ríkjaforseta, fráþessu í kvöld.
HANS HOLMER
lögreglustjóri í Stokkhólmi
heldur á loft samsettri mynd
af manni sem á að hafa fylgt
Palme eftir og njósnað um
hann dagana fyrir morðið.
„Annar báturinn brennur og
virðist vera að því kominn að
sökkva. Svo lítur út sem enginn
um borð hafi komizt lifandi af,“
Filippseyjar:
Fallast
uppreisn-
armenn á
vopnahlé?
Viðurkenna almennan
stuðning þjóðarinnar
við Aquino forseta
Manilla, 24. marz. AP.
Uppreisnarmenn konun-
únista á Filippseyjum létu i dag
í fyrsta sinn í Ijós vilja um að
setjast að samningaborðinu
með Corazon Aquino forseta
og semja um vopnahlé, er næði
til þjóðarinnar allrar.
í dag létu kommúnistaflokkur
Filippseyja og Þjóðlega lýðræðis-
fylkingin svonefnda, sem kommún-
istar ráða, frá sér fara yfirlýsingar
sitt í hvoru lagi og gerði kunnur
uppreisnarforingi, Antonio Zum-
mel, fréttamönnum grein fyrir
þeim. I þeim sagði m.a., að með
„réttlátum, einlægum og viturleg-
um aðgerðum væri samkomulag
mögulegt um vopnahlé, sem næði
til allrar þjóðarinnar“. Þá sagði þar
ennfremur, að „viðurkenna ber af
einlægni" almennan stuðning þjóð-
arinnar við Aquino forseta.
Rene Saguisag, talsmaður for-
setans, sagði í dag, að ganga yrði
úr skugga um vilja uppreisnar-
manna til þess að ræða um vopna-
hlé. Tók hann það fram, að það
yrði vissulega til þess’ að greiða
fyrir slíkum viðræðum, ef upp-
reisnarmenn hættu hemaðarað-
gerðum sínum á meðan.
Samkvæmt opinberum skýrslum
hafa 293 menn fallið í átökum við
uppreisnarmenn á Filippseyjum
frá því að Aquino varð forseti
landsins 25. febrúar sl.
Talsmaður hersins staðhæfði í
dag, að 1000 manns úr liði komm-
únista hefðu gefið sig fram síðasta
sólarhring og lagt niður vopn.
sagði Speakes á fundi með
fréttamönnum í kvöld. Kvað
hann þetta hafa gerzt eftir að
Líbýumenn skutu 6 eldflaugum
að flugvélum Bandaríkjamanna.
Eldflaugamar hefðu þó ekki náð
að hitta neina þeirra.
Sjónvarpið í Líbýu staðhæfði
hins vegar í kvöld, að Líbýumenn
hefðu skotið niður þrjár banda-
rískar flugvélar yfir Sidraflóa.
Þessar flugvélar hefðu rofíð loft-
helgi Lábýu og hefðu tvær þeirra
verið skotnar niður skömmu eftir
hádegi og sú þriðja í kvöld. Þá
var því einnig haldið fram, að
Bandaríkjamenn hefðu gert loft-
árás með flugskeytum á úthverfí
borgarinnar Sirte.
Speakes vísaði á bug þessum
staðhæfíngum Líbýumanna og
sagði, að engin bandarisk flugvél
hefði orðið fyrir skoti. Banda-
ríkjamenn litu hins vegar ekki
svo á, að þessu máli væri lokið.
„Við lítum nú á öll skip og flug-
vélar Líbýumanna, sem nálgast
okkur, sem óvinveittar.“ Að-
spurður sagði Speakes hins veg-
ar: „Ég get ekki lýst þessu sem
stríði milli Bandaríkjanna og
Líbýu.“
Líbýumenn skutu eldflaugum
á flugvélar Bandaríkjamanna er
þær flugu inn yfír svonefnda
„dauðalínu“ Khadafys Líbýuleið-
toga á Sidraflóa. Halda Banda-
ríkjamenn því fram, að þar sé
alþjóðleg flugleið og siglingaleið,
en Líbýumenn fullyrða, að þetta
svæði tilheyri land- og lofthelgi
sinni.
Svíþjóð:
Leit haf in að manni
sem njósnaði um Palme
Stokkhólmi, 24. marz. AP.
LÖGREGLAN í Stokkhólmi birti í dag samsetta ljósmynd af nýjum
manni í tengslum við morðið á Olof Palme forsætisráðherra. Stendur
nú yfir áköf leit að þessum manni, en samkvæmt lýsingu lögreglunn-
ar er hann 35 ára gamall, um 190 cm hár, kraftalega vaxinn og
með skolleitt hár.
Hans Holmer, lögreglustjóri í
Stokkhólmi, sagði í dag, að þessi
samsetta mynd væri gerð eftir lýs-
ingu margra vitna, sem segjast
hafa séð mann fylgja Palme eftir
og njósna um hann dagana fyrir
morðið. „Við erum nú að leita að
manni, sem er ekki morðinginn, en
vitni segja, að hafí elt Palme að
minnsta kosti í tvö skipti," sagði
Holmer.
„Við teljum, að margir menn
hafí átt aðild að morðinu,“ sagði
Holmer ennfremur. Hann vildi þó
ekki gefa frekari upplýsingar um
manninn, en sagði, að myndin af
honum væri samsett eftir nýjum
upplýsingum, sem lögreglunni
hefðu borizt síðustu daga. Myndin
sýnir andlit af manni með fremur
flatt nef, sterklega kjálka, þykkar
varir og miklar augnabrúnir.
Holmer kvaðst enn vera bjart-
sýnn á, að takast myndi að fínna
morðingja Palme. Sagði hann, að
leitinni að honum yrði haldið áfram,
unz „hún ber árangur“. Holmer
hefur samt átt fullt í fangi með að
verjast vaxandi gagnrýni á starfs-
aðferðir lögreglunnar. Hélt hann
því fram í dag, að það væru „vönduð
vinnubrögð en ekki hraði", sem
skiptu máli, ekki sízt í jafn mikil-
vægri og umfangsmikilli rannsókn
og hérværi um að ræða.
Olíuverð lækkar enn vegna
óeiningar OPEC-ríkjanna
Genf, 24. marz. AP.
OLÍUVERÐ snarlækkaði í New
York í dag, eftir að 9 daga
löngum fundi OPEC-ríkjanna í
Genf lauk, án þess að nokkuð
samkomulag næðist um sam-
drátt í olíuframleiðslu þeirra.
Þannig fór verð á olíutunnunni
niður í 11,20 dollara í morgun og
hafði þvi lækkað um tæpa 3 doll-
ara frá því á föstudag á Texas-
olíu (West Texas Intermediate).
Síðdegis hækkaði verðið aðeins á
ný á olíumarkaðinum 'í New York
og fór þá rétt upp fyrir 12 dollara
tunnan.
Mikil óeining einkenndi OPEC-
fundinn frá upphafi og yfirlýsing-
in, sem gefin var út í lok hans,
var vart meira en ein setning. Þar
var aðeins sagt, að olíumálaráð-
herrar aðildarríkjanna myndu
koma saman til nýs fundar 15.
apríl nk. í von um samkomulag
um verulegan samdrátt í olíu-
framleiðslunni. Engin önnur yfír-
lýsing var gefín út.
Fundur OPEC-ríkjanna nú stóð
í 9 daga og var því einhver sá
lengsti í sögu samtakanna. Mikill
glundroði ríkti í lok fundarins og
enginn fundur var haldinn með
fréttamönnum. Hingað til hefur
það alltaf verið venja að gefa út
yfirlýsingu um niðurstöður fund-
arins og gera fréttamönnum grein
fyrir þeim árangri, sem þar hefur
náðst.
Sjálfur forseti OPEC-samtak-
anna, Arturo Hemandez Grisanti,
olíumálaráðherra Venezuela,
forðaði sér framhjá fréttamönn-
um, sem biðu í ofvæni og flýtti
sér burt af fundarstaðnum án
þess að hirða um að svara spum-
ingum þeirra.
Haft var eftir bandariskum ol-
íusérfræðingum í dag, að olíuverð
í heiminum myndi á næstunni
sennilega verða á bilinu 10-12
dollarartunnan.