Morgunblaðið - 25.03.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGlfR 25. MARZ 1986
63
Pj ölbrautaskóli
Suðurlands:
Tilboð
opnuðí
þijú út-
boðsverk
Tilboðin veru-
lega yf ir kostn-
aðaráætlun
Selfossi.
ÞANN 18. mars sl. voru
opnuð tilboð í þijú útboðs-
verk í nýbyggingu Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. í
fyrsta lagi lokun hússins,
frágang að utan og að hluta
til innanhúss, í öðru lagi
bolta- og járnafestingar
fyrir límtrésvirki og í þriðja
lagi í hreinlætis- og hita-
lagnir.
Tilboðin voru tekin fyrir í bygg-
inganefnd skólans 20. mars og
rædd í skólanefnd sama dag.
Kostnaðaráætlun við lokun og
frágang hússins hljóðaði upp á
14.709.070 krónur. í það verk
bárust þijú tilboð, frá Sigfusi
Kristinssyni Selfossi 21.025.910
kr. Smiður hf., Selfossi, bauð
22.109.021 kr. og Sandfell, Sel-
fossi, 28.875.300 kr.
Kostnaðaráætlun fyrir bolta-
og jámafestingar fyrir límtrés-
burðarviki hljóðaði upp á
1.139.590 krónur. Fjögur tilboð
bárustfráKA, Selfossi, 1.140.470
krónur, Stálafli, Gnúpveijahreppi,
kr. 1.490.220, Blikksmiðjunni
Gretti 1.851.372 og frá Má Jóns-
syni, Reylqavík, kr. 1.795.255.
Fimm tilboð bárust í hreinlætis-
og hitalagnir, frá Vökvalögnum
sf., Selfossi, 1.708.054, Bygg-
ingafélaginu Frama hf., Reykja-
vík, kr. 1.868.973, Sigurði Rúnari
Jónssyni, Rvík, kr. 2.137.565, KÁ,
Selfossi, 2.429.756 og frá Rörtaki,
Hveragerði, kr. 2.544.500.
Gengið verður frá tilboðunum
eftir að umsögn hönnuða á til-
boðssaðilum og tilboðunum liggur
fyrir, væntanlega eftir helgi. Inn-
an skamms verður boðið út gler
í allt húsið og þar inni er 600
m2 glerþak á suðurhlið hússins.
Skólanefnd hefur heimild fyrir
50 milljóna króna lántöku hjá
Iðnaðarbankanum og verður
gengið frá því láni jafnóðum og
tryggingarbréf berast frá þeim
heimaaðilum sem standa að skól-
anum. Amessýsla hefur þegar
gengið frá sínu tryggingarbréfí
og aðrir aðilar gera það væntan-
lega innan fárra daga.
Sig. Jóns.
I TILEFNI AF SIÐUSTU PASKUNUM
OKKAR í ÁRMÚLA la
GERUMVIÐÞÉR EINSTAKT
afslátt af öll-
• •
um vorum í
matvörudeild
(afsláttur er frá verðmerkingum og
veittur á kassa)
••
LANDSFRÆGA VORUMARKAÐSVERÐIÐ
17
EsA§> ffi KAiMAWAfr
'© AIKMKI m MUMARIMH
Tilboðið gildir alla daga til páska
en EINUNGIS í Vörumarkaðinum í Ármúla
Vörumarkaðurínn hf
Ármúla la s: 686111
ATH: Eftir páska lokar matvörudeildin en
allar aðrar deildir verða opnar i
Armúla fram á sumar