Morgunblaðið - 25.03.1986, Qupperneq 40
I B-1
Sleðaferð á
Stapavatni
■
K
■'3SIU4'
Sex manna far með bólstruðum sætum.
Morgunblaðið/PD
Á einum góðviðrisdeginum í
febrúarlokin var undirritaður
á ferð i Lýtingsstaðahreppi og
kom þá auga á allsérkennilegt
fyrirbrigði á Stapavatni. Hest-
ur spenntur fyrir sleða fullan
af fólki á steytingsferð á ísnum.
— Á vettvang á augabragði og
liðið tekið tali! Þarna voru þeir
feðgar á Varmalæk, Sveinn
Jóhannsson og Björn, ásamt
Friðriki garðyrkjubóna í Laug-
arhvammi, Sigmundi á Vind-
heimum og fleira fólki. Og
þetta var ekki neinn venjulegur
magasleði, — nei, ekki aldeilis.
Sex manna far með bólstruðum
sætum, rétt eins og best gefur
að líta á kvikmyndum hjá hefð-
arfólki í Norðurálfu fyrir 100
árum eða svo.
„Við erum að prufukeyra, búnir
að fara einu sinni áður og allt
gekk vel,“ segir Friðrik, en hann
er hönnuður og framleiðandi sleð-
ans. Hann er einnig eigandi ak-
tygjanna, sem að vísu eru 40 ára
gömul, en einnig smíðuð af honum
í upphafí. Hesturinn, sem spennt-
ur var fyrir sleðann, er í eigu
þeirra Varmalækjarfeðga. „Þetta
er 6 vetra graðhestur og ekki
fulltaminn enn,“ segir Bjöm.
„Einstök þægðarskepna og hagar
sér eins og hann hafí aldrei gert
annað um sína daga en draga
sleða.“ Og það staðfestist hér, að
þægur var hesturinn og ekki nóg
með það, hann fór á brokki og
tölti alveg samkvæmt óskum ek-
ilsins, sem var Bjöm. Fyrir þá sem
ekki vita, þá er Bjössi sæmilega
hestfær. Búinn að vera í þessum
„bransa" í nokkuð mörg ár. Reið
Hrímni sínum til gullverðlauna í
góðhestakeppni á síðasta lands-
móti hestamanna.
— Er þetta aðalkynbótahestur-
inn á Varmalæk um þessar mund-
ir?“ hrökk út úr undirrituðum.
„Nei,“ svaraði Bjöm um hæl
og glotti við tönn. Hefur sjálfsagt
haldið að nú væri verið að narrast
með hann.
Eftir að hafa smellt mynd var
stigið um borð. Það skal staðfest
hér, að gaman var að líða eftir
ísnum á sleðanum. (Það rifjast
hér upp fyrir undirrituðum, að
fyrir svo sem 27 árum var hann
við að flytja hey úr engjum að
vetrarlagi með hesti og sleða. Það
er nú ekki lengra síðan en svo.)
Sem fyrr segir er Friðrik Ing-
ólfsson garðyrkjubóndi að at-
vinnu, en dverghagur smiður ef
hann bregður því fyrir sig, hvort
sem unnið er með tré eða jám eða
jafnvel góðmálma.
„Þessi sleði er nú eiginlega mín
hugarsmíð," segir Friðrik. „Ég fór
til Akureyrar og skoðaði sleða,
gamlan, sem er á minjasafninu
þar. Mér var sagt að sleða þann
hafi Guðmundur heitinn Jónasson
fjallabflstjóri átt og notað eitthvað
fyrir nokkuð löngu. Sá sleði var
nokkm styttri en þessi og í hæsta
lagi pláss þar fyrir 4 fullorðna.
Þessi hér er eins og sést með þrem
bekkjum, vel rúmum fyrir 6
manns. — Annars kom hug-
myndin að þessu frá Sveini á
Varmalæk," segir Friðrik og bros-
ir. — Boltinn var þar með gefinn
til Sveins og hann tekur við í frá-
sögninni. „Eg er búinn að vera
ofurlítið í því í mörg ár að greiða
götu ferðamanna,. bæði íslenskra
og erlendra, sem hafa viljað ferð-
ast svolítið á hestum. Þessi starf-
semi hefur ekki staðið yfír nema
bláungann úr sumrinu. Ég fór svo
að velta vöngum um hvort hægt
væri að vekja áhuga ferðamanns-
ins á íslenska hestinum að vetrar-
lagi. Það má segja að þrennt hafi
verið í huga mér þegar ég nefndi
sleðasmíði fyrst við Friðrik ná-
granna minn. I fyrsta lagi er ekkrt
á móti því að varðveita með þessu
uppátæki ákveðnar þjóðminjar.
Sleðaferðir í Krókinn voru hinn
algengasti ferðamáti hér í Skaga-
fírði á vetrum áður fyrr. I öðru
lagi þóttist ég viss um að við
mundum geta haft af þessu ein-
hverja ánægju. Og í þriðja lagi
skal því ekki neitað að mér datt
í hug í alvöru að þetta gæti
hugsanlega orðið atvinnutæki, ef
svo má að orði komast." Þegar
um var spurt hvemig það mætti
verða aftók Sveinn með öllu að
ræða það frekar nema yfír kaffí-
bolla heima á Varmalæk, og
þangað var haldið.
Sveinn heldur áfram: „Eins og
ég sagði, þá er ég búinn að vera
í ofurlítilli ferðamannaþjónustu í
nokkur ár, en nú sl. vor og sumar
var gerð tilraun til að gera þessa
þjónustu að alvöru atvinnugrein
hér. Þá var stofnað fyrirtækið
Hestasport. Aðalmennimir í því
eru Bjöm sonur minn og Magnús
Sigmundsson á Vindheimum."
— Segið nánar frá þessu fyrir-
tæki, hvað er það eiginlega?
Sigmundur verður hér fyrir
svömm (faðir Magnúsar) og segir
að fyrirtæki þetta sé eiginlega
bæði hestaleiga og einskonar
ferðaskrifstofa. Skipulagðar væm
hestaferðir bæði stuttar, allt frá
einum klukkutíma; og upp í lengri
ferðir yfir hálendi Islands. Aðstoð-
armenn og fararstjórar jafnan
með í för og reynt að haga málum
þannig að sem flestir geti fundið
eitthvað við sitt hæfí. Reynt hefur
verið að reka áróður fyrir því að
hér er tækifæri fyrir alla fjölskyld-
una að ferðast saman og njóta
útivistar.
Sveinn tekur við: „Til að hafa
þessa atvinnugrein að aðalatvinnu
þarf ferðamannatíminn að lengj-
ast frá því sem verið hefur. Þetta
er öllum ljóst sem nálægt ferða-
þjónustu hafa komið. Það er mikið
talað um það að brátt muni er-
lendir ferðamenn fara að streyma
hingað til lands að vetri til saman-
ber það sem kom fram í þættinum
hjá Ómari um daginn. Vissulega
þarf að auglýsa rétt og það kostar
bæði fé og fyrirhöfn en ég hef
þá trú að það skili sér fljótlega.
Spumingin hjá okkur er sú hvort
það sé ekki líklegt að fólk vilji
allt að einu komast í kynni við
íslenska hestinn að vetrarlagi eins
og að sumri til. Það kemur margt
til greina, t.d. helgarpakkar, sem
lítillega hefur verið prófað og lík-
að vel.“
Að þessum orðum töluðum
kemur upp í hugann að líklega
eigum við eftir að heyra í auglýs-
ingatextum framtíðarinnar „hest-
ur og flug — flughestur" og það
hljómar bara vel.
Aðspurðir segja þeir feðgar á
Vamalæk að á síðasta sumri hafí
verið alveg þokkaleg eftirspurn
hjá Hestasporti miðað við það sem
búist var við svona í byrjun og
eins hitt að þeir sögðust hafa veirð
nokkuð seinir að auglýsa í fyrra.
Eftirspumin er mikil núna fyrir
næsta sumar bæði frá innlendum
og erlendum aðilum og þegar
uppselt í nokkrar ferðir sumars-
ins. Eins og fram hefur komið er
áhugi fyrir að lengja þennan
ferðamannatíma og í því sam-
bandi hefur verið auglýst sérstök
réttarferð næsta haust sem er
hugsuð þannig: 3—4 dagar. Farið
á móti gangnamönnum og fengið
að fylgjast með rekstri til réttar
og enda svo með réttardegi. Ekki
er vafí á því að þetta mundi falla
mörgum vel í geð.
Sveinn vill taka það sérstaklega
fram að þessi þjónusta sem hér
er til umræðu er ekkert síður fyrir
íslenska ferðamenn en erlenda.
„Margur íslendingurinn hefur
bæði gagn og gaman af því að
kynnast landi sínu betur á öllum
árstímum," sagði Sveinn.
Ekki er vafí á því að ferðaþjón-
usta ýmiskonar á í náinni framtíð
eftir að veita atvinnu í vaxandi
mæli hér á landi. í dreifbýlinu
getur þessi atvinnugrein orðið
mikill styrkur við byggðina nú á
tímum samdráttar í hefðbundnum
landbúnaði. Möguleikamir eru
fyrir hendi, en það þarf hug-
myndaauðgi, dugnað og mikla
vinnu til að nýta þá.
Hér hafa verið teknir tali menn
sem eru fullir áhuga, eldmóði og
bjartsýni á áframhald blómlegs
lífs vítt og breitt í sveitum lands-
ins. Betur væri ef feiri slíkar
raddir heyrðust nú mitt i öllum
þessum bölmóði, sem vissulega
hefur verið nokkuð áberandi hjá
okkur dreifbýlingum að undan-
förnu.
P.D.
Akranes:
Setja upp grindur til
að verjast sandfoki
Akranesi
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið
unnið að því að setja upp grindur
til varnar sandfoki sem herjað
hefur á íbúa gatna í næsta ná-
grenni við Langasand á Akra-
nesi. Er hér um að ræða tilraun
til að hefta fokið á viðkvæmustu
svæðunum.
Enn hefur ekki reynt á grindurn-
ar að sögn Daníels Arnasonar
bæjartæknifræðings á Akranesi en
menn bíða spenntir eftir að sjá
hvemig til tekst. Daníel sagði að
búið væri að útfæra hugmynd að
gijótvamargarði sem settur yrði
upp niður á sandinum ef til kæmi
en það væri geysimikið mannvirki
og engin ákvörðun hefur verið tekin
um slíkar framkvæmdir. Á meðan
verðum við að sjá hvemig til tekst
með grindumar og jafnvel bæta
fleirum við, t.d. við íþróttasvæðið
en töluverður sandur hefur fokið á
það svæði. Á sl. ári varð hreinlega
að ryksuga sandinn af grasvellinum
til að flýta fyrir gróðri hans. J.G.
Grindurnar sem settar hafa verið
upp til að reyna að minnka sand-
fokið í bænum.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Þannig var víða umhorfs í grennd við Langasand i nóvembermánuði á síðasta ári.