Morgunblaðið - 25.03.1986, Síða 42
i 42
Vínar- og Grikk-
landsferðir meðal
tilboða hjá Faranda
FERÐAÁÆTLUN Ferðaskrif-
stofunnar Faranda er komin út.
Vínarferð er á sínum stað en að
sögn forráðamanna ferðaskrif-
stofunnar hefur verið mikil að-
sókn í Vínarferðina undanfarin
ár. Gestir geta dvalið í Vín og
sótt tónlistar- og listaathafnir,
en einnig gefst kostur á skoðun-
arferðum og boðið er upp á að
fara til Ungverjalands í tvo daga.
Vínarborgarferðin er frá 21.
maí til 5. júní.
Meðal annarra ferða er svo 3ja
• vikna Grikklandsför í samvinnu við
Hellas. félag Grikklandsvina, og er
hún undir leiðsögn Sigurðar A.
Magnússonar. í þessari ferð verður
farið vítt og breitt um Grikkland,
út í Krít og fleiri eyjar.
í ísraelsferð verður farið 3. nóv-
ember. í ferðinni er farið á helztu
sögustaði Biblíunnar og tveir dagar
eru í boði í baðstrandarbænum
Eilat. Einnig verður farið yfir til
Egyptlands í sömu ferð.
Farandi hefur ákveðið þijár
þriggja vikna ferðir Gardavatni á
Italíu í sumar, þann 19. júnf, 10.
júní og 3. september. Og þá er
ætlunin að sækja heim frændur
okkur í Færeyjum á Ólafsvöku og
í haust verður sérstök ferð á októ-
berveisluna í Munchen. Að auki eru
fyrirhugaðar ferðir til Austurlanda
§ær og Farandi útvegar sólarlanda-
ferðir með breskum og dönskum
ferðaskrifstofum og einnig sumar-
hús áí Suður-Englandi.
t
t
\
V
I
I
!
f
í
)
▲
ÞYSKUR KOSTAGRIPUR
meö framhjóladrif
VOLKSWAGEN
JETTA
Búnaöur eítir vali:
# Dieselvél - 2 geröir.
# Bensínvél - 4 gerðir.
# Sjálískipting meö íríhjólun.
# Handskipting - 4 gíra/5 gíra
m.sparnaöargír.
V.W. JETTA er allt í senn:
# Hefðbundinn heimilisbíll.
# Forlátagóöur íerðabíll.
# Snaggarlegur sportbíll.
# Og íyrsta ílokks
fjáríesting.
Afistýii, • o.ii. stóricekfcað
írákr 416.000
& ~\
Eyjólfur Guðmundsson skrifar frá Noregi:
Norðmenn eru
miklir ferðalang-
ar og sæfarendur
Norðmenn eru miklir ferðalangar
og ekki bara það að þeir ferðist um
allan heim, heldur láta þeir til sín
taka erlendis, bæði varðandi hjálp-
arstarfsemi í vanþróuðu löndunum,
friðargæslustörf í Líbanon, sjúkra-
liðastörf o.fl. í Afghanistan og með
vísindaleiðöngrum á norðurslóðum
og til Suðurheimskautslandsins, svo
nokkuð sé nefnt.
Hæsta fjall jarðar, Mont Everest,
hafa fjallgöngugarpar þeirra jrfír-
unnið, en undir yfirborði jarðar
hafa froskmenn komist eftir neðan-
jarðarám, langt undir jöklinum
Svartisen í N-Noregi.
Hjálparstarfsemi Norðmanna í
vanþróuðu löndunum er margþætt.
í löndum Afríku, þar sem langvar-
andi þurrkar hafa eyðilagt allan
jarðargróða og búfénaður hefur
fallið, hafa Norðmenn brugðist vel
við, og sent matvæli til þessara
landa, og þá sérstaklega til Eþíópíu.
Læknar og sjúkraliðar hafa einnig
ferðast um landið.
Norðmenn við gæslustörf í Líb-
anon.
í Súdan hefur „Kirkens Nöd-
hjelp“ haft fólk síðustu árin, en nú,
vegna borgarastyrjaldar í landinu,
hefur það verið á stöðugum flutn-
ingi um landið. í Kenya hafa norskir
verkfræðingar haft yfírstjóm með
miklum vegaframkvæmdum. Bæði
þar og í hinum löndunum, sem
HOLLANDSPISTILL Eggert H. Kjartansson
Islenskir garð-
yrkjumenn á
ferð í Hollandi
Samband garðyrkjubænda efndi
til hópferðar í samvinnu við Amar-
flug á sýningu fyrir garðyrkju-
bændur sem haldin var í Hollandi
dagana 4.-8. febrúar síðastliðinn.
Sýningin náði til nær allra þeirra
greina sem garðyrkjubændur
stunda og var haldin í grænmetis-
og ávaxtamarkaðinum í Blijswijk.
Fyrri hluta dags voru vel búin
og afkastamikil garðyrkjufyrirtæki
heimsótt en síðari hlutann gengið
um sýninguna. Á þennan hátt gafst
tækifæri til þess að skoða nokkur
af þeim tækjum sem voru á sýning-
unni í vinnslu. Nokkur fyrirtækj-
anna sem voru með bás á sýning-
unni höfðu tekið frá tíma til þess
að ræða við íslendingana um fram-
leiðslu sína og garðyrkju á íslandi.
Það helsta sem rætt var um var
notkun CO mæla, stýritækja í groð-
urhús, frætegundir og raflýsingu.
Einnig var litið við hjá framleiðanda
plastbakkanna sem verið er að gera
í vikurtilraunir hér í hollenskri til-
raunastöð.
Ræktun steinullar sem hefur mtt
sér til rúms á síðustu árum setti
mark sitt á þessa sýningu. Nú er
svo komið að um 40% allrar græn-
metisræktunar í gíoðurverum í
Hollandi fer fram á steinull en það
er um 1600 ha. Mest er ræktað af
tómötum og gúrkum. Ræktun á
steinull eykur tómatuppskeruna að