Morgunblaðið - 25.03.1986, Side 51
MOftGUNBLAPIP, ÞJUPJKPAGUR 25. MA^Z1?86
í
Minning:
Guðmundur Jónas-
son málarameistari
Fæddur 18. janúar 1913
Dáinn 16. mars 1986
Kalliðerkomið
kominerstundin,
vinarskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimirkveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margserhéraðþakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margseraðsakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V.Briem.)
Það átti ekki að koma mér á
óvart er mér var tilkynnt um andlát
Guðmundar því oft var hann það
veikur að ég bjóst við þvf versta,
en alltaf reis hann upp, þvílík lífs-
löngun. Guðmundur var giftur eftir-
lifandi konu sinni, Guðbjörgu Þórð-
ardóttur og áttu þau 4 böm. Eina
dóttur misstu þau hjón unga að
aldri.
Við hjónin urðum þess aðnjótandi
að kynnast Guðmundi og fyölskyldu
hans er við fluttum í kjallara húss-
ins áð Langholtsvegi 180, Rvík.,
fyrir um 9 árum og bjuggum við
þar í 8 ár. Mikill var söknuðurinn
bæði 'hjá okkur og bömum okkar
er við fluttum þaðan. Fyrstu jólin
eftir að við fluttum þaðan eru mér
ofarlega í huga, okkur fannst öllum
eitthvað vanta upp á að hátíðin
væri fullkomin. Það var ekki fyrr
en við fórum inn á Langholtsveg
að jólin gengu almennilega í garð.
Guðmundur byggði þetta hús frá
grunni og þekkti hann því hvem
krók og kima í húsinu og ef eitthvað
kom uppá þá var Gummi, eins og
við kölluðum hann, alltaf kominn
með það sama að hjálpa til, ekki
stóð á því. Upp á þak fór hann þó
svo hann varla næði andanum
vegna sjúkdóms síns, en þakrenn-
umar varð að laga. Það var ekki
svo sjaldan sem ég stóð niðri og
hlustaði á hvemig hann ætlaði að
hafa það í ár, alltaf eitthvað öðru-
vísi en í fyrra. Þá var gaman.
Guðmundur var bamgóður mað-
ur og kom það best í ljós hve hlýr
og góður hann var bömunum mín-
um og alltaf kallaði sonur minn
hann afa. Síðustu árin sem hann
vann starfaði hann hjá Slippfélagi
Reykjavíkur, en heilsu sinnar vegna
lét hann af störfum fyrir nokkrum
árum. Aðalánægja hans var að ditta
að bílnum sínum og keyra um
bæinn. Á meðan hann gat keyrt,
kvartaði hann ekki.
Að lokum vil ég og fjölskylda
mín þakka Guðmundi fyrir allt það
góða er hann gaf okkur og emm
við þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast honum og fyölskyldu hans.
Elsku Bogga mín, Hanna og fjöl-
skylda. Innilegustu samúð sendum
við ykkur. Guð blessi ykkur.
Anna Kristinsdóttir
og fjölsk.
Minning:
Jón Dan Þóris-
son Seyðisfirði
Fæddur 15. október 1937
Dáinn 18. mars 1986
Sú harmafregn barst hér um
bæinn sl. þriðjudagskvöld, að Jón
Dan hefði fallið útbyrðis af báti sín-
um hér í bátahöfninni og drukknað.
Eins og alltaf þegar váleg tíðindi
spyijast setur menn hljóða.
Þessi sorglegi atburður er okkur
enn ein sönnun þess, hve litlu við
ráðum um, hversu lengi við dvelj-
umst hér meðal ástvina og sam-
ferðamanna.
Við mennimir vitum sem betur
fer harla lítið fyrirfram, hver örlög
bíða okkar á langri eða skammri
lífsgöngu, en dauðinn er í raun og
veru sá eini þáttur í tilveru okkar,
sem er öruggur og viss og öll skynj-
um við hann, þegar hann leggur
hönd sína á einhvem, sem við
unnum.
Foreldrar Jóns vom hjónin Ragn-
heiður Jónsdóttir og Þórir Daníels-
son skipstjóri. Hann fetaði í fótspor
föður síns og sjórinn var lengst af
einnig hans starfsvettvangur.
Löngu fyrir fermingaraldur sótti
hann sjó með föður sínum, sem var
einn örfárra seyðfirzkra sjósóknara
sem þraukuðu, þrátt fyrir hemaðar-
Blömastofa
Fnðfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavtk. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- eínnlg um helgar.
Skreytingar við öll tllefni.
Gjafavörur.
umsvifin á ámm seinni heimsstyij-
aldarinnar. Hann hlaut þannig í
byijun trausta leiðsögn í þeirri
margháttuðu þekkingaröflun, sem
er nauðsynleg hveijum hlutgengum
sjómanni, ekki sízt þeim, sem heyja
glímuna við Ægi á minnstu skipun-
um.
Eftir lát föður síns hélt hann sjó-
sókn áfram á eigin bátum og þrot-
laus elja ásamt yfirburða kunnug-
leika á öllum aðstæðum gerði hlut
hans oftast drýgri en flestra ann-
arra.
Undirrituðum er það minnisstætt
frá því að hann fyrst sá Jón, að
athygli vakti, hve rólegt og jrfirlæt-
islaust fas hans og viðmót var og
vakti það traust á manninum. Hann
virtist halda sinni fumlausu ró hvar
sem maður hitti hann, en slíkir
eðliskostir em hveijum sjómanni
dýrmætir. Hann var dulur og óáleit-
inn og virtist fáskiptinn, en við
nánari kynni kom í ljós, að hann
var athugull og vel greindur og
bjó yfir góðlátlegri og græskulausri
kímni.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Hertha María Tómasdóttir frá
Færeyjum.
Eiga þau þrjár dætur, myndar-
og dugnaðarstúlkur og dvelur sú
yngsta ennþá í foreldrahúsum.
Athygli og aðdáun vakti, hve
samhent þau hjón vom í störfum
við útgerð bátsins síns og dugnaður
eiginkonunnar við beitningu línunn-
ar stuðlaði að harðari sjósókn og
meiri afla.
Félagar í smábátafélaginu kveðja
látinn vin og samstarfsmann og
votta fjölskyldu hans og systmm
dýpstu samúð.
Jóhann Jóhannsson
t
Móöir mín,
SIGRÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR,
hjúkrunarkona,
lést í Reykjavík 23. mars.
Vigdfs Flnnbogadóttir.
t
Úför mannsins míns,
JÓNS LÁRUSSONAR,
Framnesvegi 46,
sem lést í Borgarspítalanum 20. mars, fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 26. mars kl. 15.00.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Pála K. Einarsdóttir.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, og tengdafaðir,
HÖRÐURINGVARSSON,
Hjaröarholti 8,
Selfossi,
varð bráðkvaddur 20. mars sl.
Útför hans veröur gerð frá Selfosskirkju laugardaginn 29. mars
kl. 15.00.
Ólöf Karlsdóttir,
Sigþrúöur Haröardóttir,
Valgeir Harðarson,
Hrund Harðardóttir,
Sigrföur Runólfsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR EINARSSON,
skrifstofumaöur,
Espigerði 12,
verður jarðsunginn miðvikudaginn 26. marz kl. 13.30 frá Bústaða-
kirkju. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Ása Friðriksdóttir,
Þórhildur Ólafsdóttir Fúegi, Davíð Fúegi,
Einar Ólafsson, Kristjana Guðmundsdóttir,
Ingileif Ólafsdóttir, Ágúst Ingi Jónsson,
Friðrik Björnsson, Herdfs Gunngeirsdóttir,
og barnabörn.
t
Eiginkona mín,
ANNA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Kárhóli,
andaðist í Landspítalanum laugardaginn 22. mars.
Minningarathöfn fer fram frá Langholtskirkju miövikudaginn 26.
mars kl. 15.00.
Jarðsett verður frá Einarsstaöarkirkju laugardaginn 29. mars kl.
14.00.
Ingi Tryggvason.
t
Útför eiginmanns míns,
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR,
Vitastfg 17,
Reykjavfk,
ferfram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 26. mars kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á liknarstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragna S. Jörgensdóttir.
t
Móðirokkar,
ELÍSABET SIGURÐARDÓTTIR
frá Bóndastöðum,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 26. mars kl.
10.30.
Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna,
Sœdfs Karlsdóttir,
Sigurður Karlsson.
t
Útför mannsins míns og föður okkar,
INGA B. GRÖNDAL,
Háaleltisbraut 121,
Reykjavfk,
verður gerðfrá Fossvogskapellu miðvikudaginn 26. mars kl. 16.30.
Herdís Gröndal,
Guðrún G. Gröndal,
Sveinbjörn Ö. Gröndal.
t
Faðirokkar,
DAGFINNUR B. EINARSSON,
áðurtil heimilis að Brávallagötu 24,
lést miövikudaginn 12. mars. Útförin hefurfariðfram íkyrrþey.
Fyrirhönd aöstandenda.
Birgir J. Dagfinnsson,
Hlff Anna Dagfinnsdóttir.
t
Faðirokkar,
ÞORGILS JÓNSSON,
Æsissfðu,
Rangárvallasýslu,
verður jarðsettur frá Oddakirkju laugardaginn 29. mars kl. 14.00.
Börnin.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður,
NÖNNU TULINÍUS.
Tómas Steingrfmsson,
Leifur Tómasson, Erla Elfsdóttir,
Ragna T. Pedersen, Erik Pedersen.