Morgunblaðið - 25.03.1986, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ1986
Lögreglan bauð böraum í ökuferð um miðbæinn. Fararstjórar vora
Karl Ágúst Úlfsson og Eggert Þorleifsson.
Um síðustu helgi efndi ferða-
skrifstofan Úrval til ferða-
kynningar í húsi ferðaskrifstofunn-
ar við Austurvöll.
Mikill fjöldi fólks nýtti sér tæki-
færið og um tíma var fullt út úr
dyrum.
Fyrir utan skemmtu þeir Karl
Ágúst og Eggert Þorleifsson. Höfðu
þeir enn á ný gengið til liðs við
lögregluna og óku um miðborgina
í lögreglubfl með bamahópa. Vakti
uppátæki þeirra mikla kátínu meðal
yngn gestanna.
„Á tímabili þurfti fólk frá að
hverfa vegna mikillar aðsóknar,"
sagði Erling Aspelund forstjóri Úr-
vals.
„Við erum staðráðin í því að
halda aðra ferðaveislu, en þurfum
þá svo sannarlega að bæta við
okkur húsnæði. Hér komu um 1000
manns á sunnudaginn."
Hápunktur dagsins var dráttur í
ferðahappdrætti Úrvals. í vinning
var 3ja vikna ferð til sumarleyfís-
staðarins Cap D’Agde á Miðjarðar-
hafsströnd Frakklands.
Ester Albertsdóttir datt í lukku-
pottinn og fer hún til Cap D’Agde
í sumar. Ráðgert er að halda aðra
ferðaveislu í vor.
Erling Aspelund afhendir Ester Albertsdóttur ferðavinning, 3ja vikna
ferð til Cap D-Agde, sem henni hlotnaðist í ferðahappdrætti Úrvals.
Ed og Evelyn sem gifta sig í apríl næstkomandi.
Varð sex milljónum
dollurum ríkari og eini
munaðurinn sem hún
veitti sér var ný bifreið
Ekki er langt síðan sagt var
frá því hér á síðunum að kona
í Bandaríkjunum hefði unnið stórar
fúlgur í happdrætti og reyndar
stærstu fáanlegar tvisvar sinnum.
Ekki reyndist unnt að birta myndir
af þeirri heppnu og tilvonandi eigin-
manni, en nú hafa okkur borist þær
í hendur.
Fyrir þá sem ekki rámar í fréttina
þá vann hún fýrst tæplega 4 millj-
ónir dollara og svo 1,5 milljón.
Vinningurinn hefur eflaust komið
sér vel. Konan sem heitir Evelyn
Adams var í mörg ár á styrk hjá
því opinbera því hún var atvinnu-
leysingi. Það var svo fyrir skömmu
að hún fékk vinnu í einni af „7-
eleven“-búðunum og það var ein-
mitt í þeirri verslun sem hún keypti
miðana í happdrættinu.
Evelyn hefur ekki verið að sóa
peningunum. Eini munaðurinn sem
hún veitti sér var ný bifreið. Hún
vinnur ennþá í búðinni enda á til-
vonandi eiginmaður hennar hana
og á kvöldin stundar hún nám í
háskólanum, nánar tiltekið í við-
skiptafræði.
Níu
mánaða
og í góðu
jafnvægi
Samantha Holmes er ekki
ennþá farin að ganga enda
ekki nema níu mánaða gömul. En
hnátan getur auðveldlega haldið
góðu jafnvægi í hendi pabbans eða
á hökunni, og geri aðrir betur.
PATTY HEARST OG FJÖLSKYLDA
„Égnýtlífsins“
Það eru nú tólf ár síðan Patty Hearst var á
forsíðum blaða vítt um veröld sem hermdar-
verkamaður og bankaræningi með vélbyssu í hönd.
Henni hafði verið rænt af hættulegum hermdar-
verkahópi, heilaþvegin, pyntuð og varð þannig ein
af hópnum.
Patty Hearst er erfíngi að Hearst-útgáfufyrir-
tækinu þekkta og foreldrar hennar Randolph og
Catarine eyddu ótöldum milljónum í langvarandi
réttarhöld sem kunnugt er til að Patty öðlaðist
frelsi og borgararéttindi. En nú er Patty sem sagt
orðin þrítug, gift lögreglumanninum sem gætti
hennar á sínum tíma og eiga þau fimm ára dóttur.
Patty sagði í viðtali sem nýlega var tek'ö-
mitt er í venjubundnum farvegi
og ég nýt beinlínis hvers dags.“
Foreldrar hennar voru í fyrstu
andvígir ráðahagnum en hafa nú
að fullu sætt sig við orðinn hlut,
enda sambandið til fyrirmyndar
samkvæmt því sem Patty sjálf
segir.
„Bemie og ég njótum þess að
vera saman og eigum nú aðeins
eina ósk og það er að dóttir okkar
Giilian eignist systkini."
„Þetta þýðir að ég verð ekki blönk í framtiðinni og dóttir mín sem
er tíu ára, þarf aldrei að líða skort,“ segir Evelyn.
Hópferðir í lögreglubíl
á ferðahátíð Urvals