Morgunblaðið - 25.03.1986, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1986
i'iiOi isiIAM a " ;I [/O/.GðWiDW ,uIO A.iti ríG OflOM
M
Mysu í stað bjórs
Velvakandi!
Einhvem tíma lét mjólkur-
fræðingur það frá sér fara að úr
mysu mætti gera áfengan drykk,
svipaðan kampavíni. Nú vita allir
að landbúnaðurinn á í örlagarík-
um erfíðleikum og áður en langt
um líður streymir mysa út í stór-
fljót íslands, engum til gagns.
Ef þetta er satt sem mjólkur-
fræðingurinn sagði, að mysa
væri efni í veisludrykk, því þá
ekki að sleppa allri þessari bjór-
þvælu og nota mysu í staðinn.
Áfengir drykkir úr mjólk hafa
þekkst frá örófi alda hjá Mið-
Asíuþjóðum. Kannski var sá
drykkur nefndur Kúmýs.
Það er víst að Gengis Kahn
hefur drukkið þennan drykk og
hans menn sömuleiðis. Þeir stofn-
uðu víðlendasta ríki veraldar.
Mönnum þótti þessir herir leiðin-
legir og sögðu að gras sprytti
ekki undan fótum hesta þeirra.
Þetta var nú reyndar sagt um
Alta Húnakóng í Atlakviðu:
Drukku þardróttmegir
-endyljendurþögðu
— vín í Valhöllu,
vreiðisáustþeirHúnæ
kallaði þá Knéfröður
kaldri röddu,
seggurhinnsuðræni,
- sat hann á bekk háum.
Hér er talað um að Asíumenn
hafí drukkið vín, enda voru þeir
þá búnir að sigra vínræktarþjóðir.
Hinsvegar drukku þeir áfenga
mysu í herförum og mun þeirra
orðstír uppi meðan jörð stendur.
Vor vesæla eyþjóð á hjara
veraldar hefur aldrei kunnað að
brugga nema það litla sem Græn-
lendingabiskup vildi kenna um
brugg úr krækibeijum. Þess
vegna er mál til komið að vér
notum mysuna og forðumst bjór
og alla útlenda vellyst en brugg-
um kampavín úr mysu, bændum
og þjóðmenningunni til styrktar
og uppihalds, því hvað sagði ekki
skáldið. „Bóndi er bústólpi, bú
er landstólpi, því skal hann virður
vel.
S.G.
Þessir hringdu . . .
Listamaðurinn
er Björg
Haukdsóttir
Listamaðurinn sem gerði gler-
myndimar í Þórskaffí heitir Björg
Hauksdóttir, og á heima í
Nökkvavogi 19.
Jesús frá
Nasaret
— góðir þættir
Friðþjófur Björnsson hringdi
og mæltist eindregið til þess að
fólk settist niður fyrir framan
skjáinn um páskana og fylgdist
með þáttunum um ævi Jesú
Krists. Velvakandi styður þessa
tillögu heils hugar. Þó þegar hafí
verið sýndur fyrsti hlutinn ætti
það ekki að saka. Ef dagskíá sjón-
varpsins riðlast ekki vegna upp-
sagna tæknimanna verður annar
hlutinn sýndur á morgun, mið-
vikudag, sá þriðji á föstudaginn
langa og niðurlagið á páskadag.
Bréfritari mælir með þvi að
bruggað verði úr mysu í stað
þess að leyfa bjórinn.
Trúin
er einka-
mál hvers
manns
Tónlistarunnandi skrifar:
Ég hlustaði á viðtal við Herbert
Guðmundsson á rás 2 þann 6.
mars síðastliðinn. Herbert svaraði
vel öllum spumingum en þegar
Ásgeir Tómasson bað Herbert að
leyfa sér að heyra hvemig hann
kyrjaði bænir sínar fannst mér
of langt gengið. Eins og flestir
vita er Herbert búddatrúar. Þetta
er mesti dónaskapur sem ég hef
heyrt því tní hvers manns er hans
einkamál. Ég efast um að Ásgeir
fengist til að fara með Faðirvorið
í ríkisútvarpið.
Svo vil ég þakka Vigni Sveins-
syni og Þorgeiri Ástvaldssyni fyrir
næturvaktina á föstudagskvöld-
um. Þar á maður alltaf von á að
heyra eitthvað með Herberti.
KROSSVIÐUR
T.d. vatnslímdur og
vatnsheldur - úr greni,
birki eða furu.
SPÓNAPLÖTUR
T.d. spónlagðar, plast-
húðaðar eða tilbúnar
undir málningu.
Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket.
Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu
verði- SPARIÐ PENINGA!
- Smíðið og sagið sjálf!
UAND5INZ \ ^ið fáið að sníða niður allt plötuefni
BBSTA hjá okkur í stórri sög
ÚFVAL 'j vPY - ykkur að kostnaðarlausu.
BJORNINN
Við erum í Borgartúni 28
i
X
AÆTLANA-
GERÐAR-
KERFIÐ
MULTIPLAN
Multiplan er áætlanageröarkerfi (töflureiknir), sem
öll fyrirtæki geta notfært sér viö útreikninga. Við
áætlanagerö getur Multiplan sýnt ótal valkosti,
eftirlíkingar og gert tölulega úrvinnslu.
Markmið námskeiðsins er aö veita þeim, er starfa
við áætlanagerö og flókna útreikninga, innsýn í
hvernig nýta megi Multiplan-áætlanagerðarkerfið í
starfi.
Efni: Uppbygging Multiplan-(tölvureikna) • Helstu
skipanir • Uppbygging líkana • Meðferð búnaðar.
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað starfsmönnum
fyrirtækja sem nota eða ætla að nota Multiplan
(töflureikna).
Tfmi og staður:
1.-3. apríl kl.13.30—17.30
Ánanaustum 15
Leiðbeinandi:
Páll Gestsson,
starlsmadur Skrifstofuvéla hf.
AStiórnunarfélaa Islands
Ánanaustum 15 Sími: 621066