Morgunblaðið - 12.01.1988, Side 27
Frakkland
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988
Utgáfu malgagns
sósíalista hætt
París. Reuter.
ÚTGÁFU franska dagblaðsins
Le Matin de Paris var hætt um
helgina af fjárhagslegum ástæð-
um. Blaðið var helzta málgagn
franskra jafnaðarmanna og kem-
ur ákvörðunin sér illa því
skammt er til forsetakosninga.
Blaðið hefur átt við fjárhagsörð-
ugleika að stríða um langt skeið
og hefur stjómendum þess mis-
tekizt að ráða fram úr þeim. Átti
blaðið ekki lengur fyrir pappír og
var því sjálfhætt á föstudag. Blaða-
menn hafa enn ekki fengið greidd
laun fyrir desember.
Að sögn kunnugra yrði það meiri-
háttar áfall fyrir Francois Mitter-
rand, forseta, ef ekki tækist að
koma blaðinu út á ný. Forsetakosn-
ingar verða ( Frakklandi í vor og
kæmi sér illa fyrir Mitterrand og
jafnaðarmenn að missa helzta mál-
gagn sitt.
Reuter
Japanska flugvélin með tijónuna á kafi skammt frá brautarenda á
flugvellinum í Yonago í Japan. Um borð voru 52 menn og hlutu
aðeins þrír þeirra smávægileg meiðsl.
Japan:
Eigendur og utgefendur
skuldabrefa
Vegna mikillar eftirspurnar óskum viö eftir góöum
skuldabréfum í umboðssölu.
Helstu skuldabréf í sölu hjá
Verdbréfavidskiptum
Samvinnubankans
Eldri spariskírteini 8,5—9,2%
Veðdeild Samvinnubankans 9,7%
Lindhf. 11,0%
Lýsing hf. 10,8%
Glitnirhf. 11,1%
Samvinnusjóður Islands hf. 10,5%
Önnur örugg skuldabréf 9,5—12,0%
Fasteignatryggð skuldabréf 12-15,0%
ávöxtun umfram verðbólgu
ávöxtun umfram verðbólgu
ávöxtun umfram verðbólgu
ávöxtun umfram verðbólgu
ávöxtun umfram verðbólgu
ávöxtun umfram verðbólgu
ávöxtun umfram verðbólgu
ávöxtun umfram verðbólgu
Allar nánari upplýsingar í Bankastræti 7, 3. hæð.
Síminn er 20700.
VERÐBRÉFAvmsKipri fjármál eru
V/ SAMVINNUBANKANS okkdrfðg
Hlekktist á o g
fór út í
Tókýó. Reuter.
Japanskri farþegaflugvél
hlekktist á í flugtaki frá flugvell-
inum í Yonago á sunnudag og
hafnaði hún út í sjó, 20-30 metra
frá flugbrautarendanum.
Flugvélin var að leggja upp í
áætlunarferð til Osaka með 52
menn innanborðs, 48 farþega og
fjögurra manna áhöfn. Þeim var
fljótlega bjargað í land og þykir
mildi að ekki fór verr, en aðeins
þrír menn slösuðust, allir lítilllega.
sjó
Snjókoma var og er talið að það
hafí átt sinn þátt í því að flugvélin
náði aldrei fluginu. Á síðustu
stundu hættu flugmennimir við
flugtak en tókst ekki að stöðva
vélina í tæka tíð. Rann hún fram
af flugbrautarendanum og í sjó
fram.
Flugvélin var skrúfuþota af gerð-
inni YS-11 og í eigu japanska
flugfélagsins TOA, sem flýgur á
innanlandsleiðum.
Sony hefur framleiðslu
VHS-myndsegnlbanda
Tókíó, Reuter.
TALSMAÐUR Sony-fyrirtækis-
ins tilkynnti í gær að ákveðið
hefði verið að hefja framleiðslu
á myndsegulbandstækjum, sem
notuðust við VHS-kerfið svo-
nefnda. Fram að þessu hefur
fyrirtækið eingöngu notast við
Betamax-kerfið, sem margir sér-
fræðingar, einkum í Banda-
ríkjunum, telja fullkomnara en
VHS-kerfið.
Talsmaðurinn tjáði blaðamönn-
um að myndbandaleigur hefðu svo
til eingöngu myndbönd sem fram-
leidd væru fyrir VHS-kerfið á
boðstólum og því hefði fyrirtækið
ákveðið að laga sig að kröfum
markaðarins. Japanska fyrirtækið
JVC hóf að framleiða VHS-mynd-
bönd og telja sérfræðingar að 90
prósent þeirra myndbanda sem til
eru notist við það kerfi.
Salan á VHS-myndböndunum
hefst í aprílmánuði 5 Evrópu en
Hitachi-fyrirtækið mun annast
framleiðslu og sölu á þeim mark-
aði. Síðar á árinu verða VHS-tækin
boðin föl í Japan en Sony áætlar
að hefja sölu í Bandaríkjunum ein-
hvern tíma á næsta ári.
Talsmaðurinn lagði áherslu á að
ekki yrði hætt við framleiðslu á
Betamax-tækjum sem hann sagði
allsráðandi á tilteknum mörkuðum,
einkum í þróunarríkjum. Hins vegar
hefðu bæði neytendur og sölufyrir-
tæki víða um heim látið í ljós þá
ósk á undanfömum árum að fyrir-
tækið hefði framleiðslu á VHS-
tækjum.
Sérfræðingar sögðu að ákvörðun
fyrirtækisins mætti að hluta til
rekja til nýrra VHS-tækja, svokall-
aðra „Super-VHS“-tækja, sem
njóta mikilla vinsælda um þessar
myndir sökum óvenjulegra mynd-
gæða. Voru menn almennt þeirrar
skoðunar að Sony hefði neyðst til
að laga sig að kröfum markaðarins
en bættu við að samkeppnisstaða
fyrirtækisins yrði vafalítið sterk.
TÖLVUPRENTARAR |
Mímir
Kenm verdur í fíeiri
ánámsl
... OG MALIÐ ER LEYST!
ÞYSKA
franska
SPÆNSKA
italska
'SLENSKA
fynr utlendinga
M&ÁiAnmtin
£viknanámskeióhefiast Í4 n i T--™
Timi; 18.30-20.30 og20 40 2^nmúár-úar-
S.ðdegIstímarU. ,34fo«-M.40.
PNSKA
12 V I K N A
N Á M S K E I Ð
H E F J A S T
| 25. janúar
Enskuskóli æskunnar er
fyrir börn á aldrinum
8-13 ára og þeim er skipt
í hópa eftir kunnáttu.
Skólinn er starfræktur í
ÐREIÐHOLTI,
VESTURBÆ OG
HAFNARFIRÐI