Morgunblaðið - 04.06.1992, Page 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
125. tbl. 80. árg.
FIMMTUDAGUR 4. JUNI 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rússland:
Ætla að einkavæða
7 0% smáfyrirtækja
Toronto, Washington. Reuter.
STJÓRN Rússlands hyggst
einkavæða að minnsta kosti 70%
smáfyrirtækja í landinu í ár, að
því er Petr Aven, ráðherra er-
lendra efnahagssamskipta, sagði
í gær eftir að hafa rætt við
Bandaríkin:
Perot ræður
reynda kosn-
ingastjóra
Washington. Reuter.
TOM LUCE, sem stjórnar hinni
óopinberu kosningabaráttu millj-
arðamæringsins H. Ross Perot
fyrir bandarísku forsetakosning-
arnar, sagði í gær að tveir af
reyndustu kosningastjórum
Bandaríkjanna, Edward Rollins
og Hamilton Jordan, hefðu verið
ráðnir til Perot.
Edward Roll-
ins tilheyrir
íhaldssamari
armi Repú-
blikanaflokks-
ins. Hann vann
lengi sem pólit-
ískur ráðgjafi
Ronalds Reag-
ans, fyrrum
Bandaríkjafor- Perot
seta, og var
einnig kosningastjóri Reagans er
hann var endurkjörinn með yfir-
burðum árið 1984. Hann hefur
einnig skipulagt kosningabaráttu.
margra þingmanna. Rollins lenti
hins vegar á kant við George Bush
Bandaríkjaforseta og hefur undan-
farið starfað sem sjálfstæður pólit-
ískur ráðgjafi.
Hamilton Jordan er aftur á móti
demókrati. Hann var kosningastjóri
Jimmy Carters er hann öllum að
óvörum vann forsetakosningarnar
árið 1976. Að þeim loknum starfaði
hann um skeið sem skrifstofustjóri
Hvíta hússins.
Sjá frétt á bls. 27.
bankastjóra á Alþjóðlegu pen-
ingamálaráðstefnunni í Toronto.
Aven sagði að um 60% hluta-
bréfa fyrirtækjanna yrðu seld á
opnum markaði en afgangurinn
myndi renna til starfsmanna þeirra.
Hann sagði að þegar hefði verið
hafist handa við sölu fyrirtækjanna
og kvaðst vona að takmarkinu yrði
náð í ár.
Guido Schmidt-Chiari, stjórnar-
formaður Kreditanstalt-Bankver-
ein, sagði aðspurður um ummæli
Avens að áætlun rússnesku stjórn-
arinnar væri mjög áhugaverð. „Það
kom mér á óvart hversu mikið þeir
ætla að einkavæða. Rússland er
gríðarstórt land,“ sagði hann.
Jacques Attali, forseti Þróunar-
banka Evrópu, sagði í gær að Rúss-
ar myndu þurfa um 36 milljarða
dala (2.100 milljarða ÍSK) aðstoð á
næsta ári komi þeir ekki á umbótum
í landbúnaði og olíuvinnslu sinni á
næstu misserum.
/ \\ UNITED NATIONS CONFERENCE ON
ENVIRONMENT AND DEVELOPMENT
é/
Rio de Janeiro 3-14 June 1992
Umhverfisráðstefnan íRíó sett
Reuter
„Ég held að það séu meira en orðin tóm þegar ég
segi að þetta sé sögulegur viðburður," sagði Bout-
ros Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, þegar hann setti umhverfisráðstefnu sam-
takanna í Rio de Janeiro í Brasilíu í gær. Þar hitt-
ast fulltrúar 178 rikja og yfir 100 þjóðhöfðingjar
og reyna að finna leiðir til að samræma efnahagsþró-
un og umhverfisvernd. Maurice Strong, Kanadamað-
urinn sem er forseti ráðstefnunnar, sagði í ræðu
sinni að óhófleg neysla ríkra þjóða gæti ekki haldið
áfram endalaust á kostnað hinna fátækari og náttúr-
unnar; enginn staður á jörðinni gæti til lengdar ein-
angrað sig sem eyja allsnægta í hafi þjáninga.
Önnur EB-ríki vilja staðfesta Maastricht þrátt fyrir dönsku atkvæðagreiðsluna:
Óvissa um framtíð Dana
innan Evrópubandalagsins
Brusscl. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins, Reuter.
STJÓRNVÖLD ríkja Evrópubandalagsins lýstu í gær yfir vonbrigðum
með að Danir hefðu í þjóðaratkvæðagreiðslu á þriðjudag fellt Maast-
richt-samkomulagið. Þau sögðust samt sem áður ætla að halda áfram
þeirri vinnu að fá það staðfest í hinum ríkjunum ellefu og gáfu jafnvel
í skyn að áframhaldandi EB-aðild Dana væri í hættu. Poul Schliiter,
forsætisráðherra Danmerkur, og Uffe Ellemann-Jensen utanríkisráð-
herra sögðu Dani ætla að fara fram á það að samkomulaginu yrði
breytt en létu samtímis í Ijósi efasemdir um að á það yrði fallist.
Joao de Deus Pinheiro, utanríkis-
ráðherra Portúgal og forseti
ráðherraráðs Evrópubandalagsins,
sagði í gær að samstaða væri um
það meðal aðildarríkja bandalagsins
að hrinda í framkvæmd samþykktum
leiðtogafundarins i Maastricht án
þátttöku Dana. Pinheiro kvaðst hafa
komist að þessari niðurstöðu eftir
að hafa ráðfært sig náið við fulltrúa
hinna aðildarríkjanna. Hann tjáði sig
hins vegar ekki um það hvernig
ætti að sniðganga Dani í þessu sam-
bandi.
í sameiginlegri yfirlýsingu, sem
þeir gáfu út í gær, sögðu Helmut
Kohl, kanslari Þýskalands, og
Francois Mitterrand Frakklandsfor-
seti að Frakkar og Þjóðveijar myndu
áfram ótrauðir vinna að því að fá
samkomulagið staðfest. Mitterrand
skýrði einnig frá því að hann hygð-
ist efna til þjóðaratkvæðagreiðslu
um samkomulagið í Frakklandi.
Verður hún líklega haldin í haust.
írsk stjórnvöld höfðu boðað til
þjóðaratkvæðagreiðslu um Maast-
richt-samkomulagið 18. júní nk. og
sögðu þau í gær að niðurstöðurnar
Þingkosningar í Tékkóslóvakíu:
Tékkar gengn út af fundi Meciars
Bratislava. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
VLADIMIR Meciar, leiðtogi hreyfíngar fyrir lýðræðislegri Slóvakíu,
HZDS, var þreytulegur í upphafí blaðamannafundar í Bratislava í
gær. Hann talaði hratt en lágt og sessunautur minn sagði að hann
væri alls ekki líkur sjálfum sér. Það var ekki fyrr en hann var
spurður álits á skoðun Vaclavs Havels, forseta Tékkóslóvakíu, á
framtíð sambandslýðveldisins að hann tók við sér.
„Það verður í höndum þjóðarinn-
ar en ekki einstaklinga eða stjóm-
málaflokka að ákveða framtíð sam-
bandslýðveldisins," sagði hann. Ný
stjórnarskrá fyrir Slóvakíu ætti að
liggja fyrir í ágúst og samkomulag
við Tékka um bandalag tveggja
fullvalda ríkja ætti að nást sem
fyrst svo að Slóvakar geti tekið
afstöðu til þess í þjóðaratkvæða-
greiðslu fyrir áramót.
Havel ávarpaði þjóðina í sjón-
varpi á þriðjudagskvöld og hvatti
hana til að vanda val sitt vel í þing-
kosningunum á föstudag og laug-
ardag. „Hann varaði kjósendur við
brosmildum ræðuskörungum og
sagði að kosningaloforð þeirra
væru ekkert nema orðin tóm,“
sagði sessunauturinn sem ég hélt
fyrst að væri fulltrúi HZDS en
sagðist vera blaðamaður. „Hann
átti auðvitað við Meciar. En Meciar
er alvara þegar hann segir að það
verði að hjálpa þeim sem orðið
hafa undir í efnahagsumbótunum."
„Havel talaði fyrir hönd hægri-
aflanna í landinu en ekki mið- og
vinstriflokkanna," sagði Meciar
ákveðinn. Tékkneskur blaðamaður
sem hefur skrifað margt neikvætt
um leiðtogann spurði hann um for-
tíð hans sem kommúnista. „Við þig
hef ég ekkert að segja," svaraði
Meciar og blaðamaðurinn og
nokkrir tékkneskir kollegar gengu
út úr þéttsetnum salnum í mótmæl-
askyni.
Það er ekki útilokað að eins fari
á samningafundum Tékka og Slóv-
aka um framtíð sambandslýðveldis-
ins. Það er að segja að Tékkar
gefist upp á að reyna að tjónka
við Slóvaka og fulltrúar lýðveld-
anna hætti að tala saman. „Slóvak-
ía er eins og unglingur sem verður
lögráða átján ára og er nú 17 ára
og 364 daga gama!l,“ sagði einn
frambjóðenda HZDS í samtali við
Morgunblaðið á dögunum. „Við
viljum fullveldi og erum reiðubúnir
að semja um bandalag við Tékka
sem fullvalda þjóð. Við erum opnir
fyrir hugmyndum um fyrirkomulag
bandalagsríkisins og það verður
Tékkum að kenna ef samkomulag
næst ekki.“
Sjá einnig bls 28.
í Danmörku myndu engu breyta þar
um. John Major, forsætisráðherra
Bretlands, lýsti því yfir að þingum-
ræðu um Maastricht yrði frestað
vegna úrslitanna í Danmörku þó svo
að enn stæði til að staðfesta sam-
komulagið. Hann sagði ekki koma
til greina að halda þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið.
Margaret Thatcher, fyrrum for-
sætisráðherra, fagnaði hins vegar
úrslitunum í Danmörku og sagði þau
vera sigur í baráttunni fyrir lýðræði
og gegn skrifræði.
Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdastjómar EB, var spurður að
því í viðtali við írska sjónvarpið í
gærkvöldi hvers vegna önnur ríki
þyrftu að staðfesta samninginn, sem
væri hvort sem er úr sögunni þar
sem öll ríkin þyrftu að staðfesta
hann til að hann tæki gildi. Delors
svaraði að nauðsynlegt væri að fá
fram endanlega afstöðu allra aðildar-
ríkja svo hægt væri að meta stöð-
una. „Ef hin ríkin ellefu staðfesta
samkomulagið er hugsanlegt að ríkin
ellefu snúi sér til dönsku þjóðarinnar
og dönsku ríkisstjómarinnar og
spyiji: Ætlið þið að koma með okkur
eða ekki?“ sagði Delors.
Fyrstu viðbrögð aðildarríkja EB,
sem mark er á takandi, við niðurstöð-
um þjóðaratkvæðagreiðslunnar í
Danmörku verða á skyndifundi utan-
ríkisráðherra bandalagsins í Ósló í
dag. Hins vegar er þess vart að
vænta að afleiðingar niðurstöðunnar
og viðbrögð EB við þeim skýrist fyrr
en eftir leiðtogafund EB í Lissabon
26. og 27. júní.
Sjá nánar fréttir á bls. 28.