Morgunblaðið - 04.06.1992, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1992
Metsölublað á hverjum degi!
Landlæknisembættið;
Notkun steralyfja
mikil hér á landi
Landlæknisembættið hefur gefið út fræðslubækling- um steralyf
sem nefnist Staðreyndir um steralyf. í bæklingnum kemur m.a. fram
að svo virðist sem misnotkun íþrótta- og vaxtarræktarfólks á stera-
lyfum sé algeng víða um heim. Talið er að tæplega sjö af hverjum
hundrað körlum og rúmlega ein af hverjum hundrað konum í efstu
bekkjum bandarískra framhaldsskóla hafi notað karlhormón. Nýleg
rannsókn í sænskri vaxtarræktarstöð leiddi í ljós að þrír af hverjum
fjórum körlum sem æfðu fyrir keppni notuðu karlhormón en einnig
einn af hverjum fjórum sem æfðu
Bæklingurinn er tekinn saman
af læknunum Ara Jóhannssyni og
Pétri Péturssyni á Akureyri. Þar
kemur fram að steralyf eru ýmist
nákvæmlega eins og testósteron,
hið eiginlega kynhormón karla, eða
nauðalík því að gerð. Læknar ávísa
steralyfjum einkum þegar þörf er á
að bæta karlmönnum upp vanstarf-
semi kynkirtla þeirra.
Landlæknisembættið telur mis-
notkun karlhormóna vera útbreidda
meðal íslenskra kraftlyftinga- og
vaxtarræktarmanna. í bæklingnum
segir að löngum hafi verið deilt um
hvort steranotkun bæti árangur í
íþróttum. Árangurinn sé greinileg-
astur hjá konum og unglingum af
báðum kynjum, en hjá heilbrigðum
karlmönnum hefur reynst erfítt að
sanna bein áhrif á vöðvauppbygg-
ingu á þann gagnrýna hátt sem
krafíst er í læknavísindum. Einnig
er deilt um hvort misnotkun stera
sé hættuleg. Vegna þess pukurs
sem einkenni alla misnotkun sé nær
öruggt að aldrei sé greint frá fjöl-
mörgum aukaverkunum opinber-
lega. Hins vegar sé nægilega mikið
vitað um aukaverkanir til þess að
fullyrða að steranotkun eins og hún
er víðast stunduð sé oft á tíðum
stórhættuleg.
Aukaverkanir megi rekja til karl-
gerandi áhrifa hormónanna á kon-
ur, börn og unglinga, kvengerandi
áhrifa þeirra á karla, eituráhrifa,
t.d. á lifur, áhrifa eftir ýmsum leið-
um á vökva- og saltjafnvægi líkam-
ans, sykur- og fítubúskap, hjarta-
einungis í fegrunarskyni.
og æðakerfi, sálarlíf og fleira. Al-
varlegustu aukaverkanir vegna
steranotkunar barna og unglinga
sé ótímabær stöðvun á vexti, þar
sem vaxtarlínur beina lokast. Kyn-
færi drengja þroskist fyrr en ella
og kynfæri stúlkna geti afmyndast.
Dómgreindarleysi og árásarhneigð
sé áberandi í fari margra steranot-
enda. Enn alvarlegri sjúkdómsein-
kennum hefur verið lýst svo sem
þunglyndi, ofsóknarbijálæði, of-
skynjunum, kvíða, svefnleysi, of-
virkni og mikilmennskubijálæði.
Þegar stórneyslu sé skyndilega
hætt taki stundum við alvarlegt
þunglyndi. Hætta virðist á ávana
og fíkn svo erfítt kann að reynast
að hætta steratöku þótt vilji sé fyr-
ir hendi.
I bæklingnum segir að ávísanir
lækna á þessi lyf til heilbrigðra
bijóti í bága við læknisheit þeirra
og siðareglur. Viðskipti með þessi
lyf fari oftast fram á svörtum mark-
aði. Margt sé líkt með þessari versl-
un og eiturlyfjaviðskiptum enda
bendir margt til þess að misnotkun-
in geti haft í för með sér ávana og
fíkn.
í bæklingnum er bent á að farið
sé að bera á misnotkun vaxtarhorm-
óns, sem nauðsynlegur er vexti
barna og unglinga. Engar vísinda-
legar heimildir staðfesti það að full-
vaxið fólk geti haft gagn af notkun
vaxtarhormóns. Aftur á móti megi
búast við ýmsum aukaverkunum,
svo sem sykursýki, hjartasjúkdóm-
um og háum blóðþrýstingi.
optibelt
KÍLREIMAR
Norræn ráðstefna um
starfsmenntun kennara
endur hafa verið sérfræðingar kenn-
aramenntunarstofnana og stjórn-
valda ásamt kennurum og stjórnend-
um starfsmenntaskóla.
ísland hefur frá upphafi tekið
þátt í þessu norræna samstarfi.
Að undanfömu hefur mikil um-
ræða verið um gæði í framleiðslu
og gæðastjórnun. Á þessari ráð-
stefnu er sjónum beint að því hvern-
ig hafa megi starfsmenntun og
menntun starfsmenntakennara til
að mæta nýjum og breyttum kröfum
atvinnulífsins í framtíðinni. Þessar
ráðstefnur hafa verið haldnar til
skiptis í löndunum fímm og hefur
ísland tvisvar áður verið gestgjafí,
í Hveragerði árið 1981 og Húsavík
1986, Þetta er því í fyrsta sinn sem
ráðstefnan er haldin í Reykjavík.
KKogSilf-
urtónar á
Púlsinum
KK-BAND og Silfurtónar halda í
kvöld, fimmtudaginn 4. júní, tón-
leika á Púlsinum í beinni útsend-
ingu Bylgjunnar í boði Prent-
smiðjunnar Odda.
Hljómsveitina KK skipa: Kristján
Kristjánsson, Ellen Kristjánsdóttir,
Eyþór Gunnarsson, Þorleifur Guð-
jónsson og Kormákur Geirharðsson.
Meðlimir Silfurtóna eru: Júlíus og
Magnús sem eru sem fyrri í for-
grunni, syngja og leika á gítara,
Hlynur er á bassa og Bjami á tromm-
ur og Ámi úr Rut er þriðji gítarleik-
ari sveitarinnar.
13. NORRÆNA ráðstefnan um
menntun starfsmenntakennara
stendur yfir um þessar mundir í
Kennaraháskóla íslands við
Stakkahlíð. Þema ráðstefnunnar
verður: Gæði starfsnáms og
menntun starfsmenntakennara.
Þær stofnanir í Danmörku, Finn-
landi, Islandi, Noregi og'Svíþjóð sem
sjá um menntun kennara fyrir starf-
menntaskóla á framhaldsskólastigi
hafa um árabil haft með sér sam-
vinnu sem meðal annars hefur falist
í ráðstefnum sem haldnar hafa verið
til skiptis í löndunum fímm. Þátttak-
(FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 814670
JjJJ
REIMSKÍFUR OG FESTIHÓLKAR
Drifbúnaður hvers konar
er sérgrein okkar.
Allt evrópsk gæðavara. Veitum
tæknilega ráðgjöf við val á
drifbúnaði.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
Suzuki Vitara
3ja dyra
lipur og öflugur lúxusjeppi
—
-
Staðalbúnaður í Suzuki Vitara
SUZUKI
MINNI MENGUN
• 1.6 I 80 ha vél með rafstýrðri
bensínsprautun
• 5 gíra með yfirgír eða 3ja
gíra sjálfskipting
• Samlæsing hurða
• Rafmagnsrúðuvindur
• Rafstýrðir speglar
• Snertulaus kveikja
• Vökvastýri
• Veltistýri
• Halogen ökuljós með
dagljósabúnaði
• Þokuljós að aftan
• Útvarpsstöng
• Gormafjöðrun á öllum
hjólum
• Diskahemlar að framan,
skálar að aftan
• Grófmynstraðir hjólbarðar
195x15
• Varahjólsfesting
• Snúningshraðamælir
• Klukka
• Vindlingakveikjari
• Hituð afturrúða
• Afturrúðuþurka og sprauta
• Kortaljós
• Fullkomin mengunarvörn,
(Catalysator)
• Samlitir stuðarar, hurðar-
húnar og speglar
• Vönduð innrétting
• Litaðar rúður
• Sílsahlífar
• Eyðsla frá 8.0 I á 100 km
• Verð 5 gíra: 1.438.000 stgr.
Sjálfskiptur: 1.530.000 stgr.
Til afgreiðslu strax.
$ SUZUKI
-----------------------
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 ■ SÍMI 68 51 00