Morgunblaðið - 04.06.1992, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1992
Lagt til að Iþrótta-
skemmunni verði lok-
að eftir eitt til tvö ár
GERA má ráð fyrir að íþrótta-
skemman á Oddeyri verði lögð
niður sem íþróttahús eftir 1-2
Lego-bygginga-
samkeppni:
Um 200 verk-
um skilað inn
LÍNEY Úlfarsdóttir, 12 ára, bar
sigur úr býtum í byggingasam-
keppni sem haldin var á vegum
Leikfangamarkaðarins Parísar
og Vöruhúss KEA í síðustu viku.
í öðru sæti varð Hörður Þór
Rafnsson, 10 ára, og Jón Geir
Svansson, sem er 8 mánaða, varð
í þriðja sæti.
Byggingasamkeppnin, sem var
fyrir listafólk á öllum aldri, fólst í
því að byggja úr að hámarki 25
Lego-kubbum. Þátttaka var mjög
góð, en um 200 verkum var skilað
og voru þau mjög fjölbreytt.
I dómnefnd voru Þorleifur V.
Stefánsson, fyrir hönd Lego, Baldur
Ellertsson myndlistamaður og Páll
Tómasson arkitekt. Veitt voru veg-
leg aðalverðlaun fyrir þrjú bestu
verkin og 20 aukaverðlaun.
(Fréttatilkynning)
ár og verði þess í stað notuð sem
áhaldahús bæjarins, svo sem
hlutverk hússins átti í upphafi
að vera.
Ingólfi Ármannssyni skólafull-
trúa og Stefáni Stefánssyni bæjar-
verkfræðingi var í vetur falið að
gera tillögur um íþróttaskemmuna
og íþróttaaðstöðu við Oddeyrar-
skóla í kjölfar þess að fram komu
hugmyndir um að loka húsinu sem
íþróttahúsi og gera það að áhalda-
húsi fyrir bæinn, en það var í
upphafi byggt sem slíkt. Skólafull-
trúa og bæjarverkfræðingi var
falið að gera tillögur um þessi
mál, en nokkur mótmæli bárust
frá hagsmunaaðilum eftir að þess-
um hugmyndum var varpað fram.
Ingólfur Ármannsson skólafull-
trúi sagði að lagt hefði verið til
að engar breytingar yrðu gerðar
næstu eitt til tvö árin, þ.e.a.s.
skemman yrði áfram íþróttahús
fyrir nemendur Oddeyrarskóla og
nýttist einnig almenningi á kvöldin
og um helgar. Þá er lagt til að
strax eftir að ákveðið hefði verið
að breyta hlutverki hússins yrði
gerð áætlun um næstu skref í
málinu, en ljóst er að byggja þar
íþróttahús fyrir nemendur Oddeyr-
arskóla verði íþróttaskemmunni
lokað.
Tollgæslan:
Áfengi gert upptækt
FJÓRTÁN flöskur af vodka voru
gerðar upptækar seinnipartinn
í gær í þýska skipinu Jennyfer
sem liggur við Oddeyrar-
bryggju.
Sigurður Pálsson, yfirtollvörður
Tollgæslunnar á Akureyri, sagði
að grunsemdir hefðu vaknað vegna
mannaferða um borð í skipið. Um
er að ræða leiguskip sem'skráð er
1 í Hamborg, en það kom til Akur-
eyrar beint frá Lúbeck í Þýska-
landi. Pólveijar eru í áhöfn skipsins
og viðurkenndi einn þeirra við yfír-
heyrslur hjá Tollgæslunni að eiga
áfengið. Það var gert upptækt og
eiganda þess gert að greiða ríflega
30 þúsund krónur í sekt til ríkis-
sjóðs.
í iiðinni viku hafði Tollgæslan
afskipti af viðskiptum áhafnar
rússnesks togarara með áfengi, en
þau afskipti leiddu síðan til þess að
í húsi einu í bænum fundust 36
hálfs lítra brúsar af spíra.
Sigurður sagði að afskipti af
verslun áhafna erlendra leiguskipa,
togara og flutningaskipa færu vax-
andi.
Skipulagsdeild:
Hagvirki bent á lausar lóðir
HAGVIRKI-Kletti í Hafnarfirði
voru í gær send gögn varðandi
lóðir sem koma til greina til að
byggja á íbúðir fyrir aldraða.
Byggin’gafyrirtækið sótti um
hentuga lóð á Akureyri til að byggja
á 40 til 50 íbúðir fyrir aldraða eftir
að tilboði þess í byggingu íbúða
fyrir aldraða við Lindarsíðu var
hafnað fyrir nokkru, en Hagvirki-
Klettur átti lægsta tilboð í verkið.
Bæjarráð fól byggingafulltrúa og
skipulagsstjóra að ræða við for-
„syarsmenn hafnfirska verktakafyr-
irtæksins og sagði Sveinn Brynj-
ólfsson hjá Skipulagsdeild að í gær
hefðu verið send gögn um þær lóð-
ir sem til greina koma vegna fyrir-
hugaðrar byggingar Hagvirkis-
Kletts.
Bent var á lóðir í Giljahverfi, en
það er nýjasta hverfí bæjarins. Þar
eru lausar lóðir undir fjölbýlishús
af öllu tagi og erU'lóðirnar bygging-
arhæfar nú þegar. Þá var einnig
bent á þann möguleika að kaupa
upp eldra húsnæði, annað hvort í
miðbænum eða nágrenni hans og
eins á Oddeyri.
SUMARSKOLINN A AKUREYRI
USTIR - LÍF - LEIKIR
14 dagar fyrir 10-14 ára frá 20. júní.
Leiklist: Ásta Arnardóttir (Reykjavík).
Myndlist: Örn Ingi (Akureyri).
Dans: Anna Richardsdóttir (Reykjavík).
Matargerðarlist: Ýmsir meistarar.
Upplýsingar og skráning í síma
96-22644 frá kl. 17.00-19.00
I Xv ■'%
Morgunblaðið/Magnús J.Mikaelsson
Hreinsað til í Hrísey
Árlegt hreinsunarátak íbúa Hríseyjar var um
síðustu helgi og mættu fjölmargir og galvaskir íbú-
ar og tóku til hendinni. Rusli var safnað saman í
þorpinu og umhverfis það og þegar upp var staðið
höfðu safnast 16 sturtuvagnar af rusli. Að loknu
vel unnu dagsverki var grillað ofan í mannskapinn
við ráðhús Hríseyinga og tóku menn hraustlega til
matar síns.
Vinnumiðlunarskrifstofan:
244 á atvinnuleysisskrá
FYRSTU dagana í júní bættist töluverður hópur fólks á atvinnuleys-
isskrá, en þar er aðallega um að ræða ræstingakonur í skólum og
eins skólafólk sem hefur rétt til atvinnuleysisbóta.
Um síðustu mánaðamót voru 244
á atvinnuleysisskrá á Akureyri, 132
karlar og 112 konur, og fækkaði
atvinnulausum um 35 á milli mán-
aðamóta, en í lok apríl voru um 280
manns á atvinnuleysisskrá.
Sigrún Björnsdóttir forstöðu-
maður Vinnumiðlunarskrifstofunn-
ar á Akureyri sagði að nokkuð
margir hefðu fengið vinnu undan-
farna daga og horfið þar með út
af skránni, en á móti kæmi að fyrstu
dagana í júní hefði verið þó nokkur
straumur nýs fólks á atvinnuleysis-
skrána. Þar væri fyrst og fremst
um að ræða skólafólk sem hefði
rétt á atvinnuleysisbótum og þá
kæmu ræstingakonur sem starfa
við skóla bæjarins að jafnaði inn á
atvinnuleysisskrána um þessi mán-
aðamót.
Af þeim sem nú eru án atvinnu
eru flestir félagsmenn í Einingu,
samtals 100 manns, 49 karlar og
51 kona, þá eru 50 félagsmenn í
Félagi verslunar- og skrifstofufólks
án atvinnu, 15 karlar og 35 konur.
Iðjufélarar eru 38 talsins, 17 karlar
og 21 kona, og þá eru 20 iðnaðar-
menn á atvinnuleysisskrá nú í sum-
arbyijun.
Óhemju mikið af eggjum
Gnmsey:
Grímsey.
„ÞAÐ ER óhemju mikið af eggjum," sagði Haraldur Jóhannsson í
Grímsey, en hann og synir hans hafa að undanförnu verið að síga
í björg eftir eggjum. Veður hefur verið einstaklega gott síðustu
daga og vel til bjargsigs fallið, skraufaþurrt og aðstæður allar
hinar ákjósanlegustu.
Haraldur og synir hans hafa
tekið um tvö þúsund egg, en þeir
hafa að jafnaði farið með tveggja
daga millibili í bjargið eftir eggjum,
Söngur og sól-
stöðukaffi
í menningardagskrá MENOR,
sem birtist í blaðinu í gær, þriðju-
dag, urðu þau mistök í dagskrá
sem blaðið fékk í hendur, að lið-
urinn Söngur og sólstöðukaffi í
Breiðumýri í Reykjadal var sagð-
ur vera 14. júní.
Hið rétta er að sólstöðukaffið
verður að sjálfsögðu sunnudaginn
21. júní næstkomandi, en þar koma
fram Kvennakórinn Lissý, Hildur
Tryggvadóttir, sópran, Ragnar Þor-
grímsson, píanó, en stjórnandi er
Margrét Bóasdóttir.
-----♦ ♦ ♦---
Ferming í Glæsi-
bæjarkirkju
Möðruvallaprestakall: Ferming
verður í Glæsibæjarkirkju á Hvíta-
sunnudag, 7. júní næstkomandi og
hefst hún kh 16.00. Fermdur verður
Valgeir Einar Ásbjörnsson, Ytri-
Skjaldarvík, Glæsibæjarhreppi.
þannig að þeir éru ávallt með ný
og góð egg.
„Jarðskjálftinn hér um daginn
ýtti svo sem ekki undir að menn
færu, en hann hélt nú heldur ekk-
ert aftur af mönnum. Við vitum
af því að hér getur hrunið úr björg-
um og erum meðvitaðir um hætt-
urnar sem þessu fylgja,“ sagði
Haraldur.
Löngu er aflagt að menn sígi í
björg eftir eggjum í atvinnuskyni,
Wolfgang Tretzsch er fæddur í
Anerbach í Þýskalandi, hann lauk
A- prófi í orgelleik frá Kirkjutónlist-
arskólanum í Helle og nam síðar
kórstjórn og söng við Tónlistarhá-
skólann í Berlín. Hann hefur starfað
í fjölda ára sem organisti í Berlín,
en er nú starfandi við kirkjurnar á
Isafirði, Hnífsdal og Súðavík. Einn-
ig kennir hann söng við Tónlistar-
en þó eru nokkrir sem ætíð fara
til að ná sér í egg til að bragða á
og til að gefa vinum og ættingum.
Einstaka menn selja eggin og sagði
Haraldur að menn hefðu ekki
bundist samtökum um verðlag.
Hann hefði heyrt af því að egg
væru boðin á allt frá 55 krónum
og upp í um 150 krónur.
Krían byijaði að verpa á undan
skeglunni, sem ekki er vanalegt,
en skeglan við Grímsey er rétt að
byija varpið um þessar mundir,
sem er frekar seint. Mikið er af
fugli í Grímsey og sagði Haraldur
að mikil aukning hefði verið á
svartfugli undangengin ár.
- HSH
skóla ísafjarðar og stjórnar Karla-
kór Isaljarðar og Bolungarvíkur.
Síðar í þessum mánuði mun hann
leika í Dómkirkjunni í Reykjavík
og fer síðan til frekara tónleika-
halds til Þýskalands.
Á efnisskrá tónleikanna eru org-
elverk eftir J.S. Bach, Mozart, Distl-
er, Kiel og Petr Eben.
(Fréttatilkynning)
Þýskur organisti leikur
á tvennum tónleikum
ÞÝSKI organistinn Wolfgang Tretzsch heldur tónleika í Húsavíkur-
kirkju annað kvöld, föstudaginn 5. júní kl. 20.30. Þá leikur hann á
hádegistónleikum kl. 12 á laugardag í Akureyrarkirkju á vegum
Listvinafélags kirkjunnar.