Morgunblaðið - 04.06.1992, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1992
Minning:
Sigrún Hallbjörns-
dóttir Kjerúlf
Fædd 7. apríl 1900
Dáin 24. maí 1992
Lækkar lífdaga sól
löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól
fegin hvíldinni verð.
Guð minn gefðu þinn frið
gleddu og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið,
ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésd.)
Mér finnst þetta fallega ljóð
Herdísar Andrésdóttur eiga vel við
þegar við kveðjum Rúnu frænku,
eins og hún var alltaf kölluð af
okkur systkinabörnum hennar.
Rúna lést á Hrafnistu í Reykja-
vík 24. maí síðastliðinn, 92 ára
gömul. Hún fæddist á Bakka í
Tálknafirði aldamótaárið. Dóttir
hjónanna Sigrúnar Sigurðardóttur
frá Hofstöðum í Gufudalssveit og
Hallbjörns Eðvarðs Oddssonar frá
Gufudal í sömu sveit. Hún var
níunda barn þeirra hjóna en alls
áttu þau tólf börn, en eftirlifandi
er Þuríður sem býr á Hrafnistu í
Reykjavík. Hún og móðir mín,
Kristey, voru tvíburar og yngstar
af þeim systkinum.
Þegar Rúna var tólf ára fór hún
til Bíldudals og var þar hjá hálfsyst-
ur móður sinnar, Pálfríði Sigurðar-
dóttur, til átján ára aldurs en þá
flytja þær til Reykjavíkur og hefur
hún búið hér síðan.
Rúna giftist Erlendi Helgasyni
vélstjóra, þau áttu ekki böm, þau
skildu. Hún giftist aftur öðlings-
manriinum Áskeli Kjerúlf skrifstof-
umanni, en hann lést 1989 stuttu
eftir að Rúna flutti á Hrafnistu.
Þau eignuðust einn son, Áskel Kjer-
úlf verkfræðing í Stokkhólmi.
Rúna frænka var einstaklega kát
og hláturmild kona sem alltaf geisl-
aði af gleði. Þar sem Rúna fór, var
SUMARBUSTAÐA
EIGENDUR
GOTT ÚRVALI
Efna til vatns og
hitalagna, úr jámi
eir eða plasti.
Einnig rotþrœr o.m.fl.
Hreinlœtistœki, stálvaskar
og sturtuklefar.
Vönduð vara sem endisl
VATNSVIRKINN HF. |
ARMULA 21 SIMAR S86455 - 6Í5966
: FAX 91-68774«
gleði og gaman. Hún var í okkar
huga sannkallað sólskinsbam.
Eg held að þess vegna hafí okk-
ur fundist erfíðara að sætta okkur
við breytt skap hennar hin síðustu
ár. Ég vil þakka starfsfólkinu á
A-3 á Hrafnistu fyrir það mikla
umburðarlyndi sem það sýndi henni
þau ár sem hún dvaldi þar. Hafið
frá okkur ástvinum hennar hjart-
ans þökk fyrir alúð í hennar garð.
Lífsklukkan hennar Rúnu
frænku er útgengin, ég þakka
henni samfylgdina og bið Guð að
blessa minningu hennar.
Oss héðan klukkur kalla,
svo kallar Guð oss alla
til sín úr heimi hér,
þá söfnuð hans vér sjáum
og saman vera fáum
í húsi því, sem eilíft er.
(V. Briem)
Sigrún Sturludóttir.
Við minnumst móðursystur okk-
ar systkinanna Sigrúnar, eða Rúnu
töntu, eins og við kölluðum hana,
með einskæmm hlýhug og þakk-
læti fyrij allt það sem hún var
okkur frá æsku og langt fram á
fullorðinsár.
Hún lést á sjúkradeild Hrafnistu
DAS þann 24. maí sl., 92 ára að
aldri.
Hún hafði dvalið þar nokkur
undanfarin ár htjáð af þeim sjúk-
dómi, sem oft vill fylgja hárri elli
og á það til að breyta séreinkennum
og persónuleika vikomandi og er
óviðráðanlegur.
Allt sitt líf hafði hún stráð í
kringum sig hlýju og birtu og eins
og Gunnar M. Magnússon, rithöf-
undur, lýsir henni í Súgfirðingabók,
en þar segir hann orðrétt: „Hún
var rösk og hraustleg stúlka, við-
stöSúlaus í tali, iðaði af fjöri og
hló við í hverju spori. Léttur hlátur
hennar og kátína smitaði hvem og
einn, sem á vegi hennar varð. I
öllu var hún dugleg og tilþrifasöm."
Frá því að þær móðir mín og
hún bjuggu í sama húsi á Bergþóru-
götu 61 í Reykjavík og þrátt fyrir
að nokkrum sinnum væri skipt um
húsnæði, vildi þannig til að aldrei
voru meira en nokkur hundruð
metrar á milli þeirra tveggja, enda
voru þær mjög samrýndar.
Hún fór með okkur systkinin
eins og hún ætti okkur, skammaði
okkur og flengdi, ef þörf var á.
Upplifðum við margar skemmtileg-
ar uppákomur hjá henni í uppvext-
inum. Sumar hveijar grafalvarleg-
ar, aðrar í léttum dúr. Eina slíka
upplifði það baldnasta af okkur,
þá labbaði hún sér með það í fang-
inu ofan af þriðju hæð, þótt um 6
ára krakka væri að ræða, tók lokið
af öskutunnunni og hótaði öllu illu
ef það yrði ekki almennilegt.
Þegar hún var orðin fullviss um
að hjartað væri komið nægilega
neðarlega, þá hló hún að öllu sam-
an, en þetta hafði sín áhrif.
Hún fæddist að Bakka í Tálkna-
firði þann 7. apríl árið 1900, dóttir
þeirra hjóna Sigrúnar Sigurðar-
dóttur og Hallbjöms Eðvarðs
Oddssonar, bónda, sjómanns og
kennara. Hún var níunda bam
þeirra af tólf, sem þau eignuðust
og komust þau öll til fullorðins
ára, nema eitt, sem dó vikugamalt.
Hallbjörn var prestssonur og eftir
nám hjá föður sínum sat hann einn
vetur í Latínuskólanum og var því
nokkuð vel í stakk búinn til að
kenna sínum stóra bamahóp,
ásamt fjölda annarra bama á sínum
æviferli. Hann var talinn vel ritfær
og skrifaði m.a. sjálfsævisögu sína,
sem birtist í Ársriti Sögufélags
ísfiðinga á árunum 1956-1964 og
þótt góð heimild um þjóð- og at-
vinnuhætti Vestfirðinga á síðari
hluta nítjándu aldar og fram á þá
tuttugustu. Hann flutti með Qöl-
skyldu sína til Suðureyrar við
Súgandafjörð arið 1912, nema
Rúna tanta, hún flutti til Pálínu
móðursystur sinnar á Bíldudal og
bjó þar með henni til 18 ára ald-
urs, að þær fluttu til Reykjavíkur.
Hún stundaði þar ýmis störf og var
alis staðar jafnvel liðin, fyrir dugn-
að, hláturmildi og hið góða viðmót.
Hún giftist Erlendi Helgasyni
vélstjóra. Þau slitu samvistir og
vom barnlaus, en tóku fósturson,
Helga. Hann fór ungur í siglingar
og er ekki vitað um dvalarstað
hans.
En það þurfti seinni heimsstyij-
öldina til að hrista upp í töntu aft-
ir, því þá hitti hún sinn rétta pól í
lífinu á heimili foreldra okkar,
Áskel S.O. Kejerúlf, skrifstofu-
mann og gjaldkera hjá H/F Kveid-
Minning:
Jóhann Þórsson
Fæddur 27. júní 1959
Dáinn 14. maí 1992
Ég kynntist Jóa í maí 1985. Þá
vann hann við og rak jámsteypu
uppi í Höfða, fyrirtæki föður síns,
sem þá var látinn. Árið 1986 fómm
við Jói að planleggja hátæknimálm-
steypu í listiðnaði. Jói hafði um
árabil lesið ótal fagblöð um nýjustu
tækni á þessu sviði og var óþijót-
andi brannur fróðleiks um hin
ýmsu tækniatriði. Jói var mikill
hugmyndasmiður og fékk m.a.
verðalaun í hugmyndasamkeppni
atvinnumálaráðunefndar Akur-
eyrar. Hann átti sér draum um að
koma á fót listiðnaði. Hann fylgd-
ist vel með öllum tækninýjungum,
skrifaðist á við helstu stórfyrirtæki
fyrir málmsteypu erlendis og keypti
af þeim ýmis efni sem hann hafði
not fyrir. Hann smíðaðði sjálfur
nokkrar vélar, sem hann þurfti í
listiðnaðinn.
Jói var barngóður maður og læt-
ur hann eftir sig tvö böm, þau em
Nína Katrín, fædd 15. júní 1985,
og Krístján Andri, fæddur 7. júlí
1988. Því miður fékk hann ekki
tækifæri til að umgangast bömin
sín, en hann hugsaði mjög mikið
til þeirra. Mér brá þegar ég frétti
andlát Jóhanns og sorgin varð sár-
ari vegna þess hve lítið samband
ég hafði við hann síðustu vikurnar.
úlfi en hann lést árið 1989. Faðir
okkar og hann unnu þar saman
um margra áratuga skeið, annar í
landi en hinn til sjós. Þau giftu sig
árið 1947. Áskell var sonur Eiríks
Kjerúlfs læknis á ísafirði, en hann
var ættaður frá Ormarsstöðum í
Fellum á Héraði, og konu hans
Sigríðar Þórðardóttur frá Hóli í
Reykjavík. Hjónaband þeirra
Áskels og Rúnu var einkar ham-
ingjusamt og farsælt og þótt þau
söfnuðu ekki auði í þess orðs merk-
ingu, var auður þeirra hið innra,
þau hæfðu hvort öðm einstaklega
vel og öllum leið vel í návist þeirra
og eigum við systkinin, og reyndar
fjölskyldan öll, margar góðar minn-
ingar frá traustum fjölskyldubönd-
um. Þau eignuðust einn son, Áskel
Kjerúlf yngri, en hann fór ungur í
nám til Svíþjóðar og hefur dvalið
þar síðan Þau söknuðu nánari sam-
vista við einkasoninn alla tíð.
Móðir okkar Þuríður var yngst
í þessum stóra systkinahópi og er
nú sú eina sem er eftirlifandi, en
tvíburasystir hennar Kristey er lát-
in fyrir mörgum ámm. Hún bjó
alla sína tíð á Súgandafirði, gift
Sturlu Jónssyni hreppstjóra og odd-
vita á Suðureyri.
Móðir okkar hefur einnig dvalið
nokkur undanfarin ár á Hrafnistu,
þar sem henni hefur liðið einstak-
lega vel og er enn við þokkalega
góða heilsu, þótt aldurinn sé farinn
að segja til sín. Hún hefur því get-
að litið til með systur sinni þessi
síðustu ár í veikindum hennar. Hún
vill færa starfsfólki Hrafnistu inni-
legar þakkir fyrir frábæra umönn-
un systur sinnar, sem og hennar
sjálfrar og óskar þeim öllum guðs-
blessunar.
Undir þessar óskir tökum við
systkinin, ásamt okkar fjölskyld-
um, af heilum hug, svo og hálfsyst-
ir okkar og hennar fjölskylda.
Megi hin brosmilda og hugljúfa
móðursystir okkar mæta því sem
hún þráði hinu megin. Hún lifir
áfram í endurminningum þeirra
sem elskuðu hana.
Fari hún tanta í friði.
Ásthildur, Ingvar
og Guðmundur.
Það er með söknuði sem við
systkinin kveðjum ástkæra frænku
okkar og ömmusystur Sigrúnu
Hallbjörnsdóttur Kjerúlf. Hún lést
í hárri elli í lok síðasta mánaðar
og var bálför hennar gerð frá Foss-
vogskapellu 1. júní síðastliðinn.
Fráfall Sigrúnar kom ekki á óvart
og erfiðu stríði er lokið, en við sökn-
um hennar sannarlega.
Sigrún var komin af sterkum
vestfirskum stólpum, dóttir Hall-
bjarnar E. Oddssonar og Sigrúnar
Sigurðardóttur. Hún var jafngömul
öldinni, fædd á Bakka í Tálknafirði
7. apríl árið 1900. Hún var níunda
í röð tólf systkina og þegar hugur
okkar yngra fólksins hvarflar til
systkinahópsins, sem við tengdum
yfirleitt við Súgandafjörð, minn-
umst við silfraða hársins þeirra,
bjartleitra og brosmildra andlit-
anna, sem glöddu okkur á hátíðum
í fjölskyldunni eins og stórafmæl-
um og fermingum.
Sigrún var meira en ömmusystir
og frænka. I hugum okkar var hún
sem amma og kom þar í stað Val-
gerðar föðurömmu okkar, sem lést
árið 1932 aðeins 43 ára að aldri,
er hið elsta fimm bama hennar var
aðeins 16 ára.
Sigrún var mikill vinur foreldra
okkar og mörg sumur ferðuðust
hún og Áskell maður hennar með
þeim vítt og breitt um landið. í
þessum ferðalögum var eitthvert
okkar systkinanna oftsinnis með í
för. Okkur er minnisstætt hversu
fróð þau vom um ísland og náttúm
þess og þau brýndu fyrir okkur
virðingu fyrir landinu.
Alltaf hafði Sigrún tíma og
áhuga til að spyija okkur um við-
fangsefni hversdagsins, lífíð og til-
vemna og sannarlega gaf hún okk-
ur oft góð ráð. Jól eða aðrar stórhá-
Þegar ég bað til Guðs, Jesú
Krists um að gefa mér þekkingar-
eða huggunarorð þá leiddi hann
mig á __ ritningarstaðinn Jes. 43,
1-4. „Óttast þú eigi, því að ég
frelsa þig, ég kaila á þig með nafni,
þú ert minn. Gangir þú gegnum
vötnin, þá er ég, með gegnum
vatnsföllin, þá skulu þau ekki flæða
yfir þig. Gangir þú gegnum eld,
skalt þú eigi brenna þig, og loginn
skal eigi granda þér, því að ég er
Drottinn Guð þinn, hinn heilagi í
ísrael, frelsari þinn.“ í líf Jóhanns
var sáð mörgum fræjum sem aldrei
fengu tækifæri til að blómstra. Ég
kveð Jóhann vin minn í þeirri full-
vissu að hann hafí leitað Drottins
og hann á eftir að sjá drauma sína
rætast hjá Guði þar sem engir sjúk-
dómar né sorg em til. Kæra Sigur-
rós, Guðrún og Badvin, megi Guð
styrkja ykkur í sorginni.
Þóra Þórisdóttir.
, íagmarksverði,
abeins 499 kr./kg.