Morgunblaðið - 04.06.1992, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1992
47
Ottó Wathne Björns
son — Minning
Fæddur 7. júlí .1904
Dáinn 26. maí 1992
í dag verður jarðsettur frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði vinur okkar
Ottó Wathne Björnsson, sem fædd-
ur var 7. júlí 1904 á Arnarstaþa á
Snæfellsnesi.
Okkur systkinin langar með
fáum orðum að minnast okkar
kæra vinar, sem lést 26. maí sl. á
Sólvangi í Hafnarfirði. Otti, eins
og hann var kallaður af öllum sem
til hans þekktu og þeir voru æði
margir, bæði hér í Hafnarfirði sem
og annars staðar, var mikill og
góður heimilisvinur á okkar æsku-
heimili á Köldukinn 6.
Þegar sest er niður til að minn-
ast manns sem svo nátengdur er
allri okkar æsku og uppvexti
streyma ýmsar minningar fram í
hugann. Allt eru þetta góðar minn-
ingar, því Otti var ljúfur maður og
vinmargur og hændust því að hon-
um bæði börn og dýr. Við minn-
umst sérstaklega allra hans heim-
sókna á okkar heimili og oft færði
hann okkur góðar og skemmtilegar
gjafir, sem glöddu okkur börnin
mikið, og sumar þessara gjafa eig-
um við enn. Eftir að við fullorðnuð-
umst og stofnuðum okkar heimili
fylgdist hann alltaf með okkur, og
þegar börnin okkar fæddust gladd-
ist hann með okkur og spurði alltaf
um þau og vildi fá að sjá þau með
okkur foreldrunum í heimsóknum
til hans á Sólvang.
Otti sýndi okkur systkinunum
mikið trygglyndi og áhuga alla tíð
og t.d. þegar Inga systir gifti sig
gaf hann okkur ýngri systkinunum
líka brúðargjafir, þó að gifting
væri ekkert í sjónmáli hjá okkur
þá, og það yngsta okkar væri að-
eins barn að aldri.
Fyrir nokkrum árum fluttist Otti
á Sólvang þar sem honum leið mjög
vel og lifði við gott atlæti og um-
hyggju starfsfólksins þar. En alltaf
held ég að hann hafi þó saknað
litla heimilisins síns í Bröttuk-
inninni og jafnvel gert sér vonir
fyrst í stað um að komast þangað
aftur. En nú verður það ekki því
Otti hefur kvatt þetta líf á meðal
okkar og hafist handa á öðrum
stað.
Hvíli í friði kæri vinur.
Inga, Einar og Björg.
Ottó Wathne Björnsson, vinur
minn, er látinn. Hann fæddist 7.
júlí 1904 á Arnarstapa á Snæfells-
nesi. Foreldrar hans voru Gunnhild-
ur Bjarnadóttir og Björn Jónsson.
Ottó fluttist til Hafnarfjarðar
1920. Hann átti hús í Bröttukinn
29, Hafnarfirði. Þangað kom ég
oft. Ottó var búinn að vera nokkur
ár á Sólvangi. Hann var alltaf ein-
setumaður. Ottó var sérstakur
maður. Ég kynntist honum þegar
ég kom í lögregluna 1954. Ég fékk
fljótlega áhuga fyrir að mála hann
en það gekk á ýmsu að til þess
kæmi, hann var hálfhræddur við
slíkt uppátæki og fór lengi undan
í flæmingi. En loks tókst að fá
hann til að sitja fyrir heima hjá
honum. Hann vildi ekki koma í
vinnustofu mína. Það var dálítið
erfitt að fá hann til að sitja kyrr-
an. Hann þurfti að vera að taka í
nefið og alltaf að aka sér til og frá
og með ýmsar brettur sem honum
voru kannski eðlilegar. Einnig vildi
hann alltaf vera að tala við mig.
Þetta hafðist þó á endanum. Eg
var dálítið búinn að stúdera Ottó
þegar hann kom á lögreglustöðina
í Hafnarfirði, en það var mjög oft.
Stundum kom hann seint á kvöldin
og þá venjulega með flöskur í pok-
um og var þá oft þreyttur. Hann
kom til að hitta vini sína, þá einu
eins og hann sagði stundum. Hann
safnaði flöskum og keypti hingað
og þangað, fór meira að segja til
Keflavíkur og víðar. Ottó hafði
áður unnið almenn sveitastörf og
ýmis verkamannastörf á ævinni.
Hann var flöskukaupmaður 30 síð-
ustu ár ævi sinnar. I þá daga voru
flöskur í verði og sérstaklega
brennivínsflöskur. Það var ekki
ósjaldan að við á lögreglustöðinni
ókum Otta heim með pokana sína
fulla af flöskum. Hann kom stund-
um með nokkra poka í strætó í
síðasta vagni. Voru strætóbílstjórar
góðir við Otta og leyfðu honum að
flytja þessa poka í vögnunum. Síð-
an bar hann þá á sjálfum sér að
lögreglustöðinni. Eftir klukkan 3 á
nóttunni þegar um hægðist í bæn-
um og allt var orðið rólegt var
honum hjálpað heim með varning
sinn í hús sitt og inn í kjallara. Þá
lá vel á karli og stundum bauð
hann upp á flotta vindla og malt-
öl. Ottó var nefnilega góður vinur
vina sinna. Hann var sérstakur og
sérsinna en hrekklaus, góð sál. A
seinni árum var honum gefið sjón-
varp af vinum sínum í Reykjavík,
en það setti hann aldrei í samband.
HARDVIDARVAL f
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
IR'? íáJKIf- Jtlj
■ iff rE
' i JÉl
Hlustaði bara á útvarpið, gömlu,
góðu Gufuna, og lagði kapal. Hann
talaði fallega íslensku og var gam-
an að ræða við hann. Það voru
stuttar setningar og hnitmiðaðar
sem minntu á Hemmingway, sem
hann hafði aldrei heyrt um eða les-
ið.
Ottó kom stundum heim til mín
að Köldukinn 12 enda stutt að fara.
Hann var góður við börn, hugsaði
mikið um þá sem áttu bágt, en lít-
ið um sjálfan sig. Hann var stund-
um skemmtilegur og lék á als oddi.
Hulda og Jónatan í Köldukinn 8
voru alltaf góð við Otta, gáfu hon-
um að borða á hátíðum og Hulda
kom honum í bað sem var ansi
erfitt. Kristinn Hákonarson yfirlög-
regluþjónn og Sólveig Baldvins-
dóttir sendu honum oft mat um
jólin og öðrum hátíðisdögum. Einn-
ig vinir hans í Reykjavík. Einstæð-
ingar eru oft látnir eiga sig en fyrr
á árum meira gert í því að gleðja
þá á hátíðum.
öánecýtivupciK,
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Ottó Wathne var ekki allra, hann
var einn af þeim mönnum sem setti
svip á bæinn okkar.
Nú eru flestir þessir sérstöku
menn gengnir til feðra sinna og
engir þeim líkir koma í staðinn.
Þeir voru nefnilega ansi vel gefnir
margir hverjir og kunnu að svara
fyrir sig.
Ottó var saklaus sál sem fólki
þótti vænt um. Hann kunni að
drekka kaffi af undirskál sem hann
hélt fallega á og ekkert fór niður
þótt hann væri með kreppta fingur.
Ég man vin minn alltaf, veri
hann kært kvaddur. Það verður
tekið vel á móti honum.
Krísuvík, 29. maí ’92,
Sveinn Björnsson.
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opift alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdadóttir og systir,
ANNA MARÝ SNORRADÓTTIR,
Syðra-Langholti,
Hrunamannahreppi,
sem lést í London þann 30. maí sl.,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju
föstudaginn 5. júní nk. kl. 14.00.
Sigmundur Jóhannesson,
Tinna Björk Sigmundsdóttir, Arna Þöll Sigmundsdóttir,
Snorri Ólafsson,
Jóhannes Sigmundsson, Hrafnhildur S. Jónsdóttir,
Nikolína Th. Snorradóttir, Sigurvin Ó. Snorrason,
Jón Freyr Snorrason, Þorbjörg Snorradóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HERBERT SVEINBJÖRNSSON
málari,
Víðilundi 20,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu, Akureyri, aðfaranótt sunnu-
dagsins 31. maí, verður jarðsunginn föstudaginn 5. júní kl. 13.30.
Athöfnin fer fram frá Akureyrarkirkju. Jarðsett verður í Saurbæ.
Friðrika Hallgrímsdóttir,
Hjörleifur Hallgríms,
Örn Herbertsson, Nanna Kristin Jósefsdóttir,
Rafn Herbertsson, Svala Tómasdóttir,
Hjörtur Herbertsson, Hanna Björg Jóhannesdóttir,
Sveinbjörn S. Herbertsson, Hansfna Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra, er sýnduð okkur vináttu og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns mfns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
HERMANNS SNORRA JAKOBSSONAR
frá Látrum f Aðalvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar, starfsfólks á Hlíf
og til lækna og hjúkrunarfólks Fjórðungssjúkrahússins á ísafirði.
Guðmunda Þorbergsdóttir,
Trausti Hermannsson, Sólveig Ólafsdóttir,
Helga Hermannsdóttir,
Jóhanna Hermannsdóttir, Jónas Guðmundsson,
Snorri Hermannsson, Auður H. Hagalfn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÓLAFAR HELGU FERTRANSDÓTTUR
frá Nesi f Grunnavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa hjúkr-
unar- og starfsfólki Hrafnistu, Reykja-
vík, fyrir hlýhug og góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Halldórsdóttir,
Gunnar Halldórsson,
Ólafur Halldórsson,
Ingólfur Halldórsson,
Margrét Halldórsdóttir,
Ragnheiður Halldórsdóttir,
Pétur Pétursson,
Álfhildur Friðriksdóttir,
Margrét Reimarsdóttir,
Anna Dóra Ágústsdóttir,
Gústaf Gústafsson,
Ingólfur Konráðsson,
Guðrún Björnsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Móðir mín og tengdamóðir,
ÞÓREY HELGA EINARSDÓTTIR,
Kleppsvegi 136,
sem lést þann 26. maí sl., verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju 5. júní
kl. 15.00.
Einar Ingi Hjálmtýsson, Kristfn Guðmundsdóttir.
t
HELGA INGVELDUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Bólstaðarhlfð 41,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 5.júníkl. 13.30.
Örn B. Ingólfsson, Hjördfs Óskarsdóttir,
Þorsteinn Ingólfsson, Hólmfrfður Kofoed-Hansen,
Guðrún Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.