Morgunblaðið - 04.06.1992, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1992
49
PENINGAR
Witt rær nú á
fyrirsætumiðin
Austur þýska skautadrottningin
Katarina Witt hefur látið
draum margra landa hennar ræt-
ast, en hann er að standa uppi með
fullar hendur fjár. Fátækt var og
er mikil í austurhluta hins samein-
aða Þýskalands, en Witt kvartar
ekki, hún hefur rakað saman háum
fjárhæðum. Hún er að sjálfsögðu
ánægð með það þó svo að frægðin
hafi haft sínar dökku hliðar, svo
sem einelti hugsjúkra aðdáenda,
sem hafa í verstu tilfellum elt hana
heimsálfa á milli. Hún er nú laus
við þann versta eftir mikla fyrir-
höfn, því sá gekk of langt, var
kærður og situr nú í fangelsi.
Eftir að Witt hætti að keppa, tók
hún til við að sýna skautadans við
rífandi fögnuð allra sem til sáu.
Gat hún þá ásamt félaga sínum
sýnt allt það besta þvingunarlaust,
enda engir dómarar við hliðarlín-
una. Enn sýnir Witt, en hún hefur . „ . „ .
fyrir nokkru ákveðið að græða ein^Wltt reynir fyr,r ser sem fynrsæta...
mikið á frægðinni og frekast er tæki eins og Kóka kóla, Danskin
kostur, enda sé ómögulegt að sjá og Du Pont og þáði milljónatugi
fyrir hvenær frægðarsólin gengur króna fyrir. Og nú er það nýjasta
til viðar. Því var hún meira en til-
kippileg að auglýsa fyrir stórfyrir-
að gera út á fyrirsætumiðin. Hún
nótar enga taxta á þeim slóðum,
heldur setur upp verð og í flestum
tilvikum er það reitt fram umyrða-
laust. Þar er einnig um milljónatugi
að ræða, því stórblöð ytra vilja
borga næstum endalaust fyrir góð-
ar myndir af frægu-fólki. Á með-
fýlgjandi mynd má sjá hvernig
Katarina Witt tekur sig út í hlut-
verki ljósmyndafyrirsætunnar.
Francesca Dellera.
ÁSTIN
*
Ottast um
sálarheill
ítalsks
krónprins
ótt ítalska kóngaíjölskyldan
hafi verið gerð landræk árið
1946 og dveljist í útlegð í Sviss,
fylgist almenningur á Italíu enn
grannt með gangi mála þar á bæ.
Krónprinsinn, Emanuel Filibertos,
stendur nú á tvítugu og er farinn
að líta í kring um sig og nú er
hvorki fjölskyldunni né ítölum al-
menn tum sel, því sú sem fangað
hefur hjarta hans heitir Francesca
Dellera, 26 ára gömul ítölsk leik-
kona. Kvíðinn allur stafar af því
að ungfrú Dellera lifir hátt og hef-
ur staðið í ótal ástarsamböndum
og hryggbrotið vonbiðlana hvern
af öðrum. Má nefna poppgoðið
Prince og franska leikarann og hjar-
taknúsarann Christopher Lambert,
„þessi með augun“.
Nýlega var ungfrú Dellera kjörin
kynþokkafyllsta ítalska leikkonan
af ungu kynslóðinni í mikilli skoð-
anakönnun á Italíu á dögunum og
sem slík fetar hún í fótspor glæsi-
kvenna á borð við Ginu Lollabrigidu
og Sophiu Loren. Henni er spáð
miklum frama í kvikmyndum, en
er þó talin þurfa að hemja líferni
sitt nokkuð. Þó hún sé vel þekkt
leikkona í heimalandi sínu, þekkja
ítalir hana þó enn betur vegna
barmsins sem þykir bæði stór og
föngulegur. Hefur verið fullyrt að
stúlkan hafí látið sprauta í hann
silikon, en fyrir það þvertekur hún.
Hún vill ekkert gefa út á sam-
band sitt við Filibertos prins, segir
bara að hann sé „sætur strákur og
skemmtilegur", en fjölskyldan hef-
ur við það að bæta að hann sé jafn-
framt bæði óharðnaður og við-
kvæmur. Og að hann sé svo ást-
fanginn af leikkonunni að óttast sé
að hann bíði skaða á sálu sinni ef
hún varpar honum fyrir róða eins
og aðra elskhuga sína til þessa.
IMjóttu ávaxtanna
Við erum afar stolt af vönduðum, íslenskum innréttingum
okkar. Samanburður á efnisvali og frágangi við erlenda
samkeppnisaðila okkar sannfærir okkur enn frekar um gæði
íslenskrar vöru. Við erum viss um að áherslur okkar á
hönnun og gæði skilar sér beint til kaupandans með
ánægjulegri notkun og lengri endingu.
Við kynnum tvær nýjar línur í eldhúsinnréttingum.
Fjölbreyttir möguleikar í efnisvali og samsetningu lita gefa
þér möguleika á að laga eldhúsið að þörfum þínum og
smekk.
Njóttu ávaxtanna af faglegum metnaði okkar. Veldu íslenska
hagleikssmíð - Ármannsfells innréttingar.
Funahöfða 19, sími 685680