Morgunblaðið - 17.01.1997, Síða 1
72 SÍÐUR B/C
13.TBL.85.ÁRG. FÖSTUDAGUR17. JANÚAR1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
ísraelar stefna að því að ljúka brottflutningi hermanna frá hverfum araba í Hebron í dag
Þingið sátt við
samkomulag-
ið um Hebron
Hebron. Reuter.
ÞING ísraels samþykkti í gærkvöldi
samkomulag ísraela og Palestínu-
manna um að flytja ísraelska her-
menn frá stærstum hluta Hebron og
stijálbýlum svæðum á Vesturbakkan-
um. Hermennimir í Hebron höfðu þá
þegar rifið niður varðstöðvar í borg-
inni og flutt í burtu megnið af bún-
aði herliðsins. Yitzhak Mordechai,
vamarmálaráðherra Israels, sagði að
brottflutningi hermanna frá þeim
hverfum borgarinnar, sem verða und-
ir stjóm Palestínumanna, ætti að
ljúka að mestu í kvöld.
Þingið samþykkti samkomulagið
með yfirgnæfandi meirihluta í at-
kvæðagreiðslu sem sýnd var í beinni
útsendingu í sjónvarpi. 87 þingmenn
studdu - samkomulagið, 19 greiddu
atkvæði gegn því og einn sat hjá.
„Við erum ekki að fara frá Hebr-
on, við emm að færa okkur til í borg-
inni,“ sagði Benjamin Netanyahu for-
sætisráðherra þegar hann ávarpaði
þingið fyrir atkvæðagreiðsluna.
Fallhlífahermenn voru sendir til
koma í veg fyrir mótmæli gyðinga í
Hebron og vernda hermennina meðan
þeir undirbjuggu brottförina frá
hverfum araba. Palestínskir embætt-
ismenn sögðu að ekkert væri því til
fyrirstöðu að 400 palestínskir lög-
reglumenn hæfu störf í borginni.
Deilt um túlkun
samkomulagsins
Þótt aðeins væru tæpir tveir sól-
arhringar frá því samkomulagið var
undirritað hófust deilur milli Israela
og Palestínumanna um túlkun þess.
Netanyahu sagði á þinginu að í bréfi,
sem Bandaríkjastjóm skrifaði til að
greiða fyrir samkomulaginu, kæmi
fram að Israelar ættu einir að ákveða
hversu stór svæði yrðu á valdi þeirra
eftir að brottflutningi hermanna frá
stijálbýlum svæðum á Vesturbakkan-
um lýkur í ágúst á næsta ári. Embætt-
ismenn PLO sögðust hins vegar túlka
samkomulagið þannig að ísraelar og
Aðeins 23% treysta Jeltsín
Moskvu. Reuter.
Varað við
efnahags-
hruni
ZHAN Vídenov, fráfarandi for-
sætisráðherra Búlgaríu, sagði í
gær að efnahagshrun blasti við
landinu ef Sósíalistaflokkurinn og
stjórnarandstaðan næðu ekki
samkomulagi um stjórnarmynd-
un. Vídenov ákvað í desember að
segja af sér og stjórnarandstaðan
hefur kennt honum um efnahags-
kreppuna. Zhelju Zhelev, fráfar-
andi forseti, sem veifar hér til
mótmælenda í Sofíu í gær, hefur
neitað að veita sósíalistum umboð
til að mynda nýja stjórn.
■ Óvissa eykst í Búlgaríu/19
ALEXANDER Lebed, fyrrverandi
leiðtogi rússneska öryggisráðsins,
nýtur meira trausts meðal Rússa en
nokkur annar stjórnmálamaður í
Rússlandi og aðeins tæp 23% þeirra
treysta Borís Jeltsín forseta, ef marka
má skoðanakönnun sem dagblaðið
Nezavísímaja Gazeta birti í gær.
Lebed kom langbest út úr þessari
könnun, sem náði til 2.200 manna
víðs vegar um Rússland og var gerð
í síðustu viku desembermánaðar.
58,4% aðspurðra sögðust treysta
Lebed og næstur kom Júrí Lúzhkov,
borgarstjóri Moskvu, með 42,7%. I
þriðja sæti var Grígorí Javlínskí,
fijálslyndur hagfræðingur, með
34,9% og á eftir honum kom Borís
Nemtsov, æðsti embættismaður
sjálfstjórnarsvæðisins Nísní Novg-
orod, með 34,4%. í fímmta sæti með
29,9% var Gennadí Zjúganov, leið-
togi kommúnista, sem beið ósigur
fyrir Jeltsín í kosningunum í júní.
Þegar spurt var hvernig stjórn-
málamönnunum myndi vegna ef efnt
yrði til forsetakosninga á næstu
mánuðum töldu 25,9% að Lebed
myndi sigra en 20,3% spáðu Zjúg-
anov sigri.
Lebed hefur skorað á Jeltsín að
segja af sér vegna heilsubrests frá
því forsetinn var lagður inn á sjúkra-
hús í Moskvu í vikunni sem leið og
segist staðráðinn í að verða næsti
forseti Rússlands.
Þingumræðu um afsögn
Jeltsíns frestað
Kommúnistar hafa beitt sér fyrir
atkvæðagreiðslu í Dúmunni, neðri
deild þingsins, um hvort Jeltsín eigi
að fara frá en forseti hennar, komm-
únistinn Gennadí Seleznjov, lagðist
gegn þeirri tillögu í gær. „Eg tel að
taka eigi þetta mál af dagskrá,"
sagði hann.
Viktor Iljúkhín, formaður örygg-
isnefndar Dúmunnar, sem stendur á
bak við tillöguna, sagði að þingmenn-
irnir vildu fá meiri tíma til að íhuga
hana og hún yrði því ekki rædd á
þinginu í dag, eins og ráðgert var.
Umræðunni yrði frestað til miðviku-
dags í næstu viku.
Hver bauð Lebed?
Lebed hefur skýrt frá því að hann
hafí þegið boð um að vera við emb-
ættistöku Bills Clintons Bandaríkja-
forseta á mánudag en í gær kom fram
að hvorki forsetinn né innsetningar-
nefndin, sem er skipuð leiðtogum
þingsins, kannast við að hafa boðið
honum. Öllum þingmönnum landsins
hefur verið úthlutað boðsmiðum og
talið er að einhver þeirra hafi boðið
rússneska stjómmálamanninum.
Milosevic boð-
ar umbætur
Belgrað. Reuter.
LEIÐTOGAR stjómarandstöðunnar í
Serbíu sögðu í gær, á 60. degi mót-
mælaaðgerða hennar, að setja ætti
stjóm landsins lokafrest til að viður-
kenna úrslit kosninganna, sem stjóm-
in lét ógilda í nóvember. Slobodan
Milosevic, forseti Serbíu, brást í gær
við þrýstingnum erlendis og heima
fyrir með því að boða uppstokkun í
stjórn landsins, efnahagsumbætur og
lausn pólitískra deilna með lýðræðis-
legum hætti.
„Árangur heildarefnahagsstefn-
unnar veltur að mestu leyti á þeim
mönnum, sem munu hrinda henni í
framkvæmd í ríkisstofnunum jafnt
sem í efnhags- og fjármálalífinu,"
hafði fréttastofan Tanjug eftir Mil-
osevic. „Þetta er vísbending um við-
eigandi uppstokkun í stjóminni.“
Stjómarandstaðan hélt uppteknum
hætti og efndi til mótmælafundar í
Belgrað. „Ég legg til að við gefum
þeim lokafrest til að viðurkenna kosn-
ingaúrslitin til fulls,“ sagði Vesna
Pesic, einn leiðtoga Zajedno, samtaka
stjómarandstöðuhreyfinga. „Þegar
þessi frestur rennur út fáum við alla
Serbíu til að rísa upp. Við höfum
enga ástæðu til að sóa meiri tíma.“
■ ÖSE áminnir Milosevic/20
Keut«r
ÍSRAELSKIR hermenn taka niður tjald við höfuðstöðvar hersins í Hebron og undirbúa brottflutn-
ing hersveitanna frá þeim borgarhlutum, sem verða undir stjórn Palestínumanna.
Palestínumenn ættu að semja um
þetta mál. Bandaríska utanríkisráðu-
neytið sagði á miðvikudag að ísraelar
ættu að ráða því hvaða svæðum þeir
héldu til að tryggja öryggi sitt.
Bandalag tíu róttækra hreyfinga
Palestínumanna fór í gær hörðum
orðum um samkomulagið og hótaði
að koma því fyrir kattamef. Banda-
lagið sagði samkomulagið fullnægja
öllum skilyrðum ísraela og vera „glæp
gagnvart palestínsku þjóðinni".
Bandaríkin
Tilræði í
fóstureyð-
ingastöð
Atlanta. Reuter.
TVÆR öflugar sprengingar
urðu í fóstureyðingamiðstöð í
Atlanta í Bandaríkjunum í gær
og talið var að um sprengjutil-
ræði hefði verið að ræða.
Nokkrir menn særðust í seinni
sprengingunni, aðallega lög-
reglu- og slökkviliðsmenn, sem
komu á staðinn eftir hina fyrri.
Að minnsta kosti íjórir
starfsmenn voru í fóstureyð-
ingamiðstöðinni þegar fyrri
sprengingin varð en engan
þeirra sakaði. Rúmri klukku-
stund síðar varð sprenging í
ruslatunnu á bílastæði við
bygginguna þegar lögreglu- og
slökkviliðsmenn voru komnir á
staðinn. Lögreglan var með
mikinn öryggisviðbúnað við
a.m.k. sex fóstureyðingastöðv-
ar í Atlanta og nágrenni.