Morgunblaðið - 17.01.1997, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
-1-
Neyðarlínan, einn, einn, tveir
Hátt í fimm
hundruð símtöl
á nýársnótt
NEYÐARHRINGINGUM til Neyð-
arlínunnar 112 hefur fjölgað jafnt
og þétt frá því hún tók formlega til
starfa hinn 1. janúar 1996. Að sögn
Eiríks Þorbjörnssonar fram-
kvæmdastjóra Neyðarlínunnar hf.
eru nú um 300-600 símtöl afgreidd
á einum sólarhring og þar á meðal
eru alltaf einhver alvarleg tilfelli.
Neyðarlínan, sem er hlutafélag í
eigu sjö aðila, starfar samkvæmt
lögum um samræmda neyðarsím-
svörun í landinu og er fyrst og
fremst ætlað að sinna viðtöku til-
kynninga um fólk og eignir í neyð
og beiðnum um aðstoð lögreglu,
slökkviliðs, lækna og björgunar-
sveita.
Eiríkur segir í samtali við Morg-
unblaðið að á einstaka tímum hafi
verið mjög mikið hringt í Neyðarlín-
una og nefnir sem dæmi nýársnótt-
ina.
„Þá var hringt stanslaust til okk-
ar frá kl. 23 á gamlárskvöld til kl.
9 næsta morgun og afgreiddum við
samtals um 500 símtöl ---------
víðs vegar af landinu.
Þetta voru aðallega til-
kynningar um lítils háttar
slys, m.a. af völdum flug- ____
elda,“ segir hann, en nefn-
ir einnig að samfara fleiri neyðar-
hringingum til Neyðarlínunnar hafí
svonefndum „gabbsímtölum" fækk-
að, eða því að krakkar og unglingar
séu að gera at. „Eitt af því sem við
höfum gert til að koma í veg fyrir
manna
það er að fara út í skólana og kynna
fyrir bömum og unglingum hver
alvaran er,“ segir hann.
Sérhannað húsnæði fyrir
Neyðarlínuna
Þegar Neyðarlínan tók upphaf-
lega til starfa hafði hún aðstöðu á
tveimur stöðum; hjá vaktstöð Slysa-
varnafélags íslands og hjá varðstofu
Slökkviliðsins í Reykjavík. Fyrir um
hálfu ári flutti starfsemi Neyðarlín-
unnar í sérhannað húsnæði í eigu
Reykjavíkurborgar í Skógarhlíð 14,
við hlið Slökkvistöðvarinnar. Síðan
þá hefur verið unnið að frekari und-
irbúningi starfseminnar, þar sem
fullkomið tölvu- og símakerfi hefur
m.a. verið fullreynt, en það kerfi
mun endanlega verða tekið í gagnið
á miðvikudaginn í næstu viku.
„Þetta kerfi flytur símtöl inn á
tölvuna, sem gerir starfsmönnum
Neyðarlínunnar m.a. kleift að sjá á
skjánum úr hvaða númeri er hringt
og hver er skráður fyrir símanum.
Þá geta þeir kallað fram
kort af landinu til að sjá
nákvæmlega hvaðan er
hringt eða fengið fram
upplýsingar sem sýna
réttan útkallsaðila, til
dæmis næstu lögreglu- eða slökkvil-
iðsstöð. Einnig geta þeir fært símtöl
á milli með því að ýta á einn takka,
svo fátt eitt sé nefnt af þeim ljöl-
mörgu möguleikum sem fyrir hendi
eru,“ segir Eiríkur.
„Mikiar kröfur
til starfs-
FRETTIR
Hann nefnir einnig í því sam-
bandi að búið sé að hnita inn eða
staðsetja á landakortinu yfir 6.000
sveitabæi, þannig að sé hringt frá
einhverjum þessara sveitabæja, sé
hægt að vita nákvæmlega hvar hann
er á landinu.
„Þegar hringt er úr farsíma get-
ur tölvan á hinn bóginn ekki gefið
upplýsingar um staðsetningu sím-
ans, aðeins hver sé skráður fyrir
honum. Sérfræðingar Pósts og
síma eru hins vegar að vinna að
lausn þessa vandamáls," segir
hann.
Þá getur Eiríkur þess að ýmsar
neyðaráætlanir séu í gangi bregðist
tölvu- eða símakerfið af einhveijum
ástæðum og að auki sé það marg-
tryggt hjá Neyðarlínunni að símtöl
berist alltaf inn.
„Oll þessi tækni miðar að því að
geta brugðist fljótt og örugglega
við þeim neyðarsímtölum sem hing-
að berast. Aðili í neyð þarf bara
að hringja í númerið einn, einn,
tveir og við hjá Neyðarlínunni hætt-
um ekki fyrr en búið er að ná í
einhvern til að hjálpa viðkomandi,"
segir hann.
í vafatilfellum er betra að
hringja en láta það ógert
Hjá Neyðarlínunni eru venjulega
fjórir starfsmenn á vakt á nóttunni
en fimm að degi til, en á álagstímum
eru fleiri kallaðir út. Aðstaða er
fyrir níu til tíu manns til að svara
númerinu. „Þá eru ijörutíu línur inn
í Neyðarlínuna og fólk getur treyst
á að því verði svarað svo lengi sem
hringir," segir Eiríkur.
Hann bendir hins vegar á að
stundum komi það fyrir að hringt
sé úr mörgum símum út af sama
atvikinu. „Þá er líklega á tali hjá
okkur. Ef svo er, má jafnvel gera
ráð fyrir því að við séum að bregð-
ast við atvikinu. Sá sem
hringir getur hins vegar
haldið áfram að hringja til
að vera viss í sinni sök,“
segir hann.
Eiríkur telur að það sé
í raun erfitt að segja mönnum hve-
nær ástæða sé til að hringja í Neyð-
arlínuna og hvenær ekki. „Ég held
það sé best að meta þetta þannig
að telji viðkomandi sjálfur að um
neyð sé að ræða þá eigi hann ekki
að hika við að hringja. Það kostar
ekkert, hvaðan sem hringt er á land-
inu og óháð því hvernig síma er
hringt úr. Til dæmis er hægt að
hringja í Neyðarlínuna úr almenn-
ingssímaklefa án þess að setja mynt
í símann,“ segir hann.
Heimtaði sjúkrabíl fyrir
dúkkuna sína
Þá leggur Eiríkur áherslu á mikil-
vægi þess að fræða börn og ungl-
inga um Neyðarlínuna og kenna
þeim símanúmerið. „Gott er til
dæmis að brýna fyrir börnum hve-
nær sé nauðsynlegt að hringja í
neyðarlínuna og hvenær ekki. Ann-
ars gætu þau átt í erfiðleikum með
að meta það hvenær sé um raun-
verulega neyð að ræða,“ segir hann
og nefnir sem dæmi litla sögu sem
gerðist fyrir nokkru.
„Eitt sinn hringdi lítil hnáta til
okkar og heimtaði sjúkrabíl, því
hausinn væri dottinn af dúkkunni
hennar. Sá sem svaraði reyndi að
útskýra fyrir henni að þetta væri
nú bara dúkka og þyrfti því ekki
aðstoð Neyðarlínunnar. Telpan þrá-
aðist hins vegar við og taldi mjög
mikilvægt að fá lækni á staðinn.
Eftir nokkurn tíma sagði hún eitt-
hvað á þessa leið: „Heyrðu hann
Nonni bróðir er búinn að setja haus-
inn aftur á dúkkuna, svo þetta er
allt í lagi.“ Og þar með kvaddi hún.“
Auk þess segir Eiríkur að menn
eigi að segja börnum að númerið
hjá Neyðarlínunni sé einn, einn,
tveir, en ekki eitthundrað og tólf,
„því auðveldara er fyrir börn að
læra fyrri tölurnar," segir hann.
Að sögn Eiríks eru gerðar miklar
kröfur til starfsmanna
Neyðarlínunnar, þeir
skulu hafa hlotið almenna
menntun sambærilega
við stúdentspróf, auk
þjálfunar og starfs-
reynslu á vegum þeirra aðila sem
sinna neyðarþjónustu. „Þá höldum
við sérstök námskeið fyrir starfs-
mennina og byggjum þau á aðferðum
frá meginlandi Evrópu og Bandaríkj-
unum,“ segir hann að síðustu.
„6.000
sveitabæir
staðsettir"
Aukakirkjuþing
haldið í næstu viku
AUKAKIRKJUÞING verður haldið
í næstu viku og hefst það á þriðju-
dag. Reglulegt kirkjuþing, sem
haldið var í október sl., samþykkti
að boða til aukaþings í vetur þegar
lokið væri undirbúningi að tveimur
málum sem gefin var áfangaskýrsla
um á þinginu. En þessi ákvörðun
var tekin með tilliti til þess að Al-
þingi afgreiði þessi mál nú þegar á
vorþinginu, ef aukakirkjuþingið
samþykkir þau.
I fréttatilkynningu frá biskups-
stofu segir: „Um er að ræða annars
vegar hið mikla frumvarp um stöðu,
stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunn-
ar, sem tekur á flestum málum, sem
snerta Þjóðkirkjuna, starf hennar
og skipulag. Og hins vegar eru til-
lögur kirkjueignanefndar, sem hefur
starfað síðastliðin ár og er skipuð
annars vegar fulltrúum kirkjunnar
og hins vegar ráðuneytisstjórum
þeirra ráðuneyta sem ábyrgð hafa
borið á þessum málum fyrir hönd
ríkisins.
Bæði þessi mál náðu iokaaf-
greiðslu viðkomandi nefndar nú í
janúar og aukakirkjuþing hefur þess
vegna verið boðað þriðjudaginn 21.
janúar. Hefst það með guðsþjónustu
í Bústaðakirkju þar sem þingið fer
fram að venju kl. 10 árdegis. Vakin
er athygli á því að þingið hefst fyr-
ir hádegi en ekki kl. 2 eins og venja
hefur verið. Við messuna prédikar
dr. Gunnar Kristjánsson og ásamt
honum þjónar sr. Dalla Þórðardóttir
fyrir altari en þau eru bæði kirkju-
þingsmenn. Að messu lokinni setur
herra Ólafur Skúlason, biskup, þing-
ið og kosnir verða varaforsetar og
skipað í nefndir.
Eftir hádegishlé heQast fundir
aftur kl. 3 og þá mun kirkjumálaráð-
herra ávarpa þingið og flytja fram-
sögu fyrir fyrrgreinda málinu um
stöðu, stjórn og starfshætti Þjóð-
kirkjunnar. Nefndir hafa unnið að
því máli nokkuð lengi, nú síðast
stýrði Hjalti Zophoníasson starfi
nefndarinnar en þar áður var dr.
Gunnar _ Kristjánsson formaður
hennar. í frumvarpinu felast grund-
vallarbreytingar á samstarfí og
samskiptum kirkju og ríkis og fær-
ast flestir þættir í skipulagi kirkj-
unnar, sem fyrr hafa verið á valdi
Alþingis, undir stjóm kirkjunnar
beint. Ér þar með talin skipan
prestakalla og prófastsdæma og
mun kirkjuþing taka það vandasama
mál til meðferðar og ekki aðeins
gera tillögur um ný mörk, heldur
ákveða þau. Margt fleira er vitan-
lega til meðferðar í þessu frumvarpi
og miklar breytingar sem fylgja
því. Og verði frumvörpin að lögum
nú, mun kirkjuþing í haust hafa
nýtt umboð og aukið valdsvið.
Hitt málið, samkomulag „um
kirkjujarðir og launagreiðslur presta
og starfsmanna Þjóðkirkjunnar,
verður síðan á dagskrá kirkjuþings-
ins til fyrri umræðu á miðvikudag-
inn. Þama er um tímamótaáfanga
að ræða og hefur verið árum saman
til umræðu, eða alveg frá 1907 að
heita má, þegar ríkið tók að sér að
greiða laun presta i staðinn fyrir
yfirtöku á jarðeignum, sem fyrr
höfðu tilheyrt kirkjunni. Nú er
skrefið stigið enn lengra og stefnan
skýrar mörkuð. Mun Gunnlaugur
Finnsson flytja málið við fyrri um-
ræðu og gera grein fyrir því en for-
menn kirkjunefndarinnar hafa verið
þeir sr. Þórhallur Höskuldsson og
eftir fráfall hans sr. Þorbjörn Hlyn-
ur Árnason en formaður nefndar
ráðuneytisstjóranna hefur verið Þor-
steinn Geirsson.
í samkomulaginu, sem tekur gildi
við samþykki ríkisstjórnar, Alþingis
og kirkjuþings, felst, að kirkjujarðir
og aðrar kirkjueignir, sem þeim
fylgja, að frátöldum prestssetrum
og því sem þeim fylgir, verða eign
íslenska ríkisins. En í staðinn tekur
ríkið að sér að greiða laun presta
Þjóðkirkjunnar og starfsmanna
biskupsembættisins. Er gert ráð
fyrir 138 prestsembættum auk bisk-
ups og vígslubiskups og 18 starfs-
manna biskupsembættisins.
Allir eru boðnir velkomnir til
messunnar og fundir kirkjuþings
eru opnir fyrir áheyrendur, ef ekki
er annað ákveðið.“
ÚTSALA - ÚTSALA
10-60% afsláttur
Barnaúlpur kr. 4.490.
Fullorðinsúlpur frá kr. 4.990.
íþróttagallar barna kr. 2.990.
íþróttagallar fullorðins kr. 3.990.
Barnaskíðagallar frá kr. 4.990.
Skíðagallar fullorðins frá kr. 7.990.
íþróttaskór með góðum afslætti o.m.fl.
Nýtt kortatfmabil
Opið laugardag
kl. 10-16
»hummél •
SPORTBÚÐIN
Nóatúni 17, sími 511 3555
4-