Morgunblaðið - 17.01.1997, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Hlíðarfjall
Allar
lyftur í
gangi
MIKIL snjókoma síðustu daga
hefur skilað sér í miklum og
góðum snjó í Hlíðarfjalli
„þannig að nú sýnum við fuil-
an styrk,“ segir ívar Sig-
mundsson forstöðumaður en
allar lyftur verða opnar um
næstu helgi.
Tvær til þrjár lyftur hafa
verið opnar síðustu vikur og
hefur aðsókn að sögn ívars
verið viðunandi. Hann telur
að framundan sé góð skíðatíð,
hún byrji í það minnsta betur
en oft áður.
Dagskort í lyftur fyrir full-
orðna í Hlíðarfjalli kostar 950
krónur og 400 krónur fyrir
börn. Gjaldskrá hefur ekki
hækkað síðustu fjögur ár.
Fram komu á fundi bæjar-
stjómar í vikunni vangaveltur
um að gjaldskráin væri of há,
margir teldu sig ekki hafa
efni á að stunda íþróttina.
Komu fram hugmyndir um
hvort ekki væri hægt að ná
inn sömu tekjum þó gjaldið
yrði lækkað, en fá á móti fleiri
iðkendur. Ætlunin er á næst-
unni að fara almennt í gjald-
skrár á vegum bæjarins.
Dalvíkur-
prestakall
Fimm
umsóknir
FIMM umsóknir bárust um
stöðu sóknarprests í Dalvíkur-
prestakalli. Séra Jón Helgi
Þórarinsson sem gengt hefur
stöðu sóknarprests síðustu ár
hefur verið ráðinn sóknar-
prestur í Langholtskirkju í
Reykjavík.
Þeir sem sóttu um eru Arn-
aldur Bárðarson, sóknarprest-
ur á Raufarhöfn, Magnús G.
Gunnarsson, sóknarprestur á
Hálsi í Ljósavatnshreppi, Stína
Gísladóttir, sóknarprestur í
Bólstaðahlíðaprestakalli í
Húnavatnssýslu, Bára Frið-
riksdóttir, guðfræðingur,
brautskráð árið 1995, og
Sveinbjörg Pálsdóttir, guð-
fræðingur, brautskráð árið
1988.
Fjórar sóknir eru í Dalvíkur-
prestakalli, Upsasókn á Dal-
vík, Urðarsókn, Tjarnarsókn
og Vallarsókn.
Prófastur mun boða til kjör-
mannafundar innan skamms
þar sem nýr sóknarprestur
verður valinn.
r
Tillaga að breytingum félags- og fræðslusviðs
Sviðinu verði skipt upp
JAKOB Bjömsson, bæjarstjóri á
Akureyri, lagði fram tiilögu á fundi
bæjarráðs um skipulagsbreytingar á
félags- og fræðslusviði Akureyrar-
bæjar, en þær fela í sér að sviðinu
verði skipt í tvö svið, félags- og heil-
sugæslusvið annars vegar og
fræðslu- og frístundasvið hins vegar.
Samfara þessari skiptingu yrðu gerð-
ar breytingar á nefndaskipan.
Félags- og fræðslusvið Akureyrar-
bæjar er orðið mjög umfangsmikið
og sífellt hafa bæst við ný verkefni.
Grunnskólar hafa verið færðir yfir
til sveitarfélaga, og sem reynslu-
sveitarfélag hefur bærinn tekið við
málefnum fatlaðra og rekstri Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri.
íþróttir og menning
í sömu nefnd
Samkvæmt tillögunum er gert ráð
fyrir að ein nefnd starfí undir fé-
lags- og heilsugæslusviði — félags-
mála- og heilsugæsluráð — en undir
það myndu heyra atvinnudeild sem
tók við af Vinnumiðlunarskrifstofu,
búsetudeild sem hefur með öldrunar-
þjónustu og sambýli fatlaðra auk
fleiri verkefna að gera, ráðgjafar-
deild og heilsugæslustöðin.
Undir fræðslu- og frístundasviði
yrðu tvær nefndir, skólanefnd sem
hefði á sinni könnu grunn-, leik- og
tónlistarskóla og íþrótta-, menning-
ar- og tómstundaráð sem myndi
sinna íþróttamálum, íþróttamann-
virkjum, tómstunda- og menningar-
málum sem og söfnum á Akureyri.
Morgunblaðið/Kristján
Snjó kyng-
ir niður
MIKIL snjókoma var norðan-
lands í gær en hægviðri víðast
hvar. Sums staðar var þó leið-
indaveður og varð til að mynda
að fresta skólahaldi í Lundar-
skóla í Oxarfirði og Stórutjarna-
skóla í Ljósavatnsskarði.
Innanlandsflug gekk brösug-
lega af þessum sökum, ekkert
var hægt að fljúga hvorki frá
Akureyri né til í allan gærdag.
Athuga átti hvort eitthvað myndi
rofa til í gærkvöld.
Allar helstu leiðir voru færar
samkvæmt upplýsingum vega-
eftirlits Vegagerðarinnar^en
snjómoksturstæki voru á Oxna-
dalsheiði og héldu henni opinni
fram eftir degi.
Þorsteini Jónssyni, bónda á
Moldhaugum í Glæsibæjar-
hreppi, Ieist ekki á veðrið síð-
degis og fór því út að huga að
hrossum sínum, en hann vildi
heldur vita þau í húsi í snjókom-
unni.
Morgunblaðið/Kristján
JAKOB Björnsson bæjarstjóri klippti á borða og opnaði þar með göngu-
götuhluta Hafnarstrætis fyrir bílaumferð í gær, en var svo boðið að
aka fyrsta rúntinn í þessum gamla Ford frá fjórða áratugnum.
Tilboð óskast
Tilboð óskast í bifreið, sem er skemmd eftir
Göngugata opn-
uð bílaumferð
umferðaróhapp. Bifreiðin er af greðinni Renault
Laguna, árg. 1996, og verður til sýnis á
Tjónaskoðunarstöðinni, Fjölnisgötu 6 á Akureyri,
mánudaginn 20. janúar og skal tilboðum skilað inn
fyrir kl. 17.00 sama dag.
TKYGGING HF Hofsbót 4 - 600 Akureyri - sími 462 1844.
V
GÖNGUGATAN í Hafnarstræti var
formlega opnuð fyrir bflaumferð í
gær, en um tilraun er að ræða sem
stendur til loka maímánaðar.
Ekið verður frá Kaupvangsstræti
og norður Hafnarstræti að Ráðhús-
torgi og þaðan austur eftir torginu
sunnan megin að Skipagötu.
Þó svo að umferð bifreiða sé nú
leyfð á ný verður gatan svonefnd
vistgata en í því felst að gangandi
vegfarendur eiga ætíð réttinn um-
fram bílaumferð.
Þijú bílastæði eru við Hafnar-
stræti 99-101, tvö fyrir fatlaða og
eitt fyrir gesti Heilsugæslustöðvar-
innar á Akureyri og þijú bifreiða-
stæði eru við Hafnarstræti 107, tvö
fyrir fatlaða og eitt almennt með
10 mínútna hámarksstöðutíma.
Fyrsti bíllinn sem ók „gamla rúnt-
inn“ að nýju var elsti gangfæri bíll-
inn á Akureyri, Ford A, árgerð
1930 í eigu Ólafs B. Guðmundsson-
ar.
Rannsókn innbrots-
mála á Akureyri
Tveir til
viðbótar í
gæslu-
varðhald
TVEIR menn á tvítugsaldri sem
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri handtók í vikunni í tengsl-
um við nokkur innbrotsmál í
bænum, hafa verið úrskurðaðir
í gæsluvarðhald til nk. mánu-
dags. Þriðji maðurinn sem
handtekinn var á sama tíma
hefur verið látinn laus úr haldi.
Áður hafði ungur maður ver-
ið úrskurðaður í gæsluvarðhald
til laugardags í tengslum við
þessi innbrotsmál. Einn fjór-
menninganna hefur viðurkennt
aðild að sex innbrotum. Málið
er enn í rannsókn en það teng-
ist m.a. innbrotum í Ding Dong,
veitingastaðinn Við Pollinn,
Tryggingamiðstöðina, Tré-
smíðaverkstæði Iðju, vinn-
uskúra hjá SJS-verktökum og
skrifstofuhúsnæði Skógrækt-
arfélags Eyfírðinga í Kjama-
skógi. Þá leikur grunur á að
enn fieiri innbrot tengist mál-
inu.
Vetrarsport
’97 í íþrótta-
höllinni um
helgina
VÉLSLEÐA-, bíla- og útilífs-
sýningin Vetrarsport ’97 verður
haldin í íþróttahöllinni á Akur-
eyri laugardaginn 18. og
sunnudaginn 19. febrúar. EY-
LÍV, félag vélsleðamanna í
Eyjafirði stendur fýrir sýning-
unni.
Öll vélsleðaumboð landsins
sýna það nýjasta og besta sem
þau hafa upp á að bjóða og öll
helstu bílaumboðin sýna 4X4
bíla sína og helstu nýjungar
varðandi breytingar á jeppabif-
reiðum. Þá verður allt það nýj-
asta í útivistarfatnaði til sýnis
í Höllinni og margt fleira sem
tengist útilífi og fjallaferðum.
Sýningin er opin 10-17 á
laugardag og 13-17 á sunnu-
dag. Laugardagskvöldið 18.
janúar verður árshátíð EY-LIF
haldin í Sjallanum á Akureyri
og hefst borðhald kl. 19.30.
Iþróttamað-
ur Þórs út-
nefndur í
kvöld
KJÖRI Iþróttamanns íþrótta-
félagsins Þórs verður lýst í hófi
í Hamri í kvöld kl. 20.00. Jafn-
framt verða útnefndir bestu ein-
staklingar einstakra keppnis-
greina.
Átta íþróttamenn voru til-
nefndir í kjörinu að þessu sinni.
Knattspyrnumennimir Páil
Gíslason og Hreinn Hringsson,
handknattleiksmennirnir Atli
Már Rúnarsson og Ingólfur
Samúelsson, körfuknattleiks-
mennirnir Konráð Óskarsson og
Hafsteinn Lúðvíksson og skíða-
mennirnir Jóhann Þórhallsson
og Rögnvaldur Bjömsson.
Þórsarar og aðrir velunnarar
félagsins eru hvattir til að
mæta í Hamar í kvöld, þiggja
kaffiveitingar og fylgjast með
útnefningu bestu íþróttamanna
félagsins.