Morgunblaðið - 17.01.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997 15
LANDIÐ
Fyrrum framkvæmdasljóri Útgerðarfélags Bílddælinga hf.
Dæmdur til fangelsisvist-
ar fyrir skattalagabrot
Isaljörður - Fyrrum framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Bfldælinga hf.
á Bfldudal hefur fyrir héraðsdómi
Vestfjarða verði dæmdur til 10
mánaða fangelsisvistar fyrir brot á
skattalögum. Fyrrum stjórnar-
formaður fyrirtækisins var sýknað-
ur af kröfum ákæruvalds í málinu.
í dómsorði segir að fresta skuli
fullnustu 8 mánaða af refsivist
framkvæmdastjórans fyrrverandi
og að hún skuli niður falla að liðn-
um tveimur árum frá dómsbirtingu
haldi ákærði almennt skilorð 57.
gr. almennra hegningarlaga. Þá
var framkvæmdatjóranum gert að
greiða birtingu dómsins ella sæta
varðhaldi í 3 mánuði. Fram-
kvæmdastjóranum var einnig gert
að greiða 100.000 kr. saksóknara-
laun til ríkissjóðs auk þess sem
honum var gert að greiða 2/3 hluta
annars sakarkostnaðar. Málsvam-
arlaun veijanda stjórnarformanns-
ins, kr. 150.000, greiðast af ríkis-
sjóði.
Málið var höfðað með ákæm
ríkissaksóknara, dags. 30. apríl
1996, á hendur fyrmm fram-
kvæmdastjóra Útgerðarfélags
Bílddælinga hf. og fyrram stjóm-
arformanni fyrirtækisins fyrir fjár-
drátt og brot á skattalögum, sem
framin voru á ámnum 1992 og
1993 í rekstri Útgerðarfélags Bíld-
dælinga hf. sem úrskurðað var
gjaldþrota 20. ágúst 1993. Ákærðu
var gefið að sök að hafa á ámnum
1992 og 1993 vanrækt að standa
ríkissjóði skil á virðisaukaskatti að
fjárhæð kr. 10.985.285, sem inn-
heimtur var af félaginu. Þá var
ákærðu gefið að sök að hafa á
árinu 1993 vanrækt að standa rík-
issjóði skil á kr. 764.502, sem þeir
héldu eftir af launum starfsmanna
félagsins samkvæmt ákvæðum
laga um staðgreiðslu opinberra
gjalda.
Þá var ákærðu gefíð að sök að
hafa á árunum 1992 og 1993, við
útborgun launa til starfsmanna
félagsins, haldið eftir af launum
samtals kr. 769.773, sem ganga
átti til greiðslu á iðgjöldum starfs-
manna til lífeyrissjóða og stéttarfé-
laga, en eigi staðið skil á því fé
eins og skylt var samkvæmt 2.
málslið 2. gr. og 2. mgr. 6 gr. laga
um starfskjör launafólks og
skyldutryggingu lífeyrisréttinda
nr. 55/1980, heldur dregið félag-
inu fé og notað í rekstur þess.
í niðurstöðu dómsins segir að
annar ákærðu hafi verið fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Bíld-
dælinga hf. frá upphafi og beri því
ábyrgð á daglegum rekstri félags-
ins, þar á meðal fjárreiðum. Hinn
aðilinn var á sama tíma formaður
stjórnar, en lét af störfum á skrif-
stofu félagsins 15. júlí 1992 og
hafði eftir það engin afskipti af
daglegum rekstri þess. Sá fram-
kvæmdastjórinn þannig um inn-
heimtu og skil á virðisaukaskatti
og afdreginni staðgreiðslu opin-
berra gjalda á því tímabili, sem
1. og 2. kafli ákærðu lúta að, og
bar ábyrgð á að haldið væri eftir
af launum starfsmanna félagsins
iðgjöldum tii þeirra lífeyrissjóða
og stéttarfélaga, sem tilgreind eru
í ákæm.
Þá segir í niðurstöðu dómsins
að hvorki verði ráðið af framburði
ákærðu, vitna, né framlögðum
gögnum, að framkvæmdastjórinn
hafí rætt sérstaklega á stjómar-
fundum eða upplýst stjóm með
öðmm hætti um, að félagið stæði
ekki skil á framangreindum gjöld-
um. Er þannig ósannað, gegn neit-
un ákærða, fyrrum formanns
stjórnar, að hann hafí vitað eða
mátt vita um þau vanskil félags-
ins. „Ber því að sýkna hann af
ákæra í málinu,“ eins og segir í
dómsniðurstöðu.
Veijandi stjórnarformannsins
fyrrverandi í málinu var Ágúst
Sindri Karlsson hdl. Veijandi fram-
kvæmdastjórans fyrrverandi var
Gunnar Jakobsson hdl. Gunnar lýsti
því yfir á málflutningsdegi að hann
krefðist ekki greiðslu málsvamar-
launa. Dóminn kvað upp Jónas Jó-
hannsson héraðsdómari.
Minkarækt
endurvakin í
Reykjahverfi
Laxamýri - Minkarækt er hafin
að nýju á bænum Skógarhlíð í
Reykjahverfi og þar eru nú 600
læður og 130 högnar í skála sem
verið hefur í eyði um árabil. Það
er fyrirtækið Stekkjarholt ehf.
sem hefur hafið rekstur í húsinu
og er eign Örlygs Hnefils Jónsson-
ar og Gunnars Gunnarssonar.
Markmiðið er að nýta þær fjár-
festingar sem fyrir hendi eru í
hreppnum til minkaræktar en á
jörðunum Skógahlið og Stekkjar-
holti er um 2200 fm húsnæði að
ræða með búrum og ððrum útbún-
aði.
Læðurnar sem keyptar voru
komu aðallega frá bænum Hrísum
í Vopnafirði en 100 dýr komu frá
tilraunabúinu á Hvanneyri og er
um aldanskar læður að ræða sem
ætlað er að kynbæta stofninn.
Ef vel gengur má búast við
3000 hvolpum að vori og ætlun
fyrirtækisins er að færa út
kvíarnar þannig að ásettar læður
verði 1000-1200 læður að ári
liðnu. Þvi má reikna með að bú
þetta færi 2-3 störf í sveitina en
ráða þarf aukafólk á álgastimum.
Þá má geta þess að Stekkjar-
holt ehf. hefur keypt skinnaverk-
unarstöð frá Hvanneyri og ætl-
unin er að setja hana upp i Skóg-
hlíð þar sem ákjósanleg aðstaða
er fyrir hendi.
Fyrrum framkvæmdastjóri
Júpíters hf. í Bolungarvík
*
Akærður fyrir
22,7 milljóna króna
skattalagabrot
ísafirði - Ríkissaksóknari hefur
höfðað opinbert mál fyrir héraðs-
dómi Vestfjarða á hendur fyrmm
framkvæmdastjóra Júpíters hf. í
Bolungarvík sem úrskurðað var
gjaldþrota 16. apríl 1993 fyrir brot
á lögum um virðisaukaskatt, brot
á lögum um staðgreiðslu opinberra
gjalda og fjárdrátt. Nýtt þinghald
í málinu fer fram 26. febrúar nk.
og er málflutningur ráðgerður í
mars.
Ákærða er gefið að sök að hafa
eigi staðið innheimtumanni ríkis-
sjóðs skil á virðisaukaskatti sem
félagið hafði innheimt á ámnum
1992 og 1993, samtals að fjárhæð
11.184.010 kr. Þá er ákærða gefíð
að sök að hafa eigi staðið ríkis-
sjóði skil á 8.978.419 kr. sem hald-
ið hafði verið eftir af launum
starfsmanna félagsins á ámnum
1992 og 1993, samkvæmt ákvæð-
um laga um staðgreiðslu opinberra
gjalda nr. 45/1987, sbr. lög nr.
90/1987. Ákærða er einnig gefið
að sök að hafa eigi staðið Lífeyris-
sjóði Bolungarvíkur skil á lífeyris-
sjóðsgjöldum, samtals 2.630.575
kr. sem haldið var eftir við útborg-
un launa starfsmanna félagsins á
árunum 1992 og 1993 til greiðslu
iðgjalda þeirra til lífeyrissjóðsins.
Ríkissaksóknari hefur krafist
þess að ákærði verði dæmdur fyrir
framangreint brot. Ákærði kvaðst
fyrir héraðsdómi ætla að halda
uppi vörnum í málinu, en sagðist
engu að síður vera reiðubúinn að
tjá sig stuttlega um ákæmna.
Hann taldi sig ekki hafa gerst brot-
legan við þau ákvæði laga sem
tilgreind era í ákæru en varðandi
1. og 2. kafla ákæmskjals er lýtur
að broti á lögum um virðisauka-
skatt og broti á lögum um stað-
greiðslu opinberra gjalda, sagði
ákærði hafa verið í gildi samkomu-
lag milli Júpíters hf. og innheimtu-
manns ríkissjóðs um skil á um-
ræddum gjöldum. Þá hafí einnig
verið fyrir hendi samkomulag milli
félagsins og Lífeyrissjóðs Bolung-
arvíkur um skil á lífeyrissjóðsgjöld-
um.
Ákærði kvaðst því hvorki hafa
gerst sekur um fjárdrátt né brotið
gegn lögum um virðisaukaskatt,
lögum um staðgreiðslu opinberra
gjalda eða 262. gr. almennra hegn-
ingarlaga.
Sigmundur Hannesson hrl. hef-
ur verið skipaður veijandi ákærða
í málinu en Ólafur Helgi Kjartans-
son, sýslumaður á ísafirði, sækir
málið af hálfu ákæruvaldsins.
Byggingaplatan \fl][]3©(3*
sem allir hafa beðið eftir
\ÍÍ1B@(§' byggingaplatan er fyrir
veggi, ioft og gólf
Wð@@’byggingaplatan er eldþolin,
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
'íífKSSÆ byggingaplatan er hægt
að nota úti sem inni
\ÍD0@S byggingaþlatan
er umhverfisvæn
PP
&co
^1®@<§ byggingaplatan er platan
sem verkfræðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
Leitið frekari upplýsinga
Þ. ÞOHGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 • S: 553 8640 & 568 6100
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Reykjavík S. 5 I I 2200
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
BÚSTJÓRI Stekkjarholts ehf. Björn Ófeigur Jónsson og kona hans Alice Gestsdóttir.