Morgunblaðið - 17.01.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997 17
URVERINU
Ráðstefna um þjálfun og nýsköpun í evrópskum fiskiðnaði
Stefnt að aukinni samkeppnis-
hæfni fyrirtækja í fiskiðnaði
Kynning á áætlunum ESB og styrktarmöguleikum samvinnuverkefna í fiskiðnaði
Morgunblaðið/Sigurgeir
STEFNT er að því að auka samkeppnishæfni íslenzkra fyrirtækja í fiskiðnaði með ýmsum hætti.
VIÐSKIPTI
Ársf jórðungsleg þróun
neysluverðs 1995-1997
Spá Seðlabankans
vegna 1. ársfjórðungs
Verðlag
hækkar
um 0,2%
VÍSITALA neysluverðs hækkaði
um 0,1% milli þriðja og fjórða árs-
fjórðungs 1996, sem samsvarar
0,6% verðbólgu á einu ári. Verðlag
hækkaði um 2,3% milli áranna 1995
og 1996 og 2% yfir árið 1996.
Seðlabanki íslands spáir 0,2%
hækkun neysluverðs á fyrsta árs-
fjórðungi í ár, sem samsvarar 0,7%
ársverðbólgu. Ekki er reiknað með
launabreytingum í þeirri spá, en í
frétt frá Seðlabankanum segir að
verðlagshorfur næstu mánuði séu
. óvenju óvissar þar sem flestir kjara-
samningar séu lausir. Af þeim sök-
um nær spá bankans um verðlags-
þróun aðeins einn ársfjórðung fram
í tímann nú.
Fram kemur að verðlagsþróun
milli þriðja og fjórða ársfjórðungs
1996 hafi verið töluvert hagstæðari
en reiknað hafi verið með í spánni
í október, en þá spáði bankinn 0,4%
hækkun neysluverðs milli þriðja og
fjórða ársfjórðungs eða sem nemur
1,4% hækkun á ári. Meginástæða
þessarar hagstæðu útkomu er meiri
lækkun á matvöru í desember en
reiknað var með.
Lítið eitt meira
launaskrið
Þá segir: „Spá um 0,2% hækkun
fyrsta ársfjórðung 1997 byggist á
þeirri forsendu að launabreytingar
hafi ekki áhrif á verðlagsþróun í
ársfjórðungnum. Jafnskjótt og nið-
urstöður almennra kjarasamninga
liggja fyrir mun bankinn endur-
skoða spá sína. Reiknað er með lít-
ið eitt meira launaskriði en á síð-
asta ári, eða sem nemur 1,5% í stað
1% á heilu ári, og heldur minni
framleiðnibreytingu. Ennfremur er
reiknað með að innflutningsverðlag
hafi hækkað 3,5% á síðasta ári, en
muni hækka um 1,5% í ár. Seðla-
bankinn mun ekki gefa út spá fyrir
allt árið 1997 fyrr en niðurstöður
kjarasamninga liggja fyrir.“
-----♦ ♦ ♦----
Lengsti
sæstrengur
íheiminum
Singapore. Reuter.
NÍUTÍU íjarskiptafyrirtæki heims í
flórum heimsálfum hafa undirritað
samning um lagningu lengsta og
afkastamesta sæstrengskerfis heims
fyrir 1.3 milljarða Bandaríkjadala.
Sæstrengurinn mun liggja frá
Suður-Kyrrahafi til Norður-Atlants-
hafs um Asiíu og Miðausturlönd og
verður 38.000 kílómetra langur.
Kerfið verður tekið í notkun í árslok
1998 að sögn embættismanna við
undirritunina í Singapore said.
TENGSLARÁÐSTEFNA á vegum
landskrifstofu Leonardó á íslandi
verður haidin á Hótel Sögu þann 31.
janúar til 1. febrúar nk. Ráðstefn-
unni er ætlað að vera vettvangur
íslenskra fyrirtækja og stofnana í
fiskiðnaði fyrir mótun nýrra starfs-
þjálfunar- og nýsköpunarverkefna
og sækja til þess styrki til sjóða
Evrópusambandsins.
Evrópska starfsmenntaáætlunin,
Leónardó, verður kynnt á ráðstefn-
unni og hvernig íslenskar verkhug-
myndir falla að áherslum hennar
um styrkveitingar. Sömuleiðis verða
kynntir gagnabankar fyrir verk-
efnahugmyndir og leit að sam-
starfsaðilum.
Sérfræðingar
veita ráðgjöf
Á ráðstefnunni verður haldin
formleg kynning á áætlunum Evr-
ópusambandsins og styrktarmögu-
leikum samvinnuverkefna í fiskiðn-
aði. Hingað til lands kemur hópur
sérfræðinga frá Evrópu, annars veg-
ar sérfræðingar sem eru starfsmenn
sjóðanna sem veita ráðgjöf, en hins
vegar fólk sem hefur nokkra reynslu
af styrkumsóknum fyrir verkefni,
rekstri þeirra og dreifingu niður-
staðna. Þeir munu á ráðstefnunni
lýsa þeim aðferðum sem reynst hafa
best til árangurs í fjölþjóðlegri sam-
vinnu þannig að verkefnin skili fyrir-
tækjum aukinni samkeppnishæfni.
Farið verður yfir helstu atriði um-
sóknagerðar, vali samstarfsaðila,
samninga milli samstarfsaðila, fjöl-
þjóðlegt verkskipulag, höfundarrétt,
útgáfu og dreifingu afurða.
Jón Páll Baldvinsson, verkefnis-
stjóri hjá Rannsóknaþjónustu Há-
skóla íslands, segir að aldrei hafi
komið hingað til iands jafn stór hóp-
ur sérfræðinga um þessi mál. „Þann-
ig að hér er kominn öflugri vettvang-
ur en áður til að koma nýjum verk-
efnum á koppinn og gera þau lík-
legri til að fá háa einkun í mati í
Brussel."
Aukin samkeppnishæfni
er meginmarkmiðið
„Á ráðstefnunni verður lögð mikil
áhersla á verkefnareksturinn sjálf-
an, ekki aðeins frá sjónarhóli þess
sem sækir um styrkinn og vinnur
verkefnið, heldur einnig frá sjónar-
hóli fyrirtækjanna sjálfra og hvernig
verkefnin nýtast þeim til þess að
hagnýta sjóðina til að verða sam-
keppnishæfari. Fólk sem hefur hug-
myndir að nýjum verkefnum er því
sérstaklega velkomið á þessa ráð-
stefnu en einnig þeir sem vilja kynna
sér ný verkefni. Ráðstefnan er þann-
ig vettvangur fyrir fólk til að koma
hugmyndum sínum í réttan farveg
fyrir sjóðina og að finna samstarfs-
félaga í verkefnin frá öðrum lönd-
um,“ segir Jón Páll.
Þátttakendum á ráðstefnunni
verður skipt í umræðuhópa eftir svið-
um, bæði eftir hefðbundnum sviðum
í fískiðnaði og þeim verkefnum sem
kynnt verða. „Þeir sem hafa áhuga
á þvi að vera með í ákveðnum sam-
vinnuverkefnum geta komið og skip-
að sér í hópana þó að þeir hafi í sjálfu
sér ekki lagt fram hugmyndir að
verkefnum,“segir Jón Páll.
Kaffitorg og
kvöldverður
„Við notum ýmsar aðferðir til að
koma þessum hópum saman, meðal
annars munum við setja upp nokk-
urs konar kaffitorg þar sem sérfræð-
ingar starfsmenntaáætlunarinnar
veita ráðgjöf og upplýsingar. Þeir
munu ekki aðeins hjálpa til við að
finna samstarfsfélaga í Evrópu,
heldur eru þetta sérfræðingar í áætl-
anagerð og styrkumsóknum og
munu veita ráðgjöf í þeim efnum.
Ennfremur verður sameiginlegur
kvöldverður að loknum fyrri degi
ráðstefnunnar þar sem tækifærið
verður notað til að leyfa fólki að
kynnast og finna sér samstarfsfé-
laga. í lok ráðstefnunnar munu síðan
þeir hópar sem hafa komið sér sam-
an um meginatriði verkefnishug-
mynda vinna við áætlun og umsók-
nagerð."
Flókið ferli
Jón Páll segir að oft sé farvegur
umsókna nokkuð þröngur og því
geti samning verkefnalýsingar og
umsóknar verið flókið ferli. Hann
segir að að mörgu sé að huga, til
dæmis sé mikilvægt að samninga-
gerð milli þátttakenda í verkefnun-
um sjálfum séu gerð góð skil. „Þessi
verkefni eru fjölþjóðleg og að meðal-
tali taka fjögur til sex þjóðlönd þátt
í hveiju verkefni. Það getur því oft
verið flókið að gera samninga á
milli þessara aðila, sérstaklega þeg-
ar verið er að finna upp nýja hluti,
til dæmis verðmæta söluvöru. Þá
þarf að gæta þess að ganga vel frá
höfundarrétti."
Nýtt verkefni
sett af stað
Netverkefni um starfsmenntun,
nýsköpun og gæðstjórn í fiskiðnaði,
„European Quality Fish Network"
verður hleypt af stokkunum á ráð-
stefnunni en verkefnið hefur fengið
styrk þil þriggja ára frá Leonardo
da Vinci áætluninni. Verkefnið er
rekið af Rannsóknaþjónustu Háskól-
ans en fulltrúar frá átta þátttöku-
löndum í verkefninu verða á ráð-
stefnunni og geta ráðstefnugestir
einnig gerst formlegir aðilar að verk-
efninu.
Viyum fleiri
fyrirtæki
Jón Páll segist hafa orðið var við
áhuga fyrirtækja á slíkri verkefna-
vinnu hér á landi. „Við höfum verið
í sambandi við nokkra aðila sem eru
komnir í vel skilgreind verkefni sem
verða kynnt á ráðstefnunni. En hér
á íslandi erum við að beijast við það
eins og í hinum Evrópulöndunum
að auk þátttöku fyrirtækjanna
sjálfra í þessum verkefnum. Við
vinnum líka hörðum höndum að því
að niðurstöður rannsóknanna styrki
samkeppnishæfni fyrirtækjanna. Því
jafnvel þó ýmsar grunnrannsóknir
skili mjög viðunandi niðurstöðum er
ekki alltaf víst að gróði fyrirtækisins
sé áþreifanlegur. Fyrirtækin hafa
að sjálfsögðu misjafna afstöðu til
þannig vinnu en ýmsis hagsmuna-
samtök fyrirtækja eru þá líklegri til
að sinna slíkri vinnu fyrir sína um-
bjóðendur. Stór og rótgróin fyrirtæki
eru sömuleiðis oft tilbúin í þessi
verkefni."
Landsskrifstofa Leonardó hefur
sent um 500 fyrirtækjum og stofn-
unum boðsbréf þar sem leitað er
eftir nýjum verkefnishugmyndum.
Skráning fer fram á Rannsóknaþjón-
ustu Háskóla íslands.
Léttð iei** *-ýsin9ar s
aðferð
sem
c
FYRSTIR MEÐ NYJUNGAR
SUÐURIAND5BRAUT 22, 108 REYKJAVlK
SÍMI533 1500, FAX 533 1 SOi
léttir
einstaklinqum bílakaup
(boði hjá öllum bflaumboðunum
/LéttgS
L £ IO LÝSINGAR HF
wamamaam
Dæmi
Verð bíls
Útborgun
Láns- /leigutími
1.000.000 kr.
250.000 kr.
36 mán.
Hefðbundið bílalán 24.600 kr. á mán.
Lokaafborgun 0 kr.
Létta leiðin
Lokaafborgun
10.600 kr. á mán.
550.000 kr.
I báðum tilvikum er greiðslugjald,
7,8% vextir og verötrygging inni-
falið I mánaðarlegu greiðslunni.