Morgunblaðið - 17.01.1997, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
________________LISTIR
Kraftaverkamyndir
MYNPLIST
II o r n i ð
MYNDVERK
Lulu Yee. Opið frá 14-18 alla daga.
Til 22. janúar. Aðgangur ókeypis.
LISTAKONAN Lulu Yee býr
og starfar í San Francisco í
Bandaríkjunum, útskrifuð frá Art
Instutite þar í borg 1987 og
Montana-háskólanum 1992.
Stundaði eftir það
myndlistarkennslu í tvö ár, en
síðan hefur hún verið liststjóri hjá
fyrirtækinu Cpshades. Hún hefur
tekið þátt í á þriðja tug
myndlistarsýninga í
Bandaríkjunum, en þetta er
hennar fyrsta sýning erlendis.
Lulu Yee ferðast um í leit að
kraftaverkum og viðfangsefni
hennar er hinn stórkostlegi
mannsandi. Hún hefur tekið eftir
því að fólk leiðist út í ótrúlega
hlutij lætur stjórnast af ást og
trú. I verkum sínum vill hún deila
með öðrum þeim atvikum sem hún
hefur upplifað og einnig þeim sem
annað fólk hefur deilt með henni.
Henni finnst að þegar menn gera
sér grein fyrir hve mikillar gæfu
þeir njóta fari þeir að gera meiri
kraftaverk. Hún vonast eftir að
halda starfí sínu áfram í öðrum
löndum við að safna þessum stór-
kostlegu sögum.
Gerandinn er eftir öllum sólar-
merkjum að dæma gagntekinn
einhverri afmarkaðri trúarsann-
færingu, þar sem hamingjan er
öllu ofar. Eins og á sér stað um
slíka vill hann deila hugsýnum sín-
um og opinberunum með öðrum.
Sem og fara vill er mikið lagt í
yfirborðið og umgerðir verkanna
sem hvorttveggja er litríkt og
stásslegt, notar jafnvel 22 og 24
karata gulllauf og silfur í málverk
þar sem grunnurinn er tré. Enn-
fremur notar hann sterkar litríkar
tiivísanir við nafngift myndanna,
sem geta minnt á ljóðlínur.
Þegar Lulu Yee gleymir hins
vegar að hluta hinum sterka og
hamingjuríka boðskap kraftbirt-
ingsins, svo sem í perlusaumsverk-
unum „Jafnvægi" (5), „Doris“ (18)
og „Kóróna fyrir tvo“ (20), lætur
einfalt myndmál og tjáríka mynd-
byggingu ráða ferðinni, reynist
boðskapurinn til muna forvitnileg-
astur.
Hægur stígandi
M Á L V E R K
Sigurður Haukur. Opið alla daga
frá 14-18. Til 28. janúar. Aðgangur
ókeypis.
ÞAÐ gerist að menn fara að
mála sér til hugarhægðar er aldur-
inn færist yfír, reglulegum vinnu-
tíma sleppir og tómstundir verða
fleiri. Hafa kannski einhvern-
tímann á lífsleiðinni stundað nám
í myndlist í afmarkaðan tíma, eru
ennþá fullir eftirvæntingar
hvernig það geti nýst þeim.
Einn þessara manna telst Sig-
urður Haukur Lúðvíksson, sem
1935 stundaði nám í málaraskóla
þeim sem Finnur Jónsson og Jó-
hann Briem ráku 1935-’40.
Hann hefur haldið einkasýning-
ar í Mokka (1977), Háholti,
Hafnarfirði (1983) og Vestmanna-
eyjum (1984) og tekið þátt í þrem-
ur alþjóðlegum sýningum erlendis.
Þetta ferli er auðvitað besta
mál og réttlætanlegt að slíkir sýni
afrakstur iðju sinnar einhvers
staðar, er meira að segja afar al-
gengt í útlandinu sem er helsta
viðmiðun eyjarskeggja.
Það er ljúfur og notalegur blær
yfír myndunum, en eðlilega ekki
kafað djúpt í vandamál myndfl-
atarins né litasambandanna. Heil-
legur blær er yfir myndaröðinni,
sem við blasir er inn er komið eink-
um er rauði bletturinn í myndinni
„Skriðjökull" (2) á réttum stað í
myndbyggingunni, gæðir hana
safa og vaxtarmögnum. En veigá-
mesta verkið á sýningunni er án
nokkurs vafa „Hafðu það ekki eft-
ir mér“ (12), sem er af sjávar-
þorpi og fer þar saman trúverðug
myndbygging og stígandi í lita-
meðferð.
Bragi Ásgeirsson
Ljósmyndasýning Morgunblaðsins á Suðurlandi
NÁTTÚRUHAMFARIRNAR Á VATNAJÖKU
OG SKEIÐARÁRSANDI
Eldgosið í VatnajökJi í október og hlaup á Skeiðarársandi í byrjun nóvember á síðasta ári eru meðal
mestu náttúruhamfara á íslandi á þessari öld. Á svipstundu stórskemmdust samgöngumannvirki
á Skeiðarársandi og hringvegurinn rofnaði og olli það einstaklingum og fyrirtækjum á sunnan-
og austanverðu lanclinu miklum óþægindum.
Myndir sem ljósmyndarar Morgunblaðsins tóku af náttúruhamförunum
verða til sýnis á Suðurlandi á eftirtöldum stöðum:
Fossnesti á Selfossi:
18. janúar - 7. febrúar.
Víkurskáli Vík í Mýrdal.
8. febrúar — 1. mars.
Skaftárskáli Kirkjubæjarklaustri.
2. mars — 29. mars.
Víkurskáli Vík í Mýrdal.
30. mars - 5. apríl.
Fossnesti á Selfossi.
6. apríl — 20. apríl.
Allar myndimar á sýningunni
eru til sölu.
MYNDASAFN
ÞRÍR síðustu forsetar Norræna kirkjutónlistarráðsins, frá vinstri:
Sixten Enlund, Finnlandi, Kjartan Sigurjónsson, íslandi, og Bo
Svensson, Svíþjóð.
Tónleikar organ-
leikara í
Hallgrímskirkju
FÉLAG íslenskra organleik-
ara heldur tónleika á sunnu-
daginn í því skyni að greiða
kostnað vegna þátttöku í Nor-
ræna kirkjutónlistarmótinu í
Gautaborg. Munu flestir þeir
sem tóku þátt í mótinu koma
fram á tónleikunum og flytja
hluta þeirrar tónlistar sem
kynnt var. Tónleikarnir verða
haldnir í Hallgrímskirkju kl.
17.
Um það bil hundrað íslenzk-
ir flyljendur komu fram í
Gautaborg; þrír kórar, ein-
söngvarar, hljóðfæraleikarar,
organistar og tónskáld fóru
utan á vegum Félags íslenskra
organleikara og kynntu ís-
lenska kirkjutónlist. Almennir
þátttakendur á mótinu voru
rúmlega þúsund frá öllum
Norðurlöndunum. Haldnir
voru 12 tónleikar, fyrirlestrar
og umræðuhópar um norræna
kirkjutónlist frá síðustu árum
auk kynninga á nýrri kirkju-
tónlist frá öllum Norðurlönd-
um. Fulltrúar hvers lands
héldu eina tónleika og segir í
fréttatilkynningu, að komið
hafi fram á fundi ráðsins að
íslensku tónleikarnir hafi verið
best sóttir. Þá hafi verið greini-
legt að undangenginni könnun
að framlag íslands á kirkjutón-
listarmótinu hafi vakið mesta
athygli bæði hvað varðar gæði
tónlistar og flutning.
Stór hluti þeirrar íslensku
tónlistar, sem kynnt var á mót-
inu, var af þessu tilefni sérstak-
lega gefinn út á vegum ís-
lenskrar tónverkamiðstöðvar
og Skálholtsútgáfunnar og
voru flestir sálmarnir þýddir á
dönsku eða sænsku.
I Gautaborg komu fram:
Skólakór Kársness undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur sem
kynnti það nýjasta í tónlist fyr-
ir barnakóra, Kammerkór
Langholtskirkju, undir stjórn
Jóns Stefánssonar, sem m.a.
flutti Requiem eftir Jón Leifs
á tónleikum í Dómkirkjunni,
og Mótettukór Hallgríms-
kirkju, undir stjórn Harðar
Áskelssonar, sem m.a. flutti
Óttusöngva á vori eftir Jón
Nordal ásamt einsöngvurunum
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og
Sverri Guðjónssyni, Ingu Rós
Ingólfsdóttur sellóleikara og
Douglas A. Brotchie organista.
Þá lék Björn Steinar Sólbergs-
son orgelverk eftir Hafliða
Hallgrímsson, Jón Nordal, Pál
ísólfsson og Þorkel Sigur-
björnsson.
j-jíviemif þvolmvé'l
■ Hreinni þvottur
• Hreinna skol
• Minna rafmagn
' Mínua þvettaefni
í\hvj 'M'ú Ja stgr.78.990 kr,
1600/800/500 sn/mln.
ijuii 'j'Jtua stgr. 64.990 kr
1100/500 sn/mín.
FÁIKINN
Suðurlandsbraut 8, simi 581 4670
New Wave - fyrsta þvottavélin
I Evrópu til aó uppfylla nýja
vistvæna EU-staðalinn