Morgunblaðið - 17.01.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997 45
GUÐMUNDUR
ÓSKAR JÓNSSON
JÓHANNA
ÞORSTEINSDÓTTIR
■4- Guðmundur Óskar Jóns-
■ son, jafnan kallaður Óskar,
fæddist á Gunnlaugsstöðum í
Stafholtstungnahreppi 25. jan-
úar 1918. Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 28. desem-
ber síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Fossvogskirkju
6. janúar.
Komið er að kveðjustund. Kær
bróðir og mágur er kvaddur hinstu
kveðju. Óskar, eins og hann var
jafnan nefndur af þeim sem
þekktu hann, var löngum kenndur
við Helgavatn í Þverárhlíð, þar
sem hann ólst upp frá fimm ára
aldri og átti þar heima fram yfir
tvítugsaldur.
Við Óskar vorum aldir upp hjvor
hjá sínum bróðurnum og var gott
samband á milli bæjanna, þó að
þeir væru hvor á sínum enda sveit-
arinnar. Skammt frá heimili hans
var barnaskólinn og þar ríkti alltaf
góður félagsandi með krökkunum
undir handleiðslu frábærs kenn-
ara. Þar hófust kynni okkar fyrst
því ég hélt til á heimili hans á
meðan á skólagöngu stóð og geng-
um við saman í skólann. Kynni
okkar héldu áfram að þróast,
bæði við leik og störf, í vegavinnu
vor og haust og í fjallferðum á
haustin. Fjárleitir í þá daga gátu
oft verið erfiðar og hrakningasam-
ar ef veður voru slæm, því aðbún-
aður ganganamanna var þá ekki
eins og nú tíðkast, en samt var
alltaf tilhlökkunarefni að fara í
göngumar. Það var tilbreyting frá
daglega lífinu, sem var yfirleitt
tilbreytingalítið.
í slíkar fjárleitir fórum við Ósk-
ar saman mörg haust og hafa
ýmis atvik frá þeim ferðum lifað
lengi í minningunni.
Rúmlega tvítugur yfirgaf Ósk-
ar heimabyggð sína og hélt til
Reykjavíkur. Þar vann hann í
fyrstu almenna verkamanna-
vinnu. Síðan fór hann að aka vö-
rubíl, en fór fljótlega yfir í leigu-
bílaakstur og vann við það í mörg
ár. Þá hafði hann umsjón með og
veitti forstöðu íbúðarhússbygg-
ingu á vegum BSAB á meðan það
félag var með byggingarfram-
kvæmdir. En Óskar hafði áhuga
á fleiru en að steypa upp hús hér
í Reykjavík. Hann varð sér úti
um gott land til ræktunar og þar
kom hann upp fallegum ttjáreit,
sem ber vitni um dugnað hans
og natni við ræktunina. Þar
byggði hann sér sumarhús, sem
nú stendur í skjóli tijánna er hann
gróðursetti. Þessi reitur var hon-
um kær og hann dvaldi þar mjög
mikið síðustu árin, en síðastliðið
ár varð honum erfitt vegna veik-
inda og starfsþrekið fór dvínandi.
Illkynja sjúkdómur náði yfírhönd-
inni að lokum.
í mörg ár höfðum við það að
dægradvöl nokkrir félagar að spila
lomber þá vetur var genginn í
garð. Óskar var góður spilamaður.
Við félagarnir þökkum honum
ánægjustundirnar sem við áttum
saman við spilaborðið.
Það er í raun margs að minnast
frá sameiginlegri vegferð, en það
verður ekki tíundað hér, heldur
færum við honum þakkir fyrir
samfylgdina og óskum honum
góðrar heimkomu á nýtt tilveru-
stig.
Aðstandendum hans öllum
sendum við samúðarkveðjur.
Minningin um góðan dreng er
geymd í hugum okkar.
Svanlaug og Svavar.
+ Jóhanna Þorsteinsdóttir
fæddist á Fáskrúðsfirði 11.
júlí 1914. Hún lést á dvalarheim-
ilinu Uppsölum 2. janúar síðast-
liðinn og fór útför hennar fram
frá Fáskrúðsfjarðarkirkju 10.
janúar.
Það var dapurlegur endir á góðum
afmælisdegi Amars hinn 2.janúar
að amman hringdi og sagði mömmu
að langamma á Fáskrúðsfirði væri
dáin. Mamma vildi ekki segja okkur
frá þessu fyrr en daginn eftir þar
sem dagurinn var búinn að vera svo
skemmtilegur. Elsku langamma, þú
sást alltaf um að litlu puttunum og
tánum væri ekki kalt þar sem þú
prjónaðir sokka og vettlinga á okk-
ur. Okkur fínnst við ekki hafa feng-
ið að njóta nærvem þinnar nærri
nógu mikið en það gerði fjarlægðin
við ykkur langafa, en þegar við
fengum þær fréttir að þú og lang-
afí fæmð að koma til Reykjavíkur
var tilhlökkunin svo mikil að það
var eins og þjóðhöfðingjar væru að
koma í heimsókn sem var auðvitað
alveg rétt því þið vomð höfuð fjöl-
skyldunnar.
Skemmtilegustu stundimar með
langömmu vom við spilamennsku.
Hún var alltaf til í að spila við okk-
ur olsen-olsen og veiðimann. Við
gátum setið tímunum saman og
spilað, en þess á milli sast þú með
heklunálina og heklaðir. Elsku lang-
amma, við munum sakna þín mikið
þó að okkar samvemstundir væm
ekki margar, en þegar við fengum
að njóta þeirra vom þær stundir
ógleymanlegar, og það var svo gott
að vita af ykkur langafa á Fáskrúðs-
fírði.
Elsku langamma, við vitum að
þú færð góðar móttökur hjá Guði
því hann er svo góður, og við emm
vissir um að Gústamma tekur vel á
móti þér og hugsar vel um þig.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthóium.)
Góði Guð, viltu passa langafa
fyrir okkur og styðja hann í hans
miklu sorg.
Jóhannes og Arnar
Georgssynir.
A TVINNUAUGL YSINGAR
Kennarar
Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er laus
kennarastaða frá 1. febrúar 1997.
Kennslugreinar: Líffræði, stuðningskennsla og
almenn kennsla. Ódýrt húsnæði á staðnum.
Upplýsingar gefur skólastjóri í vinnusíma
475 1224 eða í heimasíma 475 1159.
I --------------------------------
l
Öldrunarlæknir
Staða öldrunarlæknis við Sólvang í Hafnar-
firði er laus til umsóknar.
Um er að ræða 50% starf.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og starfsreynslu, sendist forstjóra Sólvangs
fyrir 8. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veita Bragi Guðmunds-
son, yfirlæknir, og Sveinn Guðbjartsson,
forstjóri, í síma 555 0281.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1,
ísafirði, þriðjudaginn 21. janúar 1997 kl. 14.00 á eftirfarandi eignum:
Áhaldahús á hafnarkanti, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur,
gerðarbeiðandi Þróunarsjóður, atvinnutryggingadeild.
Fjarðargata 30, 0101, Þingeyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd isafjarðar-
bæjar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðargata 30, 0201, Þingeyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd isafjarðar-
bæjar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðargata 30, 0203, Þingeyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd isafjarðar-
bæjar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðargata 30, 0205, Þingeyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd isafjarðar-
bæjar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Sætún 12, 0202, Suöureyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðarbæj-
ar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóöur verkamanna.
I
I
I
<
Túngata 27, n.h., Suðureyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðarbæj-
ar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Sýslumaðurinn á Isafirði,
16. janúar 1997.
Menntamálaráðuneytið
Rannsóknastyrkir
EMBO
í sameindalíffræði
Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European
Molecular Biology Organization, EMBO)
styrkja vísindamenn, sem starfa í Evrópu og
ísrael, til skemmri eða lengri dvalar við er-
lendar rannsóknastofnanir á sviði sameinda-
líffræði.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
fást hjá Professor Frank Gannon, Executive
Secretary, European Molecular Biology Org-
anization, Postfach 1022.40, D-69012 Heid-
elberg, Þýskalandi.
Límmiði með nafni og póstfangi sendanda
skal fylgja fyrirspurnum.
Umsóknarfrestur um langdvalarstyrki er til
15. febrúar og 15. ágúst, en um skammtíma-
styrki má senda umsókn hvenær sem er.
Veffang EMBO er: http://www.embl-heidel-
berg.de/Externallnfo/embo/
Menntamálaráðuneytið,
16. janúar 1997.
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að
viðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu um
kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og
endurskoðenda í Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur fyrir árið 1997.
Framboðslistum eða tillögum skal skila á
skrifstofu félagsins, Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7, eigi síðar en kl. 12:00 á
hádegi, mánudaginn 20. janúar 1997.
Kjörstjórnin
Námskeið og ráðgjöf
í Maharishi ayurveda
Dr. Donn Brennan er írskur læknir sem sér-
hæft hefur sig í ayurveda, elstu náttúrulækn-
ingahefð veraldar.
Hann heldur námskeið sem hefjast:
í Reykjavík: Föstudaginn 17. janúar kl. 20 á
Suðurlandsbraut 6, 2. hæð (húsi Ökuskólans).
Á Akureyri: Sunnudaginn 19. jan. kl. 10 að
morgni í Glerárgötu 32 (ofan við 66° N).
Uppl. og pantanir í einkatíma í síma 551 6662.
Sltlú auglýsingar
Nýbýlavegi 30, Kópavogi,
gengið inn Dalbrekkumegin.
Námskeið
- Kristín Þorsteinsdóttir
- hagnýtt námskeið
fyrir alla
★ Tekurðu mikið inn á þig?
★ Áttu erfitt með að finna ekki
of mikið til með þeim sem bágt
eiga?
★ Gerirðu þér grein fyrir öllum
áreitunum sem við búum við í
nútímaþjóðfélagi og hvaða áhrif
þau hafa á okkur?
★ Hefurðu upplifað það að
framkoma, hegðan og tal annars
fólks hefur breytt líðan þinni í
einni svipan?
★ Langar þig til að læra að
losna undan slíku og bera sjálf(ur)
ábyrgð á líðan þinni alla daga?
Ef svo er, komdu þá á námskeiö
um helgina þar sem verður farið
í ofangreint efni, kenndar leiðir
til að þú getir sjálf(ur) stjórnað
þinni eigin líðan í samskiptum
þínum við umhverfi þitt.
Námskeiðið verður laugardag
og sunnudag frá kl. 10.00-
15.30. Kennari: Kristín Þor-
steinsdóttir. Verð kr. 8.000 -
innifaldar í verði eru veitingar í
hádegi báða dagana.
Allar frekari upplýsingar eru
gefnar í síma 554 1107 frá kl.
9.00-12.00 og kl. 16.00-18.00.
Þeir, sem ekki ná í gegn á síma-
tíma en hafa áhuga á námskeið-
inu er velkomiö að mæta án
skráningar.
Biblíuskólinn
við Holtaveg
PðstUót 4060. 124 Riykjavtk
Slrrt 91-678899
■ Byggt á bjargl
Alfa-námskeið
Nýtt Alfa-námskeið hefst mánu-
daginn 20. janúar kl. 19.15.
Kennt verður 9 mánudagskvöld
og eina helgi. Fjallað verður um
grundvallaratriði kristinnar trú-
ar, lífið með Guði, leiðsögn hans
og margt fleira. Kennsla fer fram
í fyrirlestrum og umræðuhópum.
Umsjón hefur Ragnar Gunnars-
son, framkvæmdastjóri KFUM
og KFUK. Námskeiðið er öllum
opið. Námskeiðsgjald kr. 3.000
fyrir utan helgina. Léttur kvöld-
matur og verkefnablöð innifalin.
Ekki er nauðsyn að greiða fyrr
en eftir fyrsta kvöldið.
Innritun og nánari upplýsingar (
síma 588 8899 til kl. 17 1 dag.