Morgunblaðið - 24.06.1998, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
139. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jeltsín Rússlandsforseti krefst róttækra efnahagsaðgerða í landinu
Varar við hættu
á félagslegri ólgu
Moskvu. Reuters.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
varaði við því í gær að fjár-
málakreppan í landinu væri komin á
mjög hættulegt stig og krafðist þess
að gripið yrði til róttækra aðgerða
sem allra fyrst til að koma í veg fyr-
ir pólitíska og félagslega ólgu í land-
inu.
Sergej Kírijenko forsætisráð-
herra svaraði með því að kynna
nýja efnahagsáætlun stjómarinnar,
boðaði m.a. uppstokkun á skattkerf-
inu, sparnaðaraðgerðir til að
minnka fjárlagahallann, auk ráð-
stafana til að styrkja rúbluna og
lækka vexti um rúman helming.
„Efnahagskreppan er orðin svo
alvarleg að félagslegar og pólitískar
hættur hafa skapast," sagði Jeltsín
á sameiginlegum fundi þingsins og
ríkisstjórnarinnar. „Eg hneigist
ekki til að gera mikið úr ástandinu
en gífurleg spenna er orðin að veru-
leika í þjóðfélaginu.“
Dulin hótun um þingrof
Forsetinn réð andstæðingum sín-
um í Dúmunni, neðri deild þingsins,
frá því að reyna að hindra efnahags-
aðgerðir stjórnarinnar og krafðist
þess að þær yrðu samþykktar áður
en sumarhlé Dúmunnar hefst 16.
júlí. „Ef þið samþykkið ekki frum-
vörpin, sem gert er ráð fyrir í þess-
ari áætlun, mun ég grípa til annarra
aðgerða," bætti forsetinn við og orð
hans voru túlkuð sem dulin hótun
um að leysa þingið upp og boða til
kosninga.
Helstu andstæðingar Jeltsíns á
þinginu sögðust styðja ýmsa þætti
efnahagsáætlunarinnar en bættu
við að mjög erfitt yrði að koma
henni í framkvæmd.
Forseti Dúmunnar, kommúnistinn
Anatolí Lúkjanov, sagði að í áætlun-
inni væri tekið á ýmsum vandamál-
um, sem brýnt væri að leysa. „Marg-
ar lausnanna eru þó óviðunandi fyrir
þingið,“ bætti hann við og hafði
mestar áhyggjur af áformum stjóm-
arinnar um að minnka ríkisútgjöldin.
Gennadí Zjúganov, leiðtogi komm-
únista, fagnaði áformum stjómar-
innar um að lækka skatta og tolla en
kvaðst ekld geta sætt sig við hótun
Jeltsíns um þingrof. „Jeltsín hélt sig
við gömlu efnisskrána. Hann setti
fundinn, tók að hóta Dúmunni, var
dónalegur, móðgaði okkur og fór síð-
an út.“
■ Boðar uppstokkun/20
Reuters
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
gerir hlé á máli sínu og fær sér
tesopa á fundi ríkisstjórnarinn-
ar og þingsins í gær.
Norðmenn
sigruðu
Brasilíu
KJETIL Rekdal (3. frá hægri)
og félagar í norska landsliðinu
fögnuðu innilega í gærkvöldi er
þeir höfðu lagt Brasilíu að velli
á HM, 2-1. Þar með komust
Norðmenn áfram í 16 liða úrslit
og spila þá við Itali.
■ Norðmenn/Bl
■ Fagnað í Heiðmörk/56
Kínaför Clintons
Utvarpsmenn
fá ekki áritun
Washington. Reuters.
KÍNVERSK stjórnvöld hafa aftur-
kallað vegabréfsáritun til þriggja
útvarpsmanna er hugðust fylgja
Bill Clinton Bandaríkjaforseta eftir
í Kínaför hans, en hún hefst á
morgun, flmmtudag. Lýsti Clinton
því yfír í gær að ákvörðun Kínverja
væri „gagnrýniverð“ og sagði
stjórn sína myndu mótmæla henni.
Æ meiri spenna hefur einkennt
undirbúning Kínaheimsóknar
Clintons og er neitun Kínverja
nýjasta dæmið um hana. Utvarps-
mennirnir þrír sem fá ekki að
fylgja forsetanum starfa fyrir
Ríídio Free Asia, útvarpsstöð sem
stofnuð var að frumkvæði banda-
ríska þingsins fyrir tveimur árum.
Utvarpar hún fréttum og efni um
asísk málefni, óháð stjórnvöldum
ríkjanna.
Þremenningarnir fengu vega-
bréfsáritun sl. föstudag en hún var
síðan afturkölluð. Bandaríska utan-
ríkisráðuneytið mótmælti, en tveir
útvarpsmannanna eru bandarískir
ríkisborgarar og einn indverskur.
■ Þrýstingur eykst/21
Reuters
Þingkosningar á N-Irlandi á morgun vekja minni áhuga en
Tvísýnt um
niðurstöðuna
Belfast. Morgunblaðið.
DAVID Trimble, leiðtogi Sam-
bandsflokks Ulster (UUP), varaði í
gær við því að sundrung innan raða
sambandssinna á N-Irlandi gæti
valdið því að hófsamir kaþólikkar
(SDLP) ynnu stærstan sigur í
þingkosningunum á morgun.
Hvatti Trimble kjósendur til að
greiða UUP atkvæði, ef þeir vildu
að sambandssinnar hefðu áhrif og
völd í væntanlegri ríkisstjórn, en
ekki þeim flokkum sambandssinna
sem andstæðir voru páskasam-
komulaginu svokallaða og beittu
sér gegn samþykkt þess í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni í síðasta mánuði.
Kosningabaráttan á N-írlandi
hefur fallið í skugga heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu og ljóst
er að áhugi almennings er ekki
jafnmikill nú og fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna í maí. Fulltrúar
stjórnmálaflokkanna hafa því reynt
að sannfæra fólk um mikilvægi
kosninganna og Trimble, ásamt
öðrum þeim sem hlynntir voru
páskasamkomulaginu, hefur hvatt
fólk til að „ljúka verkinu“ sem
hófst með samþykkt samkomulags-
ins í þjóðaratkvæðagreiðslunni og
tryggja N-írlandi bjartari framtíð.
Ljóst er að flokkar sem hlynntir
voru samningnum koma til með að
vinna flest sætanna hundrað og
átta á hinu nýja þingi sem N-ír-
land mun senn eignast. Hitt er
óljóst hvort andstæðingum samn-
ingsins, með klerkinn Ian Paisley
og sambandsflokk hans (DUP) í
broddi fylkingar, tekst að fá nægi-
lega marga fulltrúa kjörna á þingið
til að þeim takist að hefta störf
þingsins og gera mönnum ómögu-
legt að hrinda ákvæðum samnings-
ins í framkvæmd.
Er talið að þeir þurfi um og yfir
30 sæti til að ná því marki sínu, en
skoðanakannanir á fylgi flokkanna
A
Italska þingið
NATO-
stækkun
sam-
þykkt
Róm. Reuters.
NEÐRI deild ítalska þingsins
samþykkti í gær stækkun Atl-
antshafsbandalagsins (NATO)
en hefði þingið hafnað henni
hefði það getað orðið stjóm
Romanos Prodis að falli.
Marxistar, sem styðja stjórn
hans, eru andvígir stækkun-
inni en þar sem 195 þingmenn
stjómarandstöðunnar sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna var
hún samþykkt.
Mafíuforingjar sluppu
Þingheimur sætti harðri
gagnrýni í gær vegna þess að
tveimur mafíuforingjum tókst
að flýja úr réttarsal, fullum af
fólki, í Salemo. Foringjarnir,
Ferdinando Cesarano og
Giuseppe Autorini, vom höf-
uðpaurar Camorra-mafíunnar
í Napólí. I síðasta mánuði
sluppu tveir glæpaforingjar úr
klóm laganna, sem varð til
þess að Giovanni Maria Flick,
dómsmálaráðherra, sagði af
sér. Hann dró afsögnina síðan
til baka.
Að sögn lögreglu í Salemo
tókst mafíumönnunum að
sleppa úr stúku sakborninga í
gegnum göng sem grafin
höfðu verið í gegnum gólfið, að
því er virðist af utanaðkom-
andi aðstoðarmönnum. Aðrir
sakborningar í stúkunni
skyggðu á mennina tvo, sem
komust á brott án þess að eftir
væri tekið. Þegar verðir átt-
uðu sig á hvað gerst hafði vom
flóttamennirnir á bak og burt.
Ottavino Del Turco, formað-
ur þingnefndar gegn starf-
semi mafíunnar, sagði flóttann
í gær „mjög alvarlegt mál“,
sem sýndi rétt eina ferðina
fram á hversu ónýt ítölsk
fangelsi væm.
kosningarnar í maí
gefa ekki fullkomlega upp hvernig
þessari baráttu lyktar því að kosið
er eftir afai- flóknu hlutfallskosn-
ingakerfi þar sem kjósandinn verð-
ur að raða flokkum í forgangsröð
og gæti á endanum ráðið úrslitum
hvem kjósandi setur sem fjórða
eða fimmta valkost.
Það sem einna helst hefur lífgað
upp á annars daufa kosningabar-
áttu er deilan um Drumcree-göngu
Oraníureglunnar 5. júlí næstkom-
andi, en með henni nær „göngutíð"
sambandssinna árlegu hámarki.
Þessi deila er til vitnis um að
þótt Sinn Féin, stjórnmálaarmur
IRA, sé nú um stundir eins konar
„bandamaður" Trimbles, þar sem
bæði Sinn Féin og UUP studdu
samkomulagið, er enn gmnnt á því
góða milli UUP-flokksins og her-
skárra þjóðernissinna.