Morgunblaðið - 24.06.1998, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þekktasti kaldastríðssagnfræðingur Bandaríkjanna á ráðstefnu í Reykjavík
Stalín bar meginábyrgð
á kalda stríðinu
ENDALOK kalda stríðsins komu
John Lewis Gaddis, þekktasta
kaldastríðsagnfræðingi Bandaríkj-
anna, á óvart. Hann segist enda
engan þekkja sem hafi séð þau fyr-
ir. „Þetta er eitt af því sem sagn-
fræðirannsóknir dagsins í dag
reyna að skýra, hvernig kerfi sem
virtist vera stöðugt hrundi skyndi-
lega,“ segir Gaddis, sem taka mun
þátt í ráðstefnu sem hefst í dag um
Norðurlönd og kalda stríðið.
Hrun sovétstjórnarinnar bjó ekki
aðeins til nýtt viðfangsefni handa
sagnfræðingum heldur opnaði þeim
einnig aðgang að skjalasöfnum
kommúnistaríkjanna sem þangað til
höfðu verið nánast alveg lokuð
sagnfræðingum, bæði þeim sem
störfuðu austantjalds og vestan.
A síðustu árum hefur Gaddis ver-
ið að vinna úr þeim upplýsingum
sem þannig hafa fengist. I fyrra gaf
hann út bókina We now know: Ret-
hinking Cold War History þar sem
dregnar eru saman niðurstöður
hans um fyrstu ár kalda stríðsins,
tímabilið til Kúbudeilunnar 1962.
Niðurstöður hans eru þær að Stalín
beri höfuðábyrgð á kalda stríðinu og
að Bandaríkjamenn hefðu ekki get-
að komið í veg fyrir það með að láta
meira undan óskum Sovétmanna.
Öll sagnfræði undir
áhrifum stjórnmáia
Kenningar Gaddis eru afturhvarf
til skýringa á kalda stríðinu sem við-
teknar voru á Vesturlöndum fyrir
Víetnamstríðið, gerólík-
ar þeim sem hann lýsti
sjálfur meðal annars í
einu þekktasta riti sínu
fyrir aldarfjórðungi og
sagt hefur verið að við-
horfsbreytingin endur-
spegli stökk til hægri.
„Það er einfoldun á
málinu að stilla upp
mismunandi niðurstöð-
um sagnfræðinga á
þessu sviði sem hægri-
og vinstristefnu," segir
Gaddis. „Öll sagnfræði
verður fyiir einhverjum
áhrifum af pólitík, en ég
reyni að fylgja heimild-
um mínum eftir fremsta
megni. Það er eðlilegt að sagnfræð-
ingar sjái hlutina á mismunandi hátt,
annað væri vísbending um að við
værum ekki að starfa rétt.“
Einn þeirra sem gagnrýnt hefur
nýjar niðurstöður Gaddis er norski
sagnfræðingurinn Geir Lundestad.
Þeir tveir og þrír aðrir fræðimenn
munu taka þátt í hringborðsumræð-
um um á ráðstefnunni í dag.
Lundestad segir að bandarískir
sagnfræðingar séu of uppteknir af
því að fínna hver hafí átt sökina á
kalda stríðinu því tvo þurfi til þegar
tveir deila.
Áhersla á hugmyndafræði
og siðferðisspurningar
„Við Lundestad reynum stund-
um að gera sem mest úr ágreiningi
okkar í umræðum til
að gera þær líflegri,“
segir Gaddis og lofar
að það muni þeir einnig
gera í dag. Hann nefnir
tvö meginatriði sem
raunverulega greini þá
að. „í fyrsta lagi legg
ég meiri áherslu á áhrif
hugmyndafræði á
stjórnmálastefnu
kommúnistaríkjanna,
bæði Sovétríkjanna og
fylgiríkja þeirra og
Kína. Bandaríkjamenn
og Vestur-Evrópu-
menn höfðu reyndar
sína eigin hugmynda-
fræði líka, en ég held
að hún hafí ekki veyið eins áhrifa-
mikil í stjórnmálunum. Eg legg líka
meiri áherslu en Lundestad á rétt
og rangt í baráttu stórveldanna,
ekki þó í þeim skilningi að ég felli
sjálfur siðferðilega dóma um þau,
heldur lít ég til viðhorfa fólksins
sem upplifði upphaf kalda stríðsins.
Vestur-Evrópumenn litu margir á
baráttuna við Sovétríkin sem átök
góðs og ills, en í kommúnistaríkjun-
um hafði almenningur ekki sama
viðhorf til sinna stjórnvalda. Mér
fínnst lýsandi að líta til þess að að
fólk flúði frá Austur-Þýskalandi til
Vestur-Þýskalands en ekki öfugt og
austur-þýska stjórnin öðlaðist
aldrei það lögmæti í augum al-
mennings sem hin vestur-þýska
naut.“
Eitt af því sem Lundestad hefur
gagnrýnt í söguskoðun þandarískra
sagnfræðinga er að þeir séu of sjálf-
hverfír, skoði aðeins bandarískar
heimildir og hafi til dæmis ekki haft
fyrir því að læra erlend tungumál.
Ungir sagnfræðingar verða
að læra fleiri tungumál
Gaddis bendir á að áður en
skjalasöfnin í austri opnuðust hafí
úrval heimilda verið mun minna og
þess vegna hafí Bandaríkjamenn
einkum leitað í þarlend skjöl. „Nú
eru aðstæður breyttar og ungir
sagnfræðingar í Bandaríkjunum
sem ætla að kanna sögu kalda
stríðsins verða auðvitað að læra er-
lend tungumál. Áherslan í rann-
sóknum hefur líka breyst þannig að
alþjóðasaga, þar sem horft er til
sjónarhorna margra landa og
skjalaheimildir tengdar samfélagi
þeirra og menningu, hefur tekið við
af eldri diplómatískri sögu þar sem
aðeins voru könnuð skjöl um utan-
ríkisstefnu einstakra ríkja.“
Gaddis segist ekkert hafa kannað
sögu Norðurlanda í kalda stríðinu
sjálfur enda sé annað markmið hans
með þátttöku á ráðstefnunni að læra
um það svið. „Gögn úr skjalasöfnum
Rússa og Kínverja sýna einmitt að
minni löndin höfðu oft mikil áhrif, til
dæmis sjást þess oft dæmi að Aust-
ur-Þjóðverjar hafi teymt Rússa í þá
átt sem þeim hentaði og að Víetna-
mar hafí sveigt stefnu Kínverja að
eigin hagsmunum.“
Morgunblaðið/Þorkell
John Lewis Gaddis
Fjallað um utannldsstefiiu Svía á ráðstefnu um Norðurlöndin og kalda stríðið
Hlutleysi en hernaðar-
samstarf við vesturveldin
SÆNSKA hlutleysisstefnan var
óraunsæ frá hemaðarlegu sjónar-
miði en þjónaði engu að síður
stjómmálalegum tilgangi. Sterkasti
áhrifavaldurinn í utanríkisstefnu
Svía eftir seinni heimsstyrjöld var
hagsýnispólitík sem miðaði að því
að styrkja eigin hlutleysisstöðu en
útávið var hún réttlætt með hug-
myndafræðilegum rökum alþjóða-
hyggju. Þetta kemur fram f fyrir-
lestri sænska fræði-
mannsins Mikael
Malmborg á ráðstefn-
unni um Norðurlöndin
og kalda stríðið, sem
hefst á Grand Hóteli í
dag.
Malmborg segir að
eftir stríð hafi Svíar,
undir forystu Öster
Undén, utanríkisráð-
herra stjómar jafnað-
armanna, helst kosið
að alþjóðlegu öryggis-
kerfí yrði komið á fót
undir stjórn Samein-
uðu þjóðanna. Fyrstu
eftirstríðsárin voru
uppi hugmyndir um að
hlutleysisstefna eins og sú sem Sví-
ar hefðu fylgt fram að þessu stæð-
ist ekki lengur af ýmsum ástæðum.
I fyrsta lagi vegna tilkomu kjarna-
vopna og vegna aukinna efnahags-
tengsla landa í milli. í öðru lagi
vegna þess að Sameinuðu þjóðun-
um, sem Svíar studdu heilshugar,
var ætlað að koma á heildarörygg-
iskerfí fyrir allan heiminn. í þriðja
lagi vegna þess að í kalda stríðinu
voru endurvaktar hugmyndir um
„réttlætanlegt stríð“, beilum just-
um. í baráttu um grunnsamfélags-
gildi, milli lýðræðis og einræðis,
væri hlutleysi siðferðilega óverj-
andi.
Norðurlöndin skjöldur
hlutleysisstefnunnar
Þegar ekki tókst að mynda ör-
yggiskerfi á vegum Sameinuðu
þjóðanna gripu Svíar til þess sem
þeir töldu engu að síður næstbesta
kostinn, að endurvekja
hlutleysisstefnuna.
Smám saman varð til
stefna og rökfræði sem
varði hlutleysið.
Stjórnmálaleiðtogar
landsins héldu því fram
að sameiginlegri ör-
yggisstefnu væri að-
eins hægt að koma við
fyrir allan heiminn og
höfnuðu því svæða-
bundnum bandalögum,
að Norðurlöndum und-
anskildum. Reynt var
að auka vægi Norður-
landa sem heildar til að
mynda eins konar
skjöld fyrir hlutleysis-
stefnuna. Einnig var því haldið
fram að hlutleýsi Svía myndi auka
stöðugleika í allri Norður-Evrópu.
Þessi stefna byggði einnig á þeirri
kenningu sænskra stjórnvalda að
hægt væri að aðgreina milliríkja-
stjórnmál frá verslun og hug-
myndafræði.
I utanríkisstefnu sinni reyndu
Svíar meðal annars að stuðla að
myndun keðju hlutlausra ríkja milli
vesturs og austurs í Evrópu. Keðjan
átti að ná frá Svíþjóð og Finnlandi í
norðri, gegnum Mið-Evrópu og til
Júgóslavíu í suðri.
Öster Undén átti mestan þátt í
mótun hlutleysisstefnunnar, en Olof
Palme sem varð forsætisráðherra
1968, bætti enn einum þætti við
hana. „Svonefnd virk hlutleysis-
stefna, sem miðaði til dæmis að því
að hjálpa löndum í Þriðja heiminum
til sjálfstæðis, var frá Palme kom-
in,“ segir Malmborg. „í málflutningi
hans ber lítið á því að hún hafí haft
hagnýta pólitíska þýðingu fyrir
Svía, en það er ljóst af framkvæmd
stefnunnar að tengsl voru milli
hennar og þörf Svía fyrir að styðja
eigin hlutleysisstefnu.
Oflin að baki kalda
stríðinu vanmetin
„Þeir sem réðu utanríkisstefn-
unni vildu gjarnan sjá hlutleysis-
stefnuna sem raunhæfan kost hern-
aðarlega," segir Malmborg.
„Stjórnendur hersins voru hins
vegar þeirrar skoðunar að hún
stæðist hvorki hernaðarlega né sið-
ferðislega. Ég held að Svíar hafí í
upphafi þegar hlutleysisstefnan var
mótuð vanmetið þau öfl sem voru
að verki í kalda stríðinu og ekki
gert sér grein fyrir því að ómögu-
legt væri að framfylgja efnahags-
legu og hernaðarlegu hlutleysi. Af
þessum sökum varð til ákveðin tvö-
feldni í sænskri utanríkisstefnu,
ekki vegna þess að sænskir stjórn-
málamenn hafi kosið sér hana,
heldur sem óheppileg afieiðing
þessa vanmats."
Malmborg segir að Bandaríkja-
menn hafí mjög sóst eftir að fá
tryggingar fyrir því að hernaðar-
styrk Svía yrði beitt í þágu vestur-
veldanna. „Slíkar tryggingar feng-
ust ekki opinberlega, en óformlegt
hernaðarsamstarf hófst engu að síð-
ur. Einkum fóru þau skipti fram
með milligöngu Breta. Svíar lofuðu
líka að láta Sovétmönnum ekki í té
upplýsingar um hátækni. Þegar
tryggingar höfðu í raun verið gefn-
ar á hernaðarsviðinu með þessum
hætti sættu vesturveldin sig við
pólitískt hlutleysi Sviþjóðar. Þetta
kerfi mótaðist í byrjun sjötta ára-
tugarins."
Víglínan milli Svíþjóðar
og Finnlands
Malmborg segir að hernaðaráætl-
anir NATO hafí eftir þetta miðað
við að ein víglínan í hugsanlegu
stríði við Sovétmenn lægi milli Sví-
þjóðar og Finnlands. Finnar, sem
einnig höfðu lýst yfir hlutleysi, voru
þannig taldir til áhrifasvæðis Sovét-
manna, og áætlanir voru til um að
varpa kjarnorkusprengjum á
fínnsku strandlengjuna ef til stríðs
kæmi.
Stjórnmálalega var hlutleysis-
stefnan árangursrík því Banda-
ríkjamenn virtu hana og Sovétmenn
höfðu einnig ákveðinn hag af því að
Svíar héldu henni. Hún virkaði því
sem tæki til að draga úr spennu á
Norðurlöndum.
Efnahagslega og hernaðarlega
var nokkuð ljóst að Svíþjóð taldist
til Vesturveidanna. Það kemur
skýrt fram í skýrslum sendiráðs
Sovétmanna í Stokkhólmi að þeir
vissu að reiknað var með Svíum í
hernaðaráætlunum Atlantshafs-
bandalagsins.
Mikael
Malmborg
Ráðstefna um Norður-
löndin og kalda stríðið
hefst í dag
Hring-
borðsum-
ræða um
nýja túlkun
ÞEKKTASTI kaldastríðssagnfræð-
ingur Bandaríkjanna mun ásamt
fjórum öðnim kunnum fi-æðimönnum
taka þátt í hringborðsumræðum und-
ir stjóm Björns Bjarnasonar
menntamálaráðheira um nýja túlkun
sagnfræðinga á þessu viðfangsefni á
ráðstefnu um Norðurlöndin og kalda
stríðið sem hefst í dag.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra flytur opnunan-æðu ráðstefn-
unnar klukkan 15 en auk hans munu
Christian Ostermann, stjórnandi
kaldastríðssöguverkeftiis Woodrow
Wilson stofnunarinnar, og Valur
Ingimundarson sagnfræðingur, einn
skipuleggjenda ráðstefnunnar, flytja
ávörp áður en umræðmmar hefjast.
I hringborðsumi’æðunum taka þátt
tveir BandaiTkjamenn og þríi’ Norð-
urlandabúar. John Lewis Gaddis,
prófessor í sagnfræði við Yale-há-
skóla í Bandaríkjunum, hefur um
langt skeið verið þekktasti fræðimað-
ur á sínu sviði í heimalandinu.
Geir Lundestad er alþjóðlega
kunnur norskur sagnft’æðingur, pró-
fessor og stjómandi Nóbelstofnunar-
innar.
James Hershberg er fyrrverandi
stjórnandi kaldastríðssöguverkefnis
Woodrow Wilson stofnunarinnar og
nú aðstoðarprófessor í sögu við Geor-
ge Washington-háskóla í Bandaríkj-
unum.
Krister Wahlback vai’ ráðgjafí
Carls Bildt forsætisráðherra Svíþjóð-
ai’ 1991-94 og þar áður prófessor í
stjórnmálafræði við Stokkhólmshá-
skóla.
Odd Ai-ne Westad er stjórnandi
rannsókna við norsku Nóbelsstofn-
unina og séi’fi’æðingur í utanríkis-
stefnu Sovétmanna og Kínverja á
tímum kalda stríðsins.
Fyrirlestrar á ráðstefnunni hefjast
á morgun. Upplýsingar um ski’án-
ingu er að fínna á alnetinu á netfang-
inu htttp://www.coldwar.hi.is.
-----------------------
Nýtt vefrit Svavars
Gestssonar
Minnsta blað
á Islandi
HUGMYND er heiti á nýju vefriti
sem nýverið hóf göngu sína. Það
kemur út einu sinni í viku og er
„minnsta blað á íslandi" eða ein A-4
síða hvert tölublað, að sögn ritstjór-
ans, Svavars Gestssonar alþingis-
manns.
Ritið er að finna á slóðinni http:
//www.althingi.is/svavar/hugmynd.
Ætlunin er að það komi út einu sinni
í viku, að minnsta kosti, á hverjum
mánudegi.
„Maður telur sig þurfa að koma
einhverju á framfæri þegar maður er
í þessu starfí. Ég hef alltaf skrifað
mikið og svo er maður líka alinn upp
á blaði,“ sagði Svavai’ í samtali við
Morgunblaðið í gæmorgun en þá
var hann einmitt að vinna að þriðja
tölublaðinu.
Regluleg skilaboð um það
sem mér er efst í huga
„Þetta verða regluleg skilaboð um
það sem mér er efst í huga,“ sagði
hann og kvaðst með þessu ekki endi-
lega vera að setja hlutina í stórt póli-
tískt samhengi, en hann vildi nota
sér þennan nýja miðil og nýja tækni.
Auk eigin skrifa Svavars hyggst
hann birta tilkynningar um fundi og
annað slíkt fyrh' Alþýðubandalagsfé-
lög og jafnvel aðra sem þess óska.
„Það hafa mjög margir haft sam-
band og viðbrögðin eru skemmtilega
jákvæð, svo fólki finnst þetta greini-
lega þarft framtak,“ segir Svavar.