Morgunblaðið - 24.06.1998, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Softis hf. selur LOUIS-hugbúnað til Hollands
Getur skipt sköpum um
framtíð fyrirtækisins
SOFTIS hf. hefur samið um sölu á LOUIS-
hugbúnaðinum til hollenska fyrirtækisins
Pharmapartners B.V. Forráðamenn Softis
segja samninginn afar þýðingarmikinn fyrir fé-
lagið og telja að nú fari markaðssetning hug-
búnaðarins loks að skila þeim árangri sem
stefnt hefur verið að frá því þróun hans hófst
fyrir átta árum. Þetta kom fram á aðalfundi fé-
lagsins sem haldinn var í gær.
Tekjur Softis hf. hafa verið óverulegar þau
átta ár sem helsta afurð þess, Louis-hugbúnað-
urinn, hefur verið í þróun og vonir um að fyrir-
tækið skili hagnaði hafa brugðist jafnóðum.
Skili umræddur samningur þeim ávinningi, sem
forráðamenn Softis vonast eftir, er því ljóst að
hann getur skipt sköpum um framtíð fyrirtækis-
ins.
Ekki hefur verið færður sérstakur rekstrar-
reikningur hjá félaginu á undanfomum árum en
þess í stað hafa rekstrargjöld ársins verið færð
til hækkunar á veltufjármunum á efnahags-
reikningi undir liðnum hugbúnaður. Tekjur
Softis námu um ellefu milljónum króna á síðast-
liðnu ári og stóðu þannig í stað milli ára en eig-
inlegur rekstrarkostnaður nam tæplega 45
milljónum króna. Fram kom á fundinum að
tekjurnar það sem af væri þessu ári væru 14
milljónir króna eða hærri en tekjur sl. árs. Ekki
er þó útlit fyrir að félagið verði sjálfbært á ár-
inu.
Skuldir lækka verulega á milli ára eða úr 122
milljónum í 69 en á síðustu mánuðum hefur
auknu hlutafé verið safnað og skuldum breytt í
hlutafé.
Fimm þúsund
notendaleyfi
A fundinum greindi Sigurður Bjömsson frá
samningi sem fyrirtækið gekk frá í síðustu viku
við hollenska fýrirtækið Pharmapartners B.V.
en það þjónar heilsugeiranum og starfrækir
kerfí sem skráir sjúkrasögu og gefur út lyfseðla.
Að sögn Sigurðar er fyrirtækið hið stærsta á
sínu sviði í Hollandi með yfir sjötíu starfsmenn
og hefur það skuldbundið sig til að kaupa yfir
fimm þúsund notendaleyfi og 250 miðlaraleyfi af
LOUIS-hugbúnaðinum á næstu 3^4 árum.
Sagði hann samninginn mjög mikilvæga viður-
kenningu fyrir LOUIS-hugbúnaðinn og Softis
hf. en þýðing hans lægi ekki síður í auknum
tekjum sem hann myndi væntanlega skila fyrir-
tækinu.
Erfíð barátta
Björn Rúriksson, stjórnarformaður Softis,
fjallaði á fundinum um stöðu fyrirtækisins er
hann tók þar við stjórnarformennsku á aðal-
fundi þess sl. haust. Þá hefði fyrirtækið verið
langt leitt, skuldum vafið og kraftaverk þurft til
að snúa vörn í sókn. Að vandlega íhuguðu máli
hafi hann ákveðið að blása til sóknar og hefja
harðsnúna endurreisn sem nú væri að skila sér.
„I vaxandi mæli hefur Softis fengið um það
staðfestingu að samskiptalausnin LOUIS þjóni
mörgum fyrirtækjum betur og skilvirkar en
aðrar lausnir sem bjóðast.“
Viðskiptastofa SPRON boðar breytingar
Viðskiptastofa Sparisjóðs Hafnarfjarðar
Tekur upp
viðskipta-
vakt um rík-
isverðbréf
VIÐSKIPTASTOFA SPRON
hefur tekið upp viðskiptavakt
með helstu flokka ríkisverð-
bréfa.
Samkvæmt fréttatilkynningu
lýsir viðskiptastofa SPRON sig
viðskiptavaka með eftirtalda
flokka ríkisverðbréfa: RB00-
1010/K RS04-0410/K RS05-
0410/K BH22-1215/H BH21-
0115/H
Með þessum breytingum er
bankinn fyrst og fremst að
bregðast við þeirri þróun sem er
að eiga sér stað á íslenskum
Qármagnsmarkaði að sögn Arn-
ars Bjamasonar, framkvæmda-
stjóra Viðskiptastofu SPRON.
Hann segir viðskiptavaktina
verða með þeim hætti að á
hverjum morgni setji bankinn
fram kaup- og sölutilboð á VÞÍ í
ofangreinda flokka að lágmarki
10 m.kr. Hann telur eðlilegt að
\
V;%s> {
Ús j j
viðskiptastofan, sem hóf form-
lega starfsemi á þessu ári, fari
varlega af stað í upphafi en lík-
lega muni fleiri markflokkar
ríkisverðbréfa bætast í hópinn
fljótlega.
Kjósi SPRON að hætta við-
skiptavakt, mun það verða gert
með a.m.k. eins mánaðar fyrir-
vara.
Kaup- og söluþókn-
un bréfa 0,85%
VIÐSKIPTASTOFA Sparisjóðs
Hafnarfjarðar hefur lækkað kaup-
og söluþóknun á hlutabréfum úr
1,5% í 0,85% sem er lægsta þóknun
á íslenskum hlutabréfamarkaði í
dag að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu Sparisjóðsins. Lágmarks-
þóknun fyrir hver hlutabréfavið-
skipti verður 2.500 krónur.
Að sögn Helgu Benediktsdóttur,
miðlara á Viðskiptastofu Sparisjóðs
Hafnarfjarðar, hafa miklar breyt-
ingar átt sér stað á þessum markaði
síðastliðnar vikur. Viðskiptastofa
Sparisjóðsins reið á vaðið fyrst
verðbréfafyrirtækja hér á landi og
lækkaði söluþóknun sína úr 3% í
1,5% í apríl síðastliðnum sem var
minni þóknun en áður hafði þekkst.
I síðustu viku fylgdu önnur verð-
bréfafyrirtæki í kjölfarið og lækk-
uðu þóknun sína í 1% en tóku jafn-
framt upp kaupþóknun upp á 1%
sem hafði fram að því ekki viðgeng-
ist hér á landi en er að mati Helgu
eðlileg krafa og í takt við þá við-
skiptahætti sem tíðkast á hluta-
bréfamörkuðum erlendis.
Helga segir lækkun þóknana
ánægjuefni og telur víst að fram-
kvæmdin hafi átt þátt í að auka
veltu hlutabréfa talsvert sem gerir
viðskiptahæfni þeirra meiri.
Lágmarki náð
Með nýjustu breytingu á gjald-
skrá sinni hefur Sparisjóður Hafn-
arfjarðar aftur fært sig niður fyrii’
keppinautana og býður nú um
0,15% lægri þóknun en aðrir á
markaðnum. Helga segir það frum-
kvæði Viðskiptastofunnar í vor, að
lækka þóknunina úr 3 í 1,5% hafa
verið byggt á mati manna þess efnis
að ákveðið svigrúm til slíkra að-
gerða væri til staðar: „Enginn vafi
leikur á að sú ákvörðun var á rökum
reist sem sést glögglega á þeim
þróun sem átt hefur sér stað síðustu
vikur. Velta Viðskiptastofu Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar var t.a.m. tölu-
vert meiri í maí en samanlögð velta
hennar fyrstu fjóra mánuðina í
fyrra“.
Hún segir aldrei að vita hvað
framtíðin beri í skauti sér en telur
lítinn grundvöll íyrir frekari lækk-
unum að svo stöddu.
Líflegt
á Verð-
bréfaþingi
VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi
námu alls 744 milljónum króna
í gær, þar af námu viðskipti
með hlutabréf 151 m.kr. sem
eru jafnframt mestu viðskipti
sem átt hafa sér stað á einum
degi á þessu ári.
Viðskipti með hlutabréf voru
mest með bréf Eimskipafélags-
ins, alls 32 m.kr, Flugleiða 30
m.kr. og með Granda og ís-
landsbanka 16 m.kr. hvort fé-
lag. Úrvalsvísitala Aðallista
lækkaði um 0,09%.
Aðalfundur
Samvinnutrygginga
og Andvöku
Svipuð af-
koma og
í fyrra
EIGNARHALDSFÉLÖGIN
Samvinnutryggingar og And-
vaka g.f. skiluðu bæði hagnaði
á síðasta ári að því er fram
kemur í ársskýrslum félag-
anna. Hagnaður Samvinnu-
trygginga nam rúmum 67
milljónum í fyrra, samanborið
við rúmar 72 milljónir árið á
undan. Samkvæmt rekstrar-
reikningi nam eigið fé félagsins
491,3 m.kr. í árslok 1997. And-
vaka skilaði 13,4 m.kr. hagnaði
á síðasta ári, sem er um 600
þúsund krónum minna en árið
1996. Eigið fé í árslok 1997 var
171,7 m.kr.
Félögin eru bæði hluthafar í
Líftryggingafélagi Islands hf.
Andvaka á 44,44% hlutafjár í
Líftryggingafélaginu en eign-
arhlutur Samvinnutiygginga
nemur 23,2%, auk 50,1% eign-
arhluta í Andvöku g.f.
Ein breyting var gerð á
stjórn félaganna, á aðalfundi
þeirra s.l. mánudag. Magnús
Gauti Gautason, sem nýlega
hætti störfum sem Kaupfélags-
stjóri KEA, vék sæti fyrir eft-
irmanni sínum hjá Kaupfélag-
inu, Eiríki S. Jóhannssyni, sem
kjörinn var í hans stað. Aðrir
stjórnarmenn eru Ingólfur
Ólafsson, Karvel Ögmundsson,
Sigurður Markússon og Óskar
Gunnarsson sem jafnframt er
stjórnarformaður.
Aðgerðir Búnaðarbankans á hlutabréfamarkaði auka seljanleika hlutabréfa
Eykur þrýsting á
virka fjárfesta
AÐGERÐIR Búnaðarbankans á
hlutabréfamarkaðinum auka selj-
anleika hlutabréfa, að sögn Stefáns
Halldórssonar, framkvæmdastjóra
Verðbréfaþings íslands. Eins og
komið hefur fram í Morgunblaðinu
hefur Búnaðarbankinn skuldbund-
ið sig til að leggja fram einnar
milljónar króna kaup- og sölutilboð
í 10 af 15 stærstu fyrirtækjum á
hlutabréfamarkaði á hverjum degi.
Stefán segist fagna þessum að-
gerðum.
Brúar bil milli kaup-
og sölutilboða
„Það er alveg ljóst að þessar að-
gerðir auka líkurnar á að alltaf séu
til kaup- og sölutilboð sem aðrir
þátttakendur á markaði geti geng-
ið að. Við upphaf viðskiptadags
hefur stundum komið fyrir að lítið
hefur verið um tilboð í sum bréf;
þau hafa jafnvel bara verið í aðra
áttina, annaðhvort kaup- eða sölu-
tilboð. Líka hefur komið fyrir að
verðbil hefur verið talsvert milli
kaup- og sölutilboða og hvorugur
tilboðsgjafinn sætt sig við að stíga
skrefið þar á milli. Búnaðarbank-
inn hyggst leitast við að hafa verð-
bil með minna móti og þá aukast
líkurnar á að kaupandi eða seljandi
geti sætt sig við móttilboð. Af þess-
um völdum eykst seljanleiki hluta-
bréfa,“ segir Stefán.
Einnig hefur oft gerst, að áhuga-
verð tilboð hafi komið á morgnana
en síðan leitt til viðskipta og engin
ný tilboð komið í staðinn. „Sérstak-
lega gerist þetta ef um er að ræða
tilboð frá einstaklingum sem ætla
sér ekki að kaupa eða selja meira
en gefið var til kynna. Búnaðar-
bankinn hyggst hins vegar fylla í
„hillumar" jafnóðum og þær tæm-
ast. Það stuðlar líka að auknum
seljanleika," segir Stefán.
Flýtir atburðarásinni
Hann segir að í einhverjum mæli
gætu aðgerðirnar haft þau áhrif að
fjárfestar snúi sér frekar að hluta-
bréfakaupum, en þó sé enn of
snemmt að slá því föstu að þær
leiði til mikillar viðskiptaaukning-
ar. „Hins vegar má álykta að núna
geti það gengið mun greiðar fyrir
sig sem teygðist áður yfir lengri
tíma.“ Hann nefnir dæmi um at-
burðarásina eins og hún gat áður
verið: Viðskipti verða með bréf í
dag og þá klárast áhugaverð tilboð
af markaðinum. Menn lesa um
þessi viðskipti í Morgunblaðinu
daginn eftir og fara þá að bregðast
við. Þannig verður bið á viðbrögð-
unum. Núna leitast menn við að
bregðast við innan nokkurra mín-
útna.
Lækkun á þóknun liðkar
fyrir viðskiptum
„Þetta eykur að vissu leyti
þrýsting á virka fjárfesta að fylgj-
ast vel með hreyfingum. Verðið
kann að vera að þróast í einhverja
átt og tækifærin eru fljótari að
renna mönnum úr greipum," segir
Stefán.
Jóhannes Siggeirsson, fram-
kvæmdastjóri Sameinaða lífeyris-
sjóðsins, segist fagna þessu fram-
taki Búnaðarbankans. Hann segist
alltaf hafa verið á þeirri skoðun að
há þóknun hafi hindrað viðskipti
með hlutabréf, en nú hafi Búnaðar-
bankinn, og fleiri þingaðilar í kjöl-
farið, lækkað söluþóknun niður í
1% og tekið upp 1% kaupþóknun.
Jóhannes segir að Sameinaði líf-
eyrissjóðurinn líti á sig sem lang-
tímafjárfesti, þótt hann sé töluvert
virkur á markaðinum. „Við rennum
hýru auga til væntanlegrar mið-
stöðvar um rafræna skráningu og
vonum að rafræn skráning minnki
vinnu allra í kringum þessi mál;
minnki kostnað og auðveldi við-
skipti."
Að sögn Jóhannesar hafa að-
gerðir Búnaðarbankans og breytt
markaðsumhverfi ekki afgerandi
áhrif á val Sameinaða lífeyrissjóðs-
ins milli fjárfestingarkosta. „Við
höfum verið með 7-8% af eignum
okkar í hlutabréfum og höfum
hugsað okkur að halda áfram á
þeirri braut,“ segir hann.