Morgunblaðið - 24.06.1998, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Ein lítil
ástarsaga
KVIKMYMIIR
l’ólsk kvikmyndaliátíð
Bæjarbíó í Hafnarfirði
STUTT MYND UM ÁST
„KRÓTKI FILM 0 MITOSCI"
Leikstjóri: Krzysztof Kieslowski.
Handrit: Kieslowski og Krzysztof
Piesiewicz. Kvikmyndatökusljóri:
Witold Adamek. Tónlist: Zbigniew
Preisner. Aðalhlutverk: Grazyna Sza-
polowska, Olaf Lubaszenko, Stefania
Iwinska, Artliur Barcis. Enskur texti.
EIN af bestu myndum hins ann-
álaða pólska leikstjóra Krzysztof
Kieslowskis, Stutt mynd um ást, er
sýnd á pólsku kvikmyndahátíðinni í
Bæjarbíói í Hafnarfírði en hún er
frá árinu 1988 og er ein af tíu
svokölluðum Boðorðamyndum leik-
stjórans. I myndinni fjallar
Kieslowski um ástina á sinn sér-
staka og ómótstæðilega húmaníska
máta eins og hún hittir tvo ólíka ein-
staklinga, mann og konu, beint í
hjartað.
Þetta eru ólíkir einstaklingar
vegna þess að maðurinn hefur þá
trú að hægt sé að vera ástfanginn,
að ástin sé til og að hann sjálfur sé
besta dæmi þess, en konan segir á
hinn bóginn að ekki sé til þetta fyr-
irbrigði sem kallað er ást; því sé
hins vegar oft ruglað saman við
kynlíf, sem er allt annað. Maðurinn
dýrkar konuna úr fjarlægð. I heilt
ár hefur hann njósnað um hana úr
herbergisglugganum sínum í blokk-
inni sem hann býr í. íbúðin hennar
er í blokkinni beint á móti og hann
situr löngum stundum á kvöldin
framan við þjófstolinn sjónauka og
fylgist með hverri hreyfingu henn-
ar.
En hann gerir meira þótt ekki
hafi hann nægilegan kjark til þess
að koma úr skápnum ef svo má
segja. Hann hringir í hana og þegir
í símann; þegar hún er með karl-
manni í íbúðinni kallar hann til við-
gerðarmenn frá gasveitunni og seg-
ir að það sé gasleki hjá henni; hann
vinnur á póstinum og heldur eftir
bréfum til hennar; hann sendir hana
erindisleysur í pósthúsið svo hann
geti horft á hana og jafnvel skipst á
nokkrum setningum við hana; hann
ber út mjólk til hennar snemma á
morgnana svo hann geti skoðað
hana í nærmynd í náttsloppnum.
Hann er einn og sér eins og heilt
eftirlitskerfi kommúnistanna sem
áður réðu landinu.
Hún lifir frjálslegu kynlífi. Menn
eru sífellt að koma og fara úr íbúð-
inni hennar honum til nokkurrar
depurðar. Á endanum segir hann
henni allt um það sem hann hefur
verið að gera og hún skynjar að
hann á ekkert illt til en segir honum
jafnframt að allt tal um ást sé blað-
ur. Þar með getur ekki veiið að
hann sé ástfanginn af henni heldur
girnist hann hana og það er allt
annað mál. Hann er eyðilagður
maður og reynir sjálfsmorð en
henni verður ljóst að tilvera hans og
gerðir eru nægar sannanir fyrir því
að ástin er til og áður óþekktar til-
finningar vakna með henni.
Stutt mynd um ást er snilldarleg
lítil saga kvikmynduð af tærri full-
komnun undir vakandi auga
Kieslowskis. „Rear Window" eftir
meistara Hitchcock kemur upp í
hugann og einnig „Monsieur Hire“
um gluggagæginn með gullhjartað
af því þær byggja að nokkru á sömu
gægjufíkninni. I mynd Kieslowskis
stjómast ungi maðurinn, sem við
ættum að fyrirlíta, af hreinni og
ómengaðri ást og fölskvalausri virð-
ingu fyrir konunni sem hann elskar
og hann fær alla samúð áhorfand-
ans. Myndin er tekin á myndavél
sem haldið er á, sem var meira ný-
mæli fyrir áratug, og færir áhorf-
endur markvisst nær persónunum
og atburðarásinni og gerir þá einnig
að fólki á gægjum. Ytir hið nötur-
lega pólska blokkarraunsæi í mynd-
inni undir þá tilfinningu.
Leikurinn er dæmalaust góður.
Grazyna Szapolowska og Olaf Lu-
baszenko eru hið sérkennilega par
og slá ekki feilnótu undir stjórn
meistarans. Kieslowski fer kannski
óvenjulega að því en hann sannar í
það minnsta að það er sannarlega
nokkuð til sem heitir ást.
Arnaldur Indriðason
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
TRÍÓ Ólafs Stephensen: Ólafur Stephensen á píanó, Tómas R. Einarsson á bassa og Guðmundur
R. Einarsson á trommur eru meðal þeirra sem leika á Djasshátíð Egilsstaða.
Djasshátíð
Egilsstaða í
ellefta sinn
Flókið ráðabrugg
KVIKMYMIIR
Stjörnubíó
VILLTIR HLUTIR
„WILD THINGS“ ★ ★
Leiksljóri: John Mcnaughton. Hand-
rit: Steven Peters. Kvikmyndatöku-
sfjdri: Jeffrey L. Kimball. Tónlist: Ge-
orge S. Clinton. Aðalhlutverk: Matt
Dillon, Kevin Bacon, Neve Campbell,
Denise Richards, Bill Murray, Teresa
Russell og Robert Wagner. Columbia
1998.
SPENNUMYNDIN Villtir hlutir
eða „Wild Things“ er eftir leikstjór-
ann John Mcnaughton sem aflaði sér
frægðar með Henry: Nærmynd af
fjöldamorðingja, skelfing óþægilegri
lýsingu á gerðum fjöldamorðingja
sem hann filmaði í nokkurs konar
heimildarmyndastíl. Þessi mynd er
allt annað, dæmigerður formúlutryllir
frá Hollywood eða spennusápa eftir
því hvernig á það er litið, um kennara
í skóla fyrir hina ríku, sem sakaður er
um að hafa nauðgað einum nemanda
sínum. En bráðlega kemur í Ijós að
ekki er allt sem sýnist í þeim efnum.
Matt Dillon leikur hinn fjallmynd-
arlega kennara sem ungu stúlkurnar
í skólanum virðast girnast óskaplega
og sýna það með ýmsum tilburðum.
Hann sjálfur virðist forðast þær eins
og heitan eldinn líkt og hann viti í
hvers konar vandræði hann gæti
komist ef hann gætir sín ekki. Og
það passar, hann er strax komin í
bragðvont eftir stutta samverustund
með ungri stúlku úr skólanum.
Það væri ósanngjarnt að greina
frekar frá plottinu í myndinni en
það vindur upp á sig með æ fleiri
óvæntum uppákomum þangað til
maður er eiginlega hættur að kippa
sér upp við þær. Handritshöfundur-
inn, Steven Peters, ofhleður söguna
með því að ætla að koma áhorfend-
unum sífellt á óvart þangað til hún
hættir að vera trúverðug. Næstum
engin persóna myndarinnar er sú
sem hún segist vera. Allir hafa eitt-
hvað að fela eða sigla undir fölsku
flaggi. Það gengur upp framan af
myndinni en er orðið næsta langsótt
og margflókið þegar fer að glitta í
endalokin.
Mcnaughton skapar enga verulega
spennu úr efniviðnum, hvorki sál-
ræna né kynferðislega, þótt hann
leggi sig í líma við það síðamefnda,
en leikararnir hans standa vel fyrir
sínu. Dillon er fínn hvort sem hann
er sakleysingi eða drullusokkur.
Neve Campbell og Denise Richards
eru ágætar sem skólastúlkur með
undarlegar hugmyndir í kollinum.
Aukahlutverkin eru bráðgóð. Þannig
er Bill Murray eins og hrekkjalómur
í hlutverki lögfræðings kennarans og
Teresa Russell er verulega tíkarleg
móðir annarrar stúlkunnar.
Áður en fer að slá út í fyrir henni
hefur myndin ákveðið afþreyingar-
gildi sem ekki skal vanmetið og ef
Macnaughton og Peters hefðu hald-
ið aftur af sér hefðu þeir eflaust
getað gert skínandi góða mynd.
Arnaldur Indriðason
Hvílíkt öryggi!
ABS hemlakerfi
Framtíðarbíllinn Sirion
Frumsýndur 25. - 28. júní
Egilsstödum. Morgunblaðið.
NÚ er undirbúningur í fullum
gangi fyrir Djasshátíð Egils-
staða, sem haldin verður í ell-
efta sinn 25.-27. júní nk.
Hátíðin verður á léttum og
hefðbundnum nótum að sögn
Árna Isleifs, sem er og hefur
verið aðalskipuleggjandi Djass-
hátíðanna.
Meðal efnis hátíðarinnar má
nefna Kvartett víbrafónleikar-
ans Árna Scheving ásamt söng-
konunni Þóru Grétu Þórisdótt-
ur, Tríó Ólafs Stephensen og
Amís-kisulórumar. Muff Wor-
den, Margrét Lára (Lady M) og
Aðalheiður Borgþórsdóttir
syngja saman í djasstríói.
Djasssmiðja Austurlands býður
upp á ungliða-Latín-band,
einnig Dixie- og Swing-band.
Jam Session verður í lokin og
ÁRNI Scheving víbrafónleikari
verður á Djasshátíð Egilsstaða.
munu djassgeggjarar frá
Reykjavík, Húsavík, Akureyri
og Austfjörðum leiða þar sam-
an hesta sína. Djasshátíð Egils-
staða verður haldin í Vala-
skjálf.
Sumarkvöld
í Neðsta-
kaupstað
SUMARKVÖLD í Neðsta-
kaupstað verður í Tjöruhús-
inu, Neðstakaupstað á ísafirði
fimmtudagskvöldið 25. júní kl.
20.30. Viðfangsefni: Laxness
og Vestfirðir. Einar Kárason
og Halldór Guðmundsson
fjalla um tengsl Halldórs Lax-
ness og Vestfjarða, fyrirmynd-
ir í bókum skáldsins og ferða-
lög hans um Vestfirði.
Síðustu þrjú sumur hafa
Sumarkvöld í Neðstakaupstað
verið að vinna sér sess sem
fastur liður í dagskrá sumars-
ins.
I sumar eru fyrirhugaðar
dagskrár í þremur kirkjum á
Vestfjörðum. í Ögurkirkju
verður dagskrá næstkomandi
sunnudag 28. júní kl. 16. þar
fjallar Björn Teitsson sagn-
fræðingur um sögu kirkjunnar
og staðarins og Söngfjelagið
úr Neðsta syngur.