Morgunblaðið - 22.08.1998, Page 44
* 44 LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
MARGRÉT
LEÓSDÓTTIR
+ Margrét Leós-
dóttir fæddist á
fsafirði 22. júní
1914. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Isafirði 11.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Kristín
Halldórsdóttir hús-
móðir, f. 25.9. 1875
á Laugabóli í fsa-
firði, d. 26.9. 1956,
og Leó Eyjólfsson,
söðlasmiður og
kaupmaður, f. 1.11.
1867 að Kleifum í
Giisfirði, d. 26.3. 1940. Bræður
Margrétar voru: Steinn (hálf-
bróðir samfeðra), f. 1899. Þór-
haiiur, f. 1900, Jón Ilalldór, f.
1901, Eyjólfur Ámundi, f. 1905,
Jóhann Ágúst, f. 1908 og tví-
burarnir Leó Geirdal og Krist-
ján ísfjörð, f. 1911. Auk þess
átti Margrét eina systur, Guð-
rúnu, f. 1903, en hún dó 3 mán-
aða gömul.
Hinn 8. mars 1945 giftist
Margrét eftirlifandi eiginmanni
sínum, Jóhanni Júlíussyni, f.
26.3. 1912, útgerðarmaður á
Isafirði. Foreldrar hans voru
Guðrún Jónsdóttir og Júiius
Geirmundsson, útvegsbóndi á
Atlastöðum í Fljótavík. Synir
Margrétar og Jóhanns eru: 1)
Leó Július, f. 20.5. 1948, ljós-
myndari í Austurríki, kona hans
er Erika Jóhanns-
son. Þeirra börn
eru: Ulrika og Paul.
2) Kristján Guð-
mundur, f. 11.1.
1954, framkvæmda-
stjóri á ísafirði,
kona hans er Inga
Steinunn Olafsdótt-
ir, ferðafræðingur.
Synir þeirra eru
Pétur Björn og
Ólafur. Fósturdóttir
Margrétar og Jó-
hanns er Jónína
Ólöf Högnadóttir
(systurdóttir Jó-
hanns), f. 29.11; 1942, fram-
kvæmdastjóri á Isafirði. Maður
hennar er Birkir Þorsteinsson
og eru dætur þeirra Margrét
Jóhanna og Björk.
Margrét var við nám í Hús-
mæðraskólanum Ósk á ísafirði
1934-1935. Á árunum 1937 til
1945 héit hún hús fyrir bræður
sína í Reykjavík. Margrét og Jó-
hann stofnuðu árið 1955 ásamt
tvennum öðrum hjónum útgerð-
arfyrirtækið Gunnvöru hf., sem
nú er eitt stærsta sjávarútvegs-
fyrirtæki á Vestfjörðum. Um
margra ára skeið sáu þau hjón
um rekstur Skóverslunar Leós,
sem faðir hennar stofnaði árið
1904.
títför Margrétar fer fram frá
IsaQarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin kiukkan 11.30.
Öll vitum við að kallið getur kom-
ið hvenær sem er, en samt erum við
aldrei viðbúin þegar að því kemur.
-% Þannig var það líka þegar við viss-
um að amma Gréta væri orðin veik.
Það hvarflaði ekki að okkur að hún
færi ekki aftur heim til afa. En nú
er hún farin í sína hinstu fór og eftir
sitjum við og syrgjum.
Hjartkæra amma, far í friði,
foðurlandið himneskt á,
þúsundfaldar þakkir hljóttu
þínum litlu vinum frá.
Vertu sæl um allar aldir
alvaldshendi falin ver,
inn í landið unaðsbjarta,
englar Drottins fylgi þér.
(Höf. óþekktur).
Fyrstu minningar okkar um
ömmu eru þegar við fói’um í skó-
«, búðina til hennar og afa og þá var
nú oft laumað skókassa í litlar hend-
ur. Ömmu var líka gott heim að
sækja, þar var ætíð laumað litlum
molum í litla munna. Amma var
mjög frændrækin og hafði mikið af
myndum uppi við og sagði hún okk-
ur alltaf frá hverri fyrir sig, því
hver mynd hafði sína sögu.
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum.
Það yrði margt, ef telja skyldi það.
í lífsins bók það lifir samt í minnum,
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita stóra hjarta
þá helgu tryggð og vináttunnar ljós
er gerir jafnvel dimma daga bjarta,
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(Margrét Jónsd.)
- >
Samrýndari hjón er nú vart hægt
að hugsa sér, því sjaldan hitti mað-
ur ömmu öðruvísi en haldandi í
höndina á afa. Nú verður skrýtið að
fara í Hafnarstrætið og hitta þig
ekki þar, elsku amma. En minning-
in um þig mun lifa í hjarta okkar
allra. Við biðjum þig góði Guð að
styrkja hann afa okkar í sorginni.
Þó aé kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
_ (Vatnsenda-Rósa)
r Blómabúðin >
öa^*3skom
. v/ FossvagskirUjwcjcirð .
X. Sími. 554 0500 y'
Guð blessi minningu þína, elsku
amma.
Þín,
Helga, Tinna, Birkir
Halldór og Anna Lóa.
Stuttu fyrir aldamótin fluttist til
Isafjarðar ungur söðlasmiður, Leó
Eyjólfsson bónda á Kleifum í Gils-
firði, Bjarnasonar. Hann kvæntist
þar Kristínu, dóttur Halldórs Jóns-
sonar sem lengi var bóndi á Rauða-
mýri við ísafjarðardjúp. Leó stofn-
setti árið 1904 skóverslun, er síðan
hefur borið nafn hans. Þau Kristín
9g Leó bjuggu í Hrannargötu 8 á
ísafirði og var heimilisbragur þar til
fyrirmyndar.
Þau áttu sex syni saman, en einn
son hafði hann eignast áður. Yngsta
barn þeirra var svo Margrét, sem
nú er kvödd síðust systkinanna.
Hún varð fljótt stoð og stytta móður
sinnar við umfangsmikil heimilis-
störf. Eftir nám í Húsmæðraskólan-
um Ósk á Isafirði veturinn 1934-35
hélt Margrét heimili fyrir þrjá
bræður sína í Reykjavík í nokkur
ár, frá 1937. Hún fluttist svo aftur
til Isafjarðar og giftist þar Jóhanni
Júlíussyni úr Fljótavík vorið 1945.
Eftir lát Leós Eyjólfssonar 1940
tók Ágúst, bróðir Margrétar, við
rekstri skóverslunarinnar og Krist-
ján bróðir þeirra, faðir okkar, starf-
aði með honum við verslunina frá
1942. í húsinu í Hafnarstræti 5 þar
sem verslunin hefur verið síðan
1945 bjuggu einnig Margrét og Jó-
hann og synimir tveir. Mjög gest-
kvæmt var á heimili þeirra og í
mörgu að snúast fyrir húsmóðurina,
ekki síst vegna vaxandi umsvifa Jó-
hanns við fiskverkun og fiskverslun
upp úr 1950. Þau hjón stofnuðu síð-
an ásamt öðrum útgerðarfélagið
Gunnvöru hf. haustið 1955. Það fé-
lag hefur alla tíð verið bæjarfélag-
inu mikil lyftistöng með útgerð öfl-
ugra skipa og annarri starfsemi í
fískvinnslu, enda rekið af einstökum
myndarbrag og framsýni svo að at-
hygli hefur vakið hérlendis sem er-
lendis.
Á árinu 1960 fluttu Ágúst, Krist-
ján, Margrét og fjölskyldur í reisu-
legt hús sem þau byggðu við hlið
skóverslunarinnar. Lýsti það enn
stórhug og trú á framtíð kaupstað-
arins, því að ekki var mikið um ný-
byggingar á Isafirði um þær mund-
ir. Var ávallt gott samband milli
fjölskyldnanna í Hafnarstræti 7.
Þegar Ágúst lést 1981 var vandi á
höndum um framtíð verslunarinnar.
Margrét vildi þá ekki láta merki
þessa gróna fyrirtækis niður faUa
og ákvað að leggja Kristjáni, bróður
sínum, lið í daglegri afgreiðslu þar.
Kristján Guðmundur, sonur hennar,
tók við framkvæmdastjórn og voru
Margrét og Jóhann síðan við störf í
búðinni vel fram yfir áttrætt. Marg-
ir ísfirðingar, heimamenn og brott-
fluttir, hafa haft á orði hve
skemmtilegt hafi jafnan verið að
koma þangað inn og spjalla við þau
hjónin.
Um Leó Eyjólfsson, fóður Mar-
grétar, var sagt í eftirmælum, að
hann hafi verið fróður og fylgst vel
með almennum málum, glettinn og
gamansamur með þeim er hann
þekkti vel, orðvar og áreiðanlegur í
viðskiptum, sjálfstæður í skoðunum
og fastur fyrir, en þó frjálslyndur.
Um Kristínu, móður hennar, var
sagt að hún hafi verið hin ágætasta
eiginkona og móðir, sem helgaði
fjölskyldu sinni starfskrafta sína.
Allt þetta í fari foreldranna átti við
um Margréti Leósdóttur, en bæta
má við að hún var mjög frændræk-
in. Hún og hennar fólk reyndust
foður okkar afar vel við fráfall móð-
ur okkar 1968, sem og í veikindum
þeim sem hrjáðu hann frá því um
1983 til dánardags vorið 1988. Mar-
grét frænka lagði sig mjög fram við
að viðhalda tengslum við skyldfólkið
og kynnast nýjum meðlimum í þeim
hópi og eins sýndi hún minningu
látinna ættmenna mikla ræktar-
semi. Grétu frænku verður sárt
saknað víða og við bræðurnir og
fjölskyldur okkar sendum Jóhanni,
sonunum og fósturdótturinni,
Jónínu Ólöfu, og fjölskyldum þeirra
innilegar samúðarkveðjur.
Krislján P. Kristjánsson
og Leó Kristjánsson.
„Svo er margt sinnið sem skinn-
ið“ segir gamalt máltæki en það
þýðir á nútímamáli að hver einstak-
lingur hafi sinn stíl og kemur í hug-
ann þegar minnst er Grétu föður-
systur - hún var svo sérstök; svo
einstakur persónuleiki. Gréta hafði
meiri útgeislun en flest annað fólk,
hún bókstaflega stafaði frá sér ást
og hlýju; hún var sólin í föðurætt-
inni. Gréta var hreinræktaður Is-
firðingur og var ekkert feimin við
að dásama Isafjörð. Hún hefði get-
að búið hvar sem hana langaði til en
hún talaði aldrei um ísafjörð öðru-
vísi en sem besta stað á jarðríki,
sama á hverju gekk í byggðarlaginu
og hún sannfærði mann um að svo
væri. Alla mína bemsku var Isa-
fjörður draumaland, ekki síst vegna
áhrifa frá Grétu. Og enn er Isa-
fjörður baðaður einhverjum töfra-
ljóma sem Gréta skapaði á sinn sér-
staka hátt - hún kom með ísafjörð
með sér til Reykjavíkur og gerði að
ævintýri á meðal okkar krakkanna.
En sólin átti sér fylgihnött sem
snerist kringum hana og var hluti af
ævintýrinu; Gréta og Jói voru óað-
skiljanleg, samhent hjón og bæði
sérfræðingar í að ofdekra okkur
krakkana. Ástföngnu fólki fylgir
eitthvað óútskýranlegt, einhver
fjarhrif sem geta einnig haft góð
áhrif á aðra. Gréta og Jói voru alltaf
ástfangin og þau földu það ekki fyr-
ir neinum: Það var alltaf sunnudag-
ur þegar Gréta og Jói vom í heim-
sókn og það var alltaf hátíð þegar
komið var heim til þeirra á ísafirði
- og alltaf eins og þau og aðrir við-
staddir ættu sameiginlegt afmæli.
Jóhann Júlíusson, Geirmundsson-
ar frá Hesteyri; sjómaður, stýri-
maður, skipstjóri, fiskverkandi, út-
gerðarmaður og eiginmaður Grétu
var og er enginn venjulegur maður
- í augum smáfólksins var Jói held-
ur enginn venjulegur frændi. Ef til
vill eru börn næmari á þessa út-
geislun - þessa dularfullu ára sem
gerir sumt fólk svo spennandi.
Gréta og Jói höfðu þennan sér-
kennilega eiginleika og þau töluðu
ekki bara við börn, sem margir full-
orðnir gera ekki, heldur gerðu það
þannig að tilveran varð bjartari,
skemmtilegri og meira spennandi
og, umfram allt, hlýrri og betri.
Gréta, sem var hafsjór af fróðleik,
hafði þá náðargáfu að geta sagt
þannig frá að eftir væri tekið. Þegar
hún rakti ættir okkar, sem hún
gjörþekkti, var það engin þurr upp-
talning heldur ljóslifandi frásögn;
hún tók mann með sér í ímyndað
ferðalag um Djúpið, Steingríms-
fjörð og annað og sagði þannig frá
forfeðrum og formæðram að urðu
ljóslifandi fyrir hugskotsjónum.
Skáldgáfan lá í fóðurættinni og
Gréta var skáld þótt hún setti ekki
sín hugverk á prent - enginn nema
skáld hefur þennan frásagnarhæfi-
leika; hún var talandi skáld og ef til
vill hefur það verið skáldgáfa sem
gaf Grétu þessa mögnuðu persónu-
lega útgeislun; hún var alltaf ung,
ástfangin og lífsglöð. Gréta gaf okk-
ur eitthvað sem er æðra daglegu
striti, eitthvað sem gerir tilveruna
ánægjulegri.
Um leið og ég og systkini mín
vottum Jóa og sonunum Leó og Kri-
stjáni, fjölskyldum þeirra og öðram
vandamönnum samúð okkar þakka
ég Grétu frænku samfylgdina sem
þó verður aldrei þökkuð sem skyldi.
Leó M. Jónsson.
Fyrir Alþingiskosningarnar 1963
ók ég frambjóðendum Framsóknar-
flokksins á Vestfjörðum á milli
framboðsfunda. Þegar til Isafjarðar
kom, skipaði Jón Jóhannsson,
ókrýndur forustumaður flokksins
þar, mönnum á heimili í bænum til
gistingar. Ég var sendur til Jó-
hanns Júlíussonar, útgerðarmanns,
og konu hans Margrétar Leósdótt-
ur. Mér var sannarlega ekki í kot
vísað. Hjá þessum mætu hjónum
gisti ég síðan í 24 ár og naut þeirra
stórkostlegu gestrisni. Heimili
þeirra var sem mitt heimili á Isa-
firði. Mér var ætíð tekið opnum
örmum, hvort sem var á nóttu eða
degi.
Nú er Margrét fallin frá. Þar
þykir mér mikið skarð fyrir skildi.
Með fáeinum fátæklegum orðum vil
ég þakka Margréti frábærar mót-
tökur og þann hlýhug og skilning,
sem var ætíð hjá henni að finna.
Það er mér mikils virði að hafa átt
Margréti að vini.
Margrét var frábær húsmóðir og
eiginkona. Ánægjulegt var að fylgj-
ast með því hvað hún og Jóhann
voru samrýnd. Hún studdi dyggi-
lega við bak Jóhanns í stórútgerð
hans og hann hljóp undir bagga
með henni, ef á þurfti að halda. Um
slíkt þurfti aldrei að biðja. Farsælla
hjónaband verður varla fundið.
Mikill er missir Jóhanns.
Margrét var fædd á ísafirði 1914.
Hún var eina stúlkan í sjö bama
hópi og í miklu dálæti hjá sínum
bræðrum. Sú gagnkvæma vinátta
hélst á meðan þeir lifðu. Á heimili
Margrétar og Jóhanns var oft gest-
kvæmt. Vina- og kunningjahópur-
inn var stór og þar voru allir vel-
komnir. Umræður gátu verið lífleg-
ar enda Margrét fróð vel og hafði
ákveðnar skoðanir. Aldrei sá ég þó
Margréti skipta skapi. Hún var ætíð
létt og glaðvær og sýndi skilning og
sanngirni þótt hún kynni að vera á
öndverðum meiði.
Þau Jóhann eignuðust tvo syni,
Leó og Kristján. Leó er góður lista-
maður. Hann rak í nokkur ár ljós-
myndastofu á Isafirði en býr nú
ásamt eiginkonu sinni í Austurríki.
Krístján er kvæntur og býr á Isa-
firði þar sem hann rekur af miklum
dugnaði hið glæsilega útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtæki fjölskyldunnar.
Synimir voru ætíð augasteinar
móður sinnar og þeir henni afar
góðir.
Við Edda sendum Jóhanni, Leó
og Kristjáni og öðram ættingjum
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Steingrímur Hermannsson.
Andlát Grétu frænku kom á óvart
þótt hún væri orðin 84 ára gömul.
Hún var ung í anda, alltaf svo kát
og hress. Þegar við ræddum síðast
saman í síma kvartaði hún undan
slæmum verk í baki. Við töluðum
um að þetta væri víst gigtin sem
lengi hafði hrjáð hana. En annað
kom í ljós. Tíu dögum seinna var
hún öU.
Margrét Leósdóttir fæddist og
ólst upp á Isafirði með samhentri
fjölskyldu, við reglusemi, prúð-
mennsku og heiðarleika. Hún var
yngst og í uppáhaldi sem eina
systirin, en bræður hennar sex og
hálfbróðir eru allir látnir. Sumir
bræðra hennar fluttust til Reykja-
víkur og vann hún þá hjá þeim um
tíma sem ráðskona.
Hún giftist athafnamanninum Jó-
hanni Júlíussyni árið 1945. Þau hafa
búið allan sinn búskap á ísafirði,
lengst af í húsinu Hafnarstræti 7,
sem þau byggðu ásamt bræðram
hennar, Ágústi og Kristjáni. Krist-
ján G. sonur þeirra og Inga kona
hans búa þar einnig og hafa þau
verið Grétu og Jóhanni ómetanleg
stoð hin síðari ár.
Heimilið hefur einkennst af
myndarskap og rausn og hafa hjón-
in verið samhent í gestrisni og
ræktarsemi við frændfólk og vini.
Gréta aðstoðaði og studdi mann
sinn við uppbyggingu og rekstur út-
gerðarfélagsins Gunnvarar sem þau
stofnuðu ásamt tvennum öðrum
hjónum. Gréta vann um tíma á ljós-
myndastofu Leós sonar þeirra. Eft-
ir að Jóhann dró úr afskiptum af
fyrirtækinu, sem Kristján G. sonur
þeirra hafði tekið við, ráku þau hjón
Skóverslun Leós, elstu starfandi
verslunina á Isafirði. Verslunin var
stofnuð af föður henpar, Leó Eyj-
ólfssyni, árið 1904. Ég veit að þau
höfðu mikla ánægju af þeim rekstri.
Sem dæmi um hug þeirra til fólks
sem Iendir í erfiðleikum má geta
þess að þau buðu öllum sem misst
höfðu sitt í snjóflóðunum í Súðavík
að koma í búðina til að velja sér skó.
Gréta var mannblendin og hafði
gaman af að ræða við fólk. Hún var
skemmtileg og fróð, alltaf velviljuð
og stálminnug. Aidrei kom maður
að tómum kofunum þegar spurt var
um ættfræði, menn eða málefni.
Hún var frændrækin og fylgdist vel
með öllu sínu skyldfólki.
Alltaf var tilhlökkunarefni að fara
vestur, í heimsókn til Grétu og Jó-
hanns, því við vorum alltaf svo inni-
lega velkomin. Einnig var ánægju-
legt að fá þau í heimsókn hingað að
Laugalandi. Þegar Gréta kvaddi
mig í júlí, í síðustu heimsókn þeirra
hingað, spurði hún hvort ég kæmi
ekki vestur í sumar. Jú, svaraði ég,
við komum í haust. Nú erum við á
Isafirði í dag en ekki grunaði mig
þá að það yrði til að vera við jarðar-
fór hennar.
Ég á margar og góðar minningar
um Grétu frænku. Samband okkar
var náið og ég sakna hennar mjög.
Við biðjum Guð að styðja og
styrkja Jóhann og fjölskylduna á
þessari kveðjustund. Guðs blessun
fylgi Grétu í hinstu ferðinni.
Síðustu orðin verða orð fóður-
systur hennar, Höllu Eyjólfsdóttur,
skáldkonu frá Laugabóli.
Ég lít í anda liðna tíð
er leynt í hjarta geymi.
Sú ljúfa minning - létt og h(jótt
hún læðist til mín dag og nótt,
svo aldrei, aldrei gleymi.
Lea Kristín Þórhallsdóttir.
Ein af perlum ísafjarðar, Mar-
grét Leósdóttir hefur nú lokið lífs-
göngu sinni, og fylgir sorg og sökn-
uður fráfalli hennar. Þessi perla
stóð svo sannarlega undir nafni, og
var jafnan kölluð Gréta af vinum og
kunningjum. Hún var svo sannar-
lega dóttir Isafjarðar í orðsins
fyllstu merkingu, og setti fallegan
svip á bæinn sinn. Gréta bjó mestan
part ævi sinnar á Isafirði utan
nokkur ár er hún var ráðskona hjá
bræðrum sínum í Reykjavík. Heim-
ili hennar, Hafnarstræti 7, á Isa-
firði, stórhýsi sem hún og Jói ásamt
bræðrum hennar byggðu af sam-
heldni og með glæsibrag í kringum
1960, við hliðina á Skóverslun Leós,
sem hún og fjölskylda hennar hafa
átt og rekið í tugi ára.
I sumar málaði ég og fleiri húsið
hennar að utan, og mikið var hún
hamingjusöm og ánægð með það, og
fannst bærinn sinn hafa fríkkað við
það. Það var algeng sjón og falleg
fyrir bæjarbúa að sjá þau hjón leið-
ast um bæinn. Til þess var tekið
hvað þau vora alltaf samhent og
samstiga. Þau áttu þennan bæ og
buðu öllum glaðlega góðan dag og