Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 39
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Elsku afi, mig lang-
ar til að kveðja þig í
hinsta sinn með þess-
um ljóðlínum.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guð blessi þig og varðveiti.
Þín
Una.
Þá muntu aftur öðlast ró og frið
sem endist að þínum dánarbeði.
Og sáttur skilstu veröldina við,
og vinir þínir jarða þig – með gleði.
(Tómas Guðmundsson.)
Það getur oft verið erfitt að tak-
ast á við hluti eins og dauðann, því
lengur sem maður heldur fasta
taki því erfiðara verður að sleppa.
Ég held elsku afi minn að þetta sé
akkúrat í þínu tilfelli. Þú varst
sterkur sem steinn, þú varst með
rót sem spannaði útum öll heims-
ins höf og þú varst ljúfur sem
lamb þrátt fyrir að þú létir skoð-
anir þínar ávallt í ljós. Þær eru
ótalmargar minningarnar sem ég,
Ingibjörg, Kristófer Ingi og Arnór
Ingi berum í brjóstum okkar og
sem betur fer getur enginn tekið
þær frá okkur. Ef ég ætti að stikla
á stóru þá kemur í ljós að maður
man ótrúlegustu hluti allt frá því
þegar þú varst skipstjóri á Skeiðs-
foss þar sem þú keyptir mín fyrstu
skíði, þegar þú vannst í Hvalfirði
og við Atli Sveinn heimsóttum þig,
sumarstarf hjá þér í Lýsi, ýmsar
ferðir í Trabantinum þínum og
loks að „hreinsa“ til í bílskúrnum
þínum „ömmu“ og „snyrta“ rósa-
runnann hennar ömmu. Elsku afi
okkar, við munum þig sem ynd-
islegan afa og langafa og umfram
allt sem yndislega persónu sem
ATLI
HELGASON
✝ Atli Helgasonfæddist í Kaup-
mannahöfn 7. júlí
1926. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 18. sept-
ember síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Kópavogs-
kirkju 1. október.
skilur fallegar og góð-
ar minningar eftir. Þú
varst alltaf tilbúinn að
gera allt fyrir okkur
sem og aðra og þú
varst ávallt svo ljúfur
og góður við Kristófer
Inga og fannst okkur
alltaf svo gaman að
koma í heimsókn til
ykkar ömmu „long“ í
Holtagerðið. Það var
ávallt stutt í stríðnina
og glensið og held ég
að ástæðan fyrir því
að þér þótti svo gam-
an að börnum sé að
það var ávallt svo stutt í barnið í
sjálfum þér.
Ekki fannst þér leiðinlegt þegar
Kristófer Ingi var búinn að fatta
að þú værir afi en amma væri
amma amma. Elsku afi okkar, nú
verðum við víst að sleppa takinu,
en við viljum þakka þér fyrir allar
þær minningar sem við eigum sem
og allt sem þú kenndir okkur um
lífið sjálft.
En áður en sól skín á sjóinn
er síðasti karlinn róinn
og lengst út á flóa farinn
þar dorgar hann daga langa
með dula ásýnd og stranga
og hönd, sem er hnýtt og marin.
(Tómas Guðmundsson.)
Guð veri með þér elsku afi,
Kristinn Ingi, Ingibjörg,
Kristófer Ingi og Arnór Ingi.
SELMA JÓHANNSDÓTTIR OG
GABRÍEL ELÍ BRYNJARSSON
✝ Selma Jóhanns-dóttir fæddist 4.
júlí 1973 í Reykjavík
og sonur hennar,
Gabríel Elí Brynjars-
son, fæddist 3. októ-
ber 1998 í Reykjavík.
Þau létust af slysför-
um, hann 8. septem-
ber og hún 10. sept-
ember síðastliðinn á
gjörgæsludeild
Landspítalans í Foss-
vogi og fór útför
þeirra fram frá Hall-
grímskirkju 14. sept-
ember.
átti eftir að segja þér en það verður
að bíða enn um sinn.
Ég vil trúa því að allir hafi sitt
hlutverk hér á jörðinni, Selma mín,
þitt hlutverk var að bera ljós og
hlýju til allra sem þú þekktir og fyr-
ir þremur árum bættist ykkur við
lítill hjálparmaður sem rétt eins og
þú kallaði ávallt fram bros og gleði
hvert sem hann fór.
Ykkar hlutverki hér hjá okkur er
lokið og áfram lifir minningin um
Lífið er hverfult og í logni tekur
maður því oftast sem sjálfsögðum
hlut, gleymir eða vanrækir að sinna
sínum nánustu og svo allt í einu án
nokkurs fyrirvara eru horfnir frá
okkur ástvinir. Eftir sitjum við og
finnst öllum stoðum hafa verið
kippt undan okkur í einni andrá og
áttum okkur á því hversu lítils
megnug og hjálparlaus við í raun
erum. Það var svo margt sem ég
ykkur tvö og til að heiðra þessa
minningu skulum við halda áfram
lífinu jákvæð og létt í lund eins og
þú Selma mín, þú varst og ert ein af
mínum bestu vinum, ávallt til staðar
trú og trygg og ég þakka guði fyrir
að hafa kynnst engli eins og þér.
Elsku ljósberarnir mínir, þið er-
uð farin heim, heim til englanna
sem þið svo sannarlega voruð. Ég
veit líka að þegar við förum yfir þá
verðið þið þar brosandi til að taka á
móti okkur. Og á meðan getum við
talað til ykkar í bæn og yljað okkur
með öllum þeim yndislegu minning-
um sem við geymum í hjarta okkar.
Við erum margbrotnar verur
myndaðar úr anda guðs með ódauð-
legar sálir í dauðlegum líkömum.
Binni minn og Bára, ykkar sorg
og söknuður er ólýsanlegur, Gulla,
Hrönn, Skúli, Rúnar, foreldrar, afar
og ömmur, vinir og ættingjar, til
ykkar allra sendi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur, megi guð og engl-
arnir styrkja ykkur í sorginni.
Takk fyrir allt sem þið gáfuð
mér.
Magnús Már.
!!"
!" #$ % & '(
# ) ! & * +
%
(, ! -
!"
#$# %&
' "
#&&' ()' *'
#+#&( %&
$
"
()' ,)-&&
& '. )/ %&
##' ()' '&)
#0
##' "
%&
#' &
1' !&
,)& ()'
#'#' %&
#&2 34$ ()'
14' "
%& '!#' "
#''()'
56 &&
"
'&) %& ''6
7"
$( ()'
%
'' &(&(#'"
!
!"# $!#$ "% & '
()$ $!'
*+, #$
*+$!#$
$!+- $!' "# ""#$#$
. *% $!'
"!
#*+$!#$ / +
+$'
&+
"#$
' 001
! ""# $
%% " &"
'
" &"
( !&
"$
( ")# %
"&"
"#*+,"$&" -#
" $
*+ + ' " $
!
"&" *""
+
."$
"
&# +
+ "$"$
!"#
$
%&
'
( ))&
*$
)&
+()
)&
"
"#
$ $"
"
"#
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.