Morgunblaðið - 09.11.2008, Page 17
eymundsson.is
Allar bækur í Eymundsson eru með
skiptimiða þannig að hægt er að skipta
jólagjöfunum til 10. janúar 2009.
Nýjar bækur
25% kynningartilboð
225 MILLJÓNIR EINTAKA SELD!
Áfrýjunin fór beint á toppinn á metsölulistum vestan hafs.
Níu hæstaréttardómarar munu dæma í umdeildu máli risafyrirtækis
í Missisippi. Er hægt að skipta um einn þeirra áður en dómur fellur?
John Grisham er einn vinsælasti spennusagnahöfundur allra tíma.
STÓRIR SIGRAR OG DJÚPAR SORGIR
Maðurinn, skáldið og presturinn. Hallgrímur er söguleg skáldsaga
um einstakan mann sem þjóðin hefur elskað og dáð í aldaraðir.
Úlfar Þormóðsson hefur víða leitað fanga og færir hér sögu Hallgríms
í áhrifamikinn búning.
HINIR TÝNDU DRENGIR
Áhrifamikil skáldsaga eftir einn merkasta höfund Bandaríkjanna sem lýsir
heimi mannvonsku og átaka – en um leið von um betra líf og betri heim.
Valentino Achak Deng er einn hinna týndu drengja Suður-Súdans sem ganga
sannkallaða eyðimerkurgöngu, dvelja í flóttamannabúðum og eru um síðir
fluttir með loftbrú til Bandaríkjanna.
MAFÍAN VILL HÖFUNDINN FEIGAN!
Roberto Saviano smyglaði sér í raðir mafíunnar í Napolí, sem er ein sú
harðsvíraðasta á Ítalíu, og flettir ofan af henni. Afraksturinn er alþjóðleg
metsölubók, en höfundurinn hefur neyðst til að njóta lögregluverndar síðan
hún kom út og er nú landflótta frá Ítalíu eftir ítrekaðar morðhótanir.
3.360 kr.
3.200 kr.
3.360 kr.
3.360 kr.
Tilboðið gildir til og með 16. nóvember 2008