Morgunblaðið - 09.11.2008, Síða 27
Maður eins og ég 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2008
1. Af hverju ert þú stoltust
á starfsferlinum?
Ég er t.d. stolt af því að vinna hjá
Ríkisútvarpinu, með frábæru, hæfi-
leikaríku, greindu og hugmyndaríku
fólki, svo er ég stolt af svo mörgu,
sem gæti verið tekið sem grobb. En
alltaf gott að vera forvitin og vak-
andi fyrir umhverfinu.
2. Hver eru meinlegustu mismæli
sem hafa hent þig í útvarpi?
Einu sinni auglýsti ég freestyle-
danskeppni fyrir ungt fólk í Tónabæ,
með orðunum: „Þið sem hafið áhuga,
skellið ykkur í Tónabæ og slettið ær-
lega úr skaufunum.“ Var að hugsa
bæði orðin skankar og klaufar, en úr
varð þessi netti dónaskapur.
3. Hvaða eiginleika metur
þú mest í fari fólks?
Heiðarleika, húmor og lífsgleði.
4. Ef þú gætir breytt einhverju einu í
fortíð þinni, hvað væri það?
Það væri nú varla til neins.
5. Nefndu tvo helstu galla þína og
tvo helstu kosti?
Ör og stundum hvöss og þar með til-
litslaus. Kostir: Forvitni, góð eyru
og bjartsýni.
6. Hvað finnst þér ljótasti
bletturinn á miðborg Reykjavíkur?
Ég segi eins og Pétur Pétursson þul-
ur sagði við mig í við-
tali á göngu um
Reykjavík:
„Hvergi er til
staður í
Reykjavík þar
sem hægt er að
snúa sér í heil-
an hring og
segja: Hér er fagurt af manna völd-
um.“
7. Hvernig bregst þú við
fjármálakreppunni?
Tilfinningalega finn ég bæði fyrir
sorg og reiði, nokkrir í nánustu fjöl-
skyldu hafa misst vinnu, svo málið er
alvarlegt. En þetta er eins og að
vakna upp með drykkjufélögunum
Jokka og Pekka, þegar þeir vöknuðu
upp í rústum Dresden, og annar
sagði: „Ja ha det her kan vi altså
ikke betala.“
8. Hver er besti kostur
dagskrárgerðarmanna?
Forvitni og þolinmæði til að hlusta
og taka eftir, og að vera hug-
myndaríkur.
9. Hvað er það dýrmætasta
sem þú átt?
Fjölskylda – börn, eiginmaður, for-
eldrar, systkini, hinir og allir vin-
irnir.
10. Ef gengið yrði til kosninga
í dag, hvaða flokk myndir
þú kjósa og hvers vegna?
Læt það helst ekki uppi, vegna
starfsins. En kjósa vil ég nú, alveg
endilega.
11. Hvaða manneskju
(lífs eða liðinni) dáist þú mest
að og hvers vegna?
Það eru nú svo margir, t.d. pabbi.
En Þorgeir Þorgeirson, rithöfundur
með meiru, hafði mikil áhrif á mig
meðan hann lifði. Hann var með
greindari mönnum sem ég hef hitt
um ævina.
12. Hver og hvar ertu í
þínum villtustu draumum?
Í augnablikinu á lítilli snekkju í sól
og sumri, sem lengst frá Íslandi.
vjon@mbl.is
Lísa Pálsdóttir, dagskrárgerðar-
maður hjá Ríkisútvarpinu
Lísa Pálsdóttir fæddist 13.
desember 1953 í Reykjavík.
Hún er gift Björgúlfi Egils-
syni, málara og tónlistar-
manni. Þau eiga þrjú börn og
búa í miðborg Reykjavíkur.
Hún ólst upp hjá foreldrum
sínum, Paulu Andreu Jóns-
dóttur og Páli Guðnasyni,
í Vesturbænum í Reykjavík.
Stundaði nám í Haga-
skóla, lýðháskóla í Dan-
mörku og síðan í SÁL (sam-
tök áhugafólks um
leiklistarnám, sem var sjálf-
stætt rekinn skóli og und-
anfari LÍ) og Leiklistarskóla
Íslands 1973 til 1977.
Hún hefur verið dag-
skrárgerðarmaður hjá
Ríkisútvarpinu frá árinu
1988 og haft umsjón með
fjölda
þátta, þ.á m. Helgarútgáfunni,
Lísuhóli og Fyrirmyndarfólki á
Rás 2, og núna þáttunum Okk-
ar á milli á þriðjudags-
morgnum, Samfélaginu í nær-
mynd ásamt Leifi Haukssyni á
föstudögum og Flakki á laug-
ardögum, allir þættirnir eru á
Rás 1, þar sem Lísa hefur starf-
að í þrjú ár.
Samhliða starfi sínu hjá Rík-
isútvarpinu hefur hún leikið í
leikritum og kvikmyndum og
leikstýrt verkum sem áhuga-
leikhúsið Peðið hefur sett upp á
Grand Rokk.
LÍFSHLAUP
LÍSU
Ætlaði að segja
„slettið ærlega
úr klaufunum“
Haustfundur Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins verður haldinn
um borð í Óðni miðvikudaginn 12. nóvember kl. 17.00.
Fyrir tilstuðlan Hollvinasamtakanna er varðskipið Óðinn komið
í örugga höfn og er nú lifandi sögusafn þorskastríðsáranna og
hluti af sjóminjasafninu Víkinni.
Á fundinum verður farið yfir starfsemi Hollvinasamtakanna,
framtíðarsýn safnsins og nýtt safnahlutverk varðskipsins Óðins sem
gegndi lykilhluverki í þorskastríðunum þegar landhelgin var
færð í 50 mílur og síðar 200 mílur.
Stjórnin
Óðinn í öruggri höfn
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd
vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og
tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s. Rannsóknarsjóður og
Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif
rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og
miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins.
Tækifæri í rannsóknum
og nýsköpun
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Dagskrá
9:00 Setning haustþings Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
9:10 Systems Biology of Human Metabolism dr. Bernard Pálsson prófessor
9:35 Íslensk erfðagreining - staðan og framtíðin dr. Kári Stefánsson forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar
10:00 Tækifæri í matvælarannsóknum dr. Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís ohf.
10:20 Kaffihlé
11:00 Hugvísindi og rannsóknarsamstarf á krepputímum dr. Guðmundur Hálfdánarson prófessor
10:40 Orka, menntun og rannsóknir Edda Lilja Sveinsdóttir framkvæmdastjóri REYST
11:20 Fjármögnun þekkingarfyrirtækja dr. Eggert Claessen framkvæmdastjóri Frumtaks
11:50 Haustþingi slitið Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís
Haustþing Rannís 2008
11. nóvember kl. 9:00 til 12:00 á Grand hótel Hvammur
Þekkingarþríhyrningurinn á þröskuldi nýrra tíma
Nýsköpun
RannsóknirHáskólamenntun
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Sími 551 3010