Morgunblaðið - 09.11.2008, Page 40
40 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2008
Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • S . 588 9090 • fax 588 9095
www.eignamidlun. is • e ignamidlun@eignamidlun. is
Sverr ir Kr ist insson, löggi ltur fasteignasal i
GRENIMELUR - ENDURNÝJUÐ
Falleg og mikið endurnýjuð 128,2 fm efri
sérhæð ásamt 29.9 fm bílskúr samtals
158,1 fm á þessum eftirsótta stað í Vestur-
bænum. Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefn-
herbergi, stofur, borðstofu, eldhús, baðher-
bergi og sér þvottahús. Arinn er í stofu.
Skipti eru möguleg á minni íbúð í sama
hverfi.
HÓLAVALLAGATA - SÉRHÆÐ MEÐ AUKAÍBÚÐ
178,9 fm neðri sérhæð auk 21,1 fm bílskúrs,
samtals 200 fm. Hæðin skiptist í stórt hol,
stórt svefnherbergi með baðherbergi innarf,
tvær samliggjandi stofur og eldhús. Lít-
il stúdíóíbúð hefur verið stúkuð frá. Í kjallara
er íbúðarherbergi með aðgangi að salerni,
geymslur og sameiginlegt þvottahús. V. 58
m. 4292
Nánari upplýsingar veitir Hilmar
Hafsteinsson, í síma 824 9098.
VÍFILSGATA - HEIL HÚSEIGN
Um er að ræða heila húseign í Norðurmýri í
Reykjavík. Húsið er samtals 231,3 fm og
skiptist í tvær 3ja herb. íbúðir. Tvö íbúðar-
herbergi með aðgangi að eldhúsi og bað-
herbergi eru í kjallara ásamt geymslu og
þvottahúsi. V. 39 m. 4209
LÁTRASTRÖND - EINSTÖK STAÐSETNING
Um er að ræða fallegt og vel hannað 188,3 fm einbýli á einni hæð teiknað af Birni Ólafs.
Húsið stendur efst í götu á 910 fm lóð. Glæsilegt útsýni er til norðurs og stór garður er til
suðurs. Sunnan við húsið er opið svæði upp að Valhúsahæð. Mögulegt er að byggja við
húsið. Um er að ræða einstaka staðsetningu. V. 69 m. 4287
HLÉGERÐI - EINBÝLI Í KÓPAVOGI
Til sölu einstakt íbúðarhús á fallegum útsýnisstað við Hlégerði 37A í Kópavogi. Húsið er
teiknað af Jóni Haraldssyni, arkitekt árið 1988 og byggt árið 1989. Húsið er tengt eldra
húsi á lóðinni með sólskála. Tvö svefnherbergi, stofa, borðstofa, eldhús og sólstofa á að-
alhæð og stórt vinnurými og geymslur í kjallara. Á lóðinni er einnig tvöfaldur bílskúr. Skipti
möguleg á 2ja-3ja herbergja íbúð. V. 48 m. 3419
Reykjavík
Lækjargata - til sölu/leigu
Glæsileg 205 fm skrifstofuhæð í nýlegu
lyftuhús við Lækjargötuna í Reykjavík.
Húsnæðið er á annari hæð og skiptist í
10 vinnustöðvar, fundarsal, snyrtingar
og geymslu/tækjarými. Húsnæðið er
búið vönduðum tækjum og skrifstofu-
búnaði m.a. tölvum, flatskjáum, skrif-
borðum og eldhúsbúnaði, kæliskápum
og kaffivél. Húsnæðið er með loftræsi-
kerfi og kælikerfi. Húsnæðið er laust nú þegar. Staðsetningin er einstök og fallegt
útsýni er yfir Lækjargötuna. Stæði í bílageymslu fylgir. 4280
Sími 588 9090 • Síðumúla 21
108 Reykjavík
www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
ÍMYNDUM okkur
að við séum stödd
niðri í bæ í byrjun
desembermánaðar –
rétt fyrir jól. Það er
tiltölulega bjart úti,
hægur vindur, skýjað
og jörð er blaut eftir
rigningar undanfar-
inna daga. Við sjáum
hvar ungur maður
gengur niður Bankastrætið klædd-
ur síðum frakka. Í kringum hann
er fjöldi fólks á gangi, bæði börn
og fullorðnir. Undir venjulegum
kringumstæðum myndi hann ekki
vekja sérstaka athygli en núna
sker hann sig úr þar sem hann
gerir frekjulega tilraun til að troða
sér fram fyrir fólk. Þvagan færist
áfram á eðlilegum gönguhraða en
fyrir unga manninn er það ekki
nógu hratt. Honum er nóg boðið
og nú grípur hann til sinna ráða.
Hann lyftir upp tvíhleyptri hagla-
byssu sem hann hefur geymt undir
frakkanum. Þessu fólki væri nær
að hlaupa aðeins hugsar hann með
sér. Hann treður skotum í bæði
hlaup byssunnar,
beinir henni upp í loft
og hleypir af. Fólk
hleypur frá og forðar
sér skelfingu lostið.
Þetta bar tilskilinn ár-
angur. Einhverjir
öskra á hann – eru
með óþarfa æsing
enda vita þeir líklega
ekki að hann ætlar
sér alls ekki að meiða
fólk eða drepa. Hann
er bara að fá þessa
„snigla“ til að víkja úr
vegi. Hann opnar
byssuna aftur, hleður og rykkir
henni síðan og sveiflar þannig að
hún lokast með stæl. Það vill hins-
vegar ekki betur til en svo að bæði
skotin springa nánast um leið og
byssan lokast. Höglin þeytast fram
úr báðum hlaupunum og lenda í
fólki sem stendur rétt fyrir framan
hann. Karlmaður hnígur niður og
lætur lífið samstundis. Sama á sér
stað með litla stúlku sem var á
gangi með föður sínum og bróður.
Hún lætur lífið samstundis. Bróðir
hennar lifir en er lamaður fyrir
neðan mjöðm. Faðir þeirra er al-
varlega slasaður. Ungu skyttunni
er vitanlega brugðið. Hann ætlaði
alls ekki að drepa nokkurn mann,
það var mjög skýrt í huga hans.
Sjokkeraður leggur hann frá sér
byssuna og bíður þess sem verða
vill. Lögregla tekur hann til yfir-
heyrslu og í ljós kemur að hann
hafði fram að þessu verið staðinn
nokkrum sinnum að broti á reglum
um meðferð skotvopna. Sum brot-
anna töldust alvarleg. Eftir yf-
irheyrslu og undirritun skýrslu er
honum sleppt lausum og hann fær
að halda byssunni og byssuleyfinu
þar til dómur verður kveðinn upp.
Hann er jú saklaus uns sekt hans
er sönnuð. Á þeim 14 mánuðum
sem líða þar til kveðinn er upp
dómur brýtur ungi maðurinn sam-
tals níu sinnum lög um meðferð
skotvopna. En hann heldur samt
skotvopnaleyfinu áfram, að
minnsta kosti fram að dóms-
uppkvaðningu. Nú er loks komið
að dómi. Þar segir m.a. að ákærði
hafi sýnt af sér stórfellt og víta-
vert gáleysi með hegðun sinni og
valdið dauða og umtalsverðu lík-
amstjóni. Í dómsorði segir að
ákærði skuli sæta fangelsi í eitt ár.
Hann skal sviptur skotvopnaleyfi í
4 ár og greiða sakarkostnað. Hann
getur aftur farið á skytterí eftir 4
ár. Finnst einhverjum þetta harð-
ur dómur?
Mér segir svo hugur að þér þyki
þessi dómur furðulega vægur enda
er hér um skáldskap að ræða og
ímyndun. Mig langar að biðja þig,
ágæti lesandi, til að lesa þessa frá-
sögn aftur og prófaðu þá að skipta
út ákveðnum orðum í frásögninni.
Prófaðu að setja orðið „bíll“ inn í
stað haglabyssu og í stað skot-
vopnaleyfis skal setja orðið „öku-
réttindi“. Hvað gerist þá? Jú, sag-
an stenst fyllilega samanburð við
íslenskan raunveruleika. Hún verð-
ur meira að segja sönn ef við setj-
um hana í samhengi við atburðarás
sem átti sér stað á Þjóðvegi 1 í
desember árið 2006 þar sem tveir
létu lífið í kjölfar glæfraaksturs.
Sagan verður sönn ef skoðaður er
sá dómur sem upp var kveðinn í
því máli sl. fimmtudag í Hæsta-
rétti. Saksóknari sagði í fréttum
„að miðað við dómafordæmi þá
væri þessi dómur þyngri en það
sem verið hefði og það væri
ánægjulegt“. En hvernig hefði
dómurinn verið ef byssa hefði ver-
ið notuð í stað bíls? Fyrir mann-
dráp af gáleysi er hægt að dæma
mann í 6 ára fangelsi. Svo er það
spurning hvenær er um gáleysi að
ræða og hvenær ekki. Er það gá-
leysi þegar ekið er á ofsahraða við
stórhættulegar aðstæður innan um
fjölda fólks?
Með þessum hugleiðingum er
ekki verið að krefjast þess að
mönnum sé yfirhöfuð refsað með
þyngri og harðari dómum. Það er
ósk mín að hlúð sé þannig að saka-
mönnum að þeir eigi möguleika á
að koma sem betri menn út í sam-
félagið á ný. Það er hinsvegar önn-
ur umræða. Hér er einfaldlega
verið að setja hlutina í samhengi.
Hvaða skilaboð er íslenskt réttar-
farskerfi að senda út í samfélagið?
Hversu alvarlegum augum lítum
við þá meðvituðu hegðun sem
ítrekað hefur leitt til dauða og ör-
kumlunar fólks á vegum landsins?
Er búið að sá einhverju illgres-
isfræi í hug okkar og getur verið
að sáningarmaðurinn sé meðal
annarra réttarfarskerfið? Getur til-
ræðismaðurinn sem ók á rúmlega
200 km hraða nú í vikunni á Eyr-
arbakkavegi huggað sig við það að
hann muni sleppa mun betur frá
því að bana einhverjum með bíln-
um sínum en ef hann bæri t.d. eld
að húsi sem í væri fólk? Já – sam-
kvæmt þeim dómi sem kveðinn var
upp nú í vikunni getur hann það.
Manndráp af „gáleysi“?
Einar Magnús
Magnússon skrifar í
tilefni af nýföllnum
dómi í Hæstarétti
» Þessu fólki væri nær
að hlaupa aðeins
hugsar hann með sér.
Hann treður skotum í
bæði hlaup byssunnar,
beinir henni upp í loft og
hleypir af.
Einar Magnús
Magnússon
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Umferðarstofu.
STÓR hópur glað-
værra stúlkna mætir
manni þegar komið er
til framhaldsskólans
fyrir stúlkur í Propoi í
Pókot-héraði, Keníu.
Skólaganga þeirra
gefur þeim nýja von
og tækifæri í sam-
félagi sem mótast hef-
ur af hugsun og ráðandi stöðu karl-
anna um langt skeið. Þær eru
þakklátar fyrir tækifæri til náms
sem áður var óhugsandi. Hundruð
unglinga sækja nú nám í sex fram-
haldsskólum sem hafa verið og eru
í byggingu fyrir íslenskt fé frá Þró-
unarsamvinnustofnun Íslands og
velunnurum kristniboðsins. Auk
þess hafa tugir þúsunda barna not-
ið menntunar í 70 grunnskólum
sem byggðir voru með stuðningi
frá Íslandi og Noregi. Þetta er að-
eins ein hlið margþætts starfs
kristniboðsins sem unnið er á veg-
um lúthersku kirkjunnar í Keníu
og Eþíópíu. Kristniboðsdagur þjóð-
kirkjunnar er í dag.
Þjóðkirkjan leggur
þríhliða áherslu í starfi
sínu og vill vera biðj-
andi, boðandi og þjón-
andi. Það er köllun
hennar. Kristniboð er
biðjandi, boðandi og
þjónandi kirkja í verki.
Sem boðandi er fagn-
aðarerindið boðað. Sú
ábyrgð nær út fyrir
landsteinana og þess
vegna stundar kirkjan
kristniboð.
Starf kristniboðanna hefur alltaf
verið borið uppi af fyrirbæn. Kirkj-
an er kölluð til að biðja fyrir öllum
mönnum, bæði nær og fjær. Karl
Sigurbjörnsson biskup segir í bréfi
til presta í tilefni kristniboðsdags:
„Kristniboðið er málefni kirkjunnar
allrar.“ Kærleiksþjónusta hefur
ávallt verið hluti af starfi kristni-
boðanna. Auk skólastarfs og lestr-
arkennslu, hafa þeir unnið ötullega
að bættu heilsufari með rekstri
spítala og heilsugæslu. Úrbætur í
landbúnaði sem miða að sjálf-
bærum búskap, trjárækt, vatns- og
umhverfisvernd eru einnig mik-
ilvægir þættir í þróun samfélag-
anna. Kennsla um hreinlæti, bygg-
ingu kamra og ofbeldi sem felst í
umskurn kvenna er hluti af starf-
inu. Kristniboðarnir eru vel und-
irbúnir fyrir að starfa í framandi
menningarheimi og gera sér far um
að kynnast menningu þess fólk sem
þeir búa á meðal og læra tungumál
þess. Kærleiksþjónusta kristniboða
og samstarfskirkna þeirra er öllum
veitt án skilyrða s.s. manngrein-
arálits, þjóðfélagsstöðu eða trúar.
Burðarás kristniboðsstarfsins er
öflugt boðunar- og fræðslustarf
sem miðar að því að byggja upp og
efla innlendar kirkjur undir stjórn
heimamanna. Troðfullar kirkjur
þar sem söfnuðurinn er virkur í
gleðisöng og gleðidansi við
trommuslátt og klapp ber vitni um
hversu öflugur sá þáttur starfsins
er. Íslensk kristni hefur margt að
læra af bræðrum og systrum okkar
í Afríku. Eftirsóknarvert er fyrir
íslenska söfnuði að kynnast og
tengjast eldinum í suðri. Hollt er
fyrir okkur öll að komast nær fólk-
inu sem á sér von og lífsgleði þrátt
fyrir viðvarandi efnahagsþreng-
ingar. Um það bera sjö íslenskir
prestar vitni sem nýlega komu
heim úr kynnisferð til safnaðanna í
Pókot-héraði.
Þótt þokunni hafi ekki létt í efna-
hagsmálum hér heima þarf að
standa vörð um kristniboðsstarfið.
Margir hafa lagt mikið af mörkum
til þess á erfiðum tímum á liðinni
öld. Stundum var með öllu óvíst að
gjaldeyrir fengist til að senda suð-
ur á bóginn. En áfram var haldið.
Öflugar kirkjur, tugþúsundir sem
hafa notið menntunar, víðtæk
heilsugæsla, vaxandi sjálfræði og
bættur hagur á mörgum sviðum í
Kína, Eþíópíu og Keníu er öflugur
vitnisburður um að starfið hefur
borið ríkulegan ávöxt. Því verki ber
að halda áfram. Leggjumst á ár-
arnar af enn meiri krafti en áður.
Kristinboð – já takk.
Kristniboð – já takk
Ragnar Gunn-
arsson skrifar um
margþætt starf
kristniboðsins
»Kristniboð er biðj-
andi, boðandi og
þjónandi kirkja í verki.
Góður árangur hvetur
okkur til enn frekari
dáða.
Ragnar Gunnarsson
Höfundur er formaður nefndar þjóð-
kirkjunnar um kristniboð og hjálp-
arstarf og framkvæmdastjóri Kristni-
boðssambandsins.