Morgunblaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 314. DAGUR ÁRSINS 2008 Landnámssetur
Brák
Heitast 7°C | Kaldast 1°C
Norðan og norð-
austan 10-18 m/s.
Rigning suðaustan-
lands og um norðan-
vert landið. » 10
ÞETTA HELST»
Gagnsætt uppgjör
Nauðsynlegt er að uppgjörsferlið í
efnahagslífinu sé gagnsætt og að
notast verði við þjónustu óháðra að-
ila í mótun nýs kerfis, segir Tryggvi
Þór Herbertsson, fyrrverandi efna-
hagsráðgjafi forsætisráðherra.
Öðruvísi verði uppgjörið ekki hafið
yfir tortryggni. »Forsíða
Nafnskírteini lausnin?
Til umræðu er að taka upp gömlu
nafnskírteinin í nýju formi. Tilgang-
urinn væri að veita börnum rafræna
auðkennislykla til notkunar á netinu
en foreldrar hafa margir hverjir
áhyggjur af misnotkun félagsnets-
vefja og öryggi barna sinna. »2
Breytist í illmenni
Magnús Scheving, sem þekkt-
astur er fyrir Latabæ og hlutverk
sitt í þáttunum sem íþróttaálfurinn,
hefur fengið hlutverk illmennisins í
bandarískri kvikmynd með hasar-
hetjunni Jackie Chan í aðal-
hlutverki. »18
Engir eftirbátar karla
Sarah Silverman og Tina Fey eru
taldar einar fyndnustu konur heims.
Konungar grínsins mega fara að
vara sig en ljóst er að stöllurnar hafa
ritað nafn sitt í grínsöguna. »38
SKOÐANIR»
Staksteinar: Skattar eða sparnaður?
Forystugrein: Trúverðugt banka-
kerfi?
Reykjavíkurbréf: Tækifæri til að
hugsa stórt
Ljósvaki: Fréttir af flöskuvatni
UMRÆÐAN»
Óskað eftir bifvélavirkjum, kokkum,
bökurum, hjúkrunarfræðingum,
leikskólakennurum o.fl. í Noregi
Laus störf hjá ríkinu
Innistæðulaust oflæti
Manndráp af „gáleysi“?
Birta í skammdeginu
Að þora að skipta um skoðun
ATVINNA»
FÓLK»
Stranglega bannað að
synda og hjóla. »55
Hljómsveitin
Mudhoney ruddi
nýrri tónlistarstefnu
braut með stuttskíf-
unni Superfuzz Big-
muff. »57
TÓNLIST»
Upphaf
gruggsins
TÓNLIST»
Katy Perry mætti í
Obama-kjól. »56
FÓLK»
Æfir í þrjá klukkutíma á
hverjum degi. »60
Vefsíða vikunnar er
útvarpssíða sem
lærir smám saman
að þekkja tónlistar-
smekk hlustand-
ans. »61
Sérsniðið
útvarp
VEFSÍÐA»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sameinast gegn Kaupþingi
2. Druslurnar sendar úr landi
3. Rekin fyrir að segja ekki ósatt
4. Endurgreiða 2,5 milljarða
Verslingar sýna tískuföt á listaviku
Morgunblaðið/Valdís Thor
Jaðarmenning var þema hátíðar Listafélags Verslunarskóla Íslands.
Listahátíðinni lauk í fyrradag með tískusýningu og frumsýningu á leikrit-
inu „Tíu litlir negrastrákar“. Tískusýningin var unnin í sjálfboðavinnu.
Verslingar sýndu föt frá fimm íslenskum hönnuðum og komu alls 25 fram.
Skólafélagarnir sáu einnig að mestu leyti um hár og förðun.
EKKI reyndist lagastoð fyrir gjald-
töku vegna stöðuleyfis fyrir hjólhýsi á
spildu úr landi Úteyjar í Bláskóga-
byggð. Úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála hefur komist að þess-
ari niðurstöðu eftir að hafa áður vísað
málinu frá.
Upphaf málsins má rekja til þess að
byggingarfulltrúi Bláskógabyggðar
krafði kæranda um greiðslu 7.300
króna gjalds fyrir stöðuleyfi vegna
hjólhýsis á landspildu hans í landi Út-
eyjar. Ákvörðuninni var skotið til
sveitarstjórnar Bláskógabyggðar 7.
ágúst á síðasta ári og krafist ógild-
ingar hennar þar sem gjaldtakan
hefði ekki lagastoð. Sveitarfélagið
ákvað í september í fyrra að halda
gjaldtökunni til streitu og staðfesti
sveitarstjórn þá afstöðu á fundi sínum
hinn 3. október sama ár.
Leitað til umboðsmanns
31. janúar í ár kvað úrskurðar-
nefndin upp frávísunarúrskurð. Þá
var kvartað til umboðsmanns Alþing-
is sem fór þess á leit við nefndina að
hún skýrði lagagrundvöll umdeildrar
gjaldtöku. Úrskurðarnefndin tók
málið því fyrir á ný.
Bláskógabyggð studdi ákvörðun
sína um gjaldtöku með tilvitnunum í
byggingarreglugerð og skipulags- og
byggingarlög. Að auki væru 7.300
krónur undir raunkostnaði sveitarfé-
lags við leyfisveitingu og eftirlit og
eigendur hefðu aðgang að sorpgám-
um og brunavörnum á vegum sveitar-
félagsins.
Í niðurstöðum ÚSB segir m.a.: „Af
orðalagi tilvitnaðra ákvæða skipu-
lags- og byggingarlaga og reglugerð-
arákvæða sem sett eru samkvæmt
þeim lögum verður ekki ráðið að
heimilt sé að taka sérstakt gjald fyrir
veitingu stöðuleyfis. Af þeim sökum
og að virtu því sjónarmiði að gjald-
taka opinberra aðila skuli hafa ótví-
ræða stoð í lögum eða reglum, settum
samkvæmt þeim, verður að telja hina
umdeildu gjaldtöku skorta lagastoð.“
aij@mbl.is
Ekki lagastoð
fyrir gjaldtöku
Gjald fyrir stöðuleyfi vegna hjólhýsis að
upphæð 7.300 krónur þvælist í kerfinu
Deila Hjólhýsi eru víða í íslenskri
náttúru og sum standa þar allt árið.
ÞRJÚ smábrugghús brugga ýmsar tegundir bjórs, en
nöfnin koma upp um íslenskan uppruna. Jökull er undan
rótum Snæfellsjökuls, Kaldi er frá Árskógsströnd og
Skjálfti er auðvitað af Suðurlandsundirlendinu. Þaðan
er líka Móri, sem hlýtur að vera göróttur.
Þrjú íslensk smábrugghús starfa nú á landinu; Mjöður,
brugghús í Stykkishólmi, Bruggsmiðjan Árskógssandi
og Ölvisholt brugghús nálægt Selfossi.
Stóru ölgerðirnar, Ölgerðin Egill Skallagrímsson og
Vífilfell, brugga eftir sem áður meirihluta þess bjórs
sem drukkinn er hérlendis.
Þessi nýja bjórbylgja á Íslandi er undir áhrifum frá svipaðri þróun í Dan-
mörku, en þar eru starfandi margir tugir smábrugghúsa og hefja mörg ný
starfsemi á ári hverju. | 32
Kaldi, Skjálfti, Jökull, Móri
Íslensk tónlist í sókn
SALA á íslenskri tónlist hefur geng-
ið vel það sem af er ári en aftur á
móti er talsverður samdráttur í sölu
á erlendum plötum. Á undanförnum
fimm árum hefur íslensk tónlist
stöðugt sótt í sig veðrið á kostnað er-
lendrar og er svo komið að innfluttar
plötur voru ekki nema þriðjungur af
þeirri tónlist sem seldist hér á landi
á síðasta ári. Flest bendir svo til
þess að þessi munur muni enn
aukast enda er útlit fyrir það að
sölusamdráttur erlendrar tónlistar
verði 20-30% á þessu ári. | 54