Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 9
Skírnir |
Merkisár i sögu Alþingis.
3
innlendu dómendur, en nú var stofnaður 24-manna dóm-
urinn (yfirréttur), sem líka starfaði á Þingvelli, og má telj-
ast úr þvi einn hluti af þinginu.
17. öld er öid einokunarverzlunar Dana, galdramála
og þá verður upphaf einveldis. Við sögu verzlunareinok-
unarinnar kemur Alþingi afaroft, enda bárust þangað kvart-
anir manna og kveinstafir vegna meðferðar kaupmanna á
landsmönnum. Þingin 1619, 1631, 1684 og 1700 hafa öll
verzlunarmálið nokkuð til meðferðar, en vandhæfi eru all-
mikil á því að velja úr ákveðin þing, er mest hafi látið
þau mál til sín taka. Meðal merkisára Alþingis verður að
minnast ársins 1662, er erfðahyllingin og einvaldsskuld-
bindingin fór fram, enda þótt þessir atburðir gerðust í
Kópavogi, en ekki á Alþingi. Þeir skiftu svo miklu máli
síðar um stjórn landsins og afdrif þingsins, að ekki mætti
fram hjá þeim ganga.
18. öldin er breytingatími að ýmsu leyti, þó að tví-
mælis orki, hversu sumar þeirra breytinga hafi verið heppi-
legar. Um 1720 breytist öll meðferð dómsmála í landinu
og dómaskipun. Þátttaka almennings í dómstörfum, bæði
á Alþingi og í héruðum, hverfur eftir að tekið er að fara
eftir dómsköpum Norsku laga frá 15. apríl 168/, sem kennd
eru við Kristján konung fimmta. En fyrir þetta breyttist
allur svipur Alþingis. Af þessu nýja skipulagi leiddi síðari
breytingar á skipun lögréttu, fækkun lögréttumanna 1764,
1777 og 1796. Loks má minnast ársins 1798, þvi að það
ár var Alþingi siðast háð á Þingvelli við Öxará, og svo
ársins 1800, þegar Alþingi var loks alveg lagt niður, og
landsyfirdómur settur í stað bæði yfirréttarins gamla og
lögréttu.
Svo er kallað, að Alþingi hafi verið endurreist með
tilskipun 8. marz 1843. Hið nýja Alþingi var þó gjörólíkt
Alþingi hinu forna, hvort sem átt er við Alþingi lýðríkis-
timans, eða Alþingi, eins og það varð eftir að konungs-
vald var komið á landið. En í einu átti þó Alþingi það,
sem sett var á stofn með tilskipun 8. marz 1843, sam-
merkt við hið forna Alþingi. Bæði hið nýja og hið gamla
1*