Skírnir - 01.01.1930, Side 14
8
Merkisár í sögu Alþingis.
[Skírnir
í upphafi landnámsaldar var Noregi skift í fjöldamörg
fylki og fylkjunum aftur skift í héruð. í hverju fylki var
hersir fyrirmaður, Sú fyrirmennska virðist hafa gengið í
erfðir mann fram af manni; og hefir verið bundin við
óðalseignir. Hersir stýrði dómþingum, bæði héraðs- og
fylkisþingi, og hofum og blótum. Hann var og fyrir fylkis-
mönnum, er þeir áttu að verja land sitt. Hersa-ættirnar
voru erfðaaðall í landinu. Konungdœmi var og alþekkt í
Noregi í upphafi landnámsaídar, en konungar voru þar
aðallega fyrirliðar í ófriði, en hersar skyldu veita styrk til
landvarnar, en var óskylt að fylgja þeim í hernað út úr
fylkinu, eftir því sem segir í Egilssögu. Um þessar mundir
eru margir fylkiskonungar i Noregi, og landinu er skift í
mörg smáriki. Svo telja menn, að ákveðin fylki muni þá
þegar hafa verið sameinuð um lög og allsherjarþing. Þrænd-
ir, Háleygir og fleiri fylki áttu þing á Frosta (Frostaþings-
lög), Hörðaland, Firðafylki o. fl. áttu saman þing á Gula
(Gulaþingslög) og fylkin austanfjalls á Eiðsvelli (Heiðsifa-
þingslög).
Byggzt hafði Noregur með öðrum hætti en önnur lönd
Germana. í Danmörk, Suður-Svíþjóð og Þýzkalandi höfðu
menn safnazt saman og byggt í þorpum. Var jörðin í nokk-
urskonar sameign og samneyzlu. En í Noregi höfðu menn
byggt huer sér eins og síðar varð á íslandi. Norsku bæ-
irnir voru að því leyti eins og íslenzku bæirnir, að hverj-
um fylgdi afmarkað land, sem var einkaeign. Aðeins út-
hagi (beitiland) gat verið óskift. Þetta byggingarlag og
jarðaskipun varð til þess í Noregi, að þar reis upp sérstök
stétt óðalsbœnda, sem nefndir voru höldar (af að ,,halda“).
Jörð, er verið hafði 5 ættliði í sömu ætt, mann eftir mann,
var orðin óðalseign eftir Gulaþingslögum. Eigandinn varð
höldr og þá eign mátti ekki selja úr ættinni, nema nán-
ustu ættingjar leyfði. Höldarnir norsku voru rétthærri, ef
þeim var misgert, en óbreyttir, frjálsir menn. Þeir voru
einskonar landaðall eða óðalsaðall og gengu næstir hers-
um að mannvirðingum. Bændur aðrir en leiglendingar voru