Skírnir - 01.01.1930, Page 23
Skírnir] Merkisár i sögu Alþingis. 17
þeir flyttist til íslands af ættjörð sinni. Trúarþörf þeirra
minkaði sízt, þótt þeir reisti byggð i ókunnu landi. Nýju
erfiðleikarnir hafa sennilega heldur aukið þá þörf en minnk-
að. Hersarnir norsku stóðu fyrir blótum í Noregi og hafa
sennilega tekið eitthvert gjald (hoftoll) af fylkismönnum.
Með sama hætti hafa sveitarhöfðingjar hér, jafnskjótt sem
þeir hai'a fengið því við komið, gert ráðstafanir til þess að
slík guðadýrkun mætti hefjast í byggð þeirra, sem verið
hafði í ættlandi þeirra. Þeir reistu því snemma hof á bæj-
um sínum, þar sem haldnar voru blótveizlur að norskum
sið. Er allvíða getið hofgerðar á bæjum hinna ríkari land-
námsmanna á landnámsöld, svo sem á Hofi í Vatnsdal hjá
Ingimundi gamla, á Mosfelli í Grímsnesi hjá Ketilbirni
gamla, í Þórsnesi hjá Þórólfi Mostrarskegg o. s. frv. Sveit-
ungar þessara höfðingja hafa svo sótt til hofanna og lík-
lega goldið þangað eitthvert gjald (hoftoll) til viðhalds
hofi og til blótveizlna. Hefir hofhald og guðadýrkun senni-
lega stutt mjög að samheldi byggðarmanna.
Ættarböndin voru afarsterk hér á landi í fornöld, eins
og í Noregi. Ættin hlítti mjög vilja ættarhöfðingjans og
kom fram sem einn maður út á við, þar sem halda þurfti
uppi rétti ættarinnar og sæmd.
Hver byggð hefir í fyrstu mjög verið út af fyrir sig,
enda hafa samgöngur sjálfsagt verið fremur litlar. Engin
sameiginleg sett lög voru til, önnur en þær réttarhugmynd-
ir og siðferðiskenndir, er menn höfðu frá ættlandi sínu,
Noregi. Ekkert allsherjar löggjafarþing eða dómþing var
enn sett. Og enginn einn maður hafði nokkura landsfor-
yztu. Þessa var og lítil þörf fyrra hluta landnámsaldar, þvi
að strjálbyggt var og skifti manna óbrotin. En þó gátu menn
alls ekki lifað lagalausir. Nægir að nefna fáein dæmi.
Þess er stundum getið á landnámsöld, að menn seldu
land sitt eða af landi sínu eða kvikfé sitt. Þessi skifti
byggjast fyrst og fremst á eignarrétti einstaklinga að
landi og öðrum verðmætum. Hugmyndina um þenna
eignarrétt hafa þeir frá Noregi. Menn skoruðu reyndar
stundum þann, er fyrr hafði land numið, á hólm og var
2