Skírnir - 01.01.1930, Page 31
Skirnir] Merkisár i sögu Alþingis. 25
hans mun þá hafa verið nýkominn út til Iandsins. Dvald-
ist svo á Borg »nokkura vetr« og tók til fjárforráða og
búsumsýslu engu miður en Skalla-Grímur, og hefir senni-
lega verið á Alþingi 930. í betri manna röð hefir Rauða-
Björn faðir Þorkels trefils í Svignaskarði verið 930, og
gæti vel hafa verið á þingi. Þá hafa Rauðmelingar haft
forystu sunnan á Snæfellsnesi, næstir Borgarmönnum. Sel-
Þórir bjó á Rauðamel og var ættstór og höfðingi mikilL
Þorfinnur sonur hans fékk Jófriðar dóttur Tungu-Odds, en
hann var, eins og áður segir, mestur höfðingi í Borgar-
fbði. Sel-Þórir hefir því enn verið á lífi 930 og vafalaust
haft fyrirsvar sveitunga sinna. Þormóður og Þórður gnúpa
bræður námu land frá Gnúpá til Straumfjarðarár. Þor-
móður var kallaður goði og bjó á Rauðkollsstöðum. Guð-
laugur hinn auðgi var sonur hans. Frá Guðlaugi eru Straum-
firðingar komnir. Þeir bræður munu enn hafa verið á lifi
930 og báðir haft mannaforráð nokkur. Fyrir jökli hefir
Laugarbrekku-Einar líklega verið gildastur maður og gæti
hafa sótt Alþingi hið fyrsta.
Og er þá komið að Breiðafirði. Verður fyrst fyrir,
sunnan fjarðarins, Grímkell sonur Úlfs kráku, er land nám
frá Beruvíkurhrauni til Nesshrauns og bjó á Saxahóli.
Synir hans voru Þórarinn korni, tengdafaðir Úlfs Ugga-
sonar, og Klœngur. Þeir feðgar hafa verið i betri manna
tölu og því eigi ósennilegt, að þeir hafi komið til Alþingis
930. Ormur mjóvi nam land milli Ennis og Höfða og bjó
á Brimilsvöllum. Hans sonur var Þorbjörn digri, mágur
Snorra goða. Hefir Ormur verið i betri manna tölu úr því
að sonur hans mægðist við þá Helgfellinga, og hefir verið
á góðu reki um 930. Á Öndurðri-Eyri hefir þá búið Ásgeir
Vestarsson landnámsmanns, afi Steinþórs á Eyri. Hefir Ás-
geir og verið i betri manna röð. En mestir menn hafa verið
um þessar slóðir og göfgastir Björn austræni og Þórólfur
Mostrarskegg. Björn hefir þá verið andaður, en við mann-
virðingum og forustu hefir tekið Kjallakur sonur hans hinn
gamli, er bjó í Bjarnarhöfn eftir föður sinn, afi Víga-Styrs
og Vermundar mjóva. Er Kjallakur talinn meðal hinna mestu