Skírnir - 01.01.1930, Page 32
26
Merkisár í sögu Alþingis.
[Skírnir
höfðingja í höfðingjatali Landnámu um 930. Sonur Þórólfs
Mostrarskeggs var Þorsteinn Þorskabitur. Þórólfur hefir
andast löngu fyrir 930, en Þorsteinn hefir þá haft manna-
forustu i sinni byggð. Hann var mágur Þórðar gellis og
afi Snorra goða. Höfðingjar slíkir sem Kjallakur gamli og
Þorsteinn Þorskabítur hafa sótt Alþingi 930. Af öðrum at-
kvæðamönnum sunnan Breiðafjarðar mætti ef til vill nefna
Þórólf bœgifót, sem þá mun verið hafa ungur maður, kappi
mikill og ekki kallaður jafnaðarmaður. Á Skógarströnd
hefir Þorbergur, er nam Langadal, verið gildastur maður.
Sonur hans var Áslákur, er átti Arnleifu dóttur Þórðar
gellis. Má af því marka, að þeir feðgar hafi engin smá-
menni verið.
Þá kemur í Dali. Þar voru niðjar Auðar djúpúðgu
mestir virðingamenn um 930. Sonarsonarsonar hennar,
Þórður gellir, er talinn þegar um 930 meðal mestu höfð-
ingja i Vestfirðingafjórðungi. Ef hann hefir verið til mann-
virðinga kominn 930 eftir föður sinn, Ólaf feilan, þá hefir
hann ungur verið. En vel má það þó vera, því að Þórður
virðist vera mjög jafnaldri Tungu-Odds, sem líka er sagð-
ur mestur höfðingi í Borgarfirði um þessar mundir. Eyr-
byggja segir, að Þórður gellir hafi sætt þá Þorstein surt
og Kjalleklinga, er þeir deildu á Þórsnessþingi, rétt eftir
930. Það mun því mega hafa það fyrir satt, að Þórður
gellir sé einn af stofnendum Alþingis og íslenzka ríkisins.
Höskuldur Dala-Kollsson hefir verið annar gildastur bænda
þar og ættstærstur um 930, faðir Ólafs pá og Hallgerðar lang-
brókar. Hann hefir sjálfsagt verið á þingi 930. Verða niðjar
Höskuldar önnur ríkasta ættin um Dali. Á Meðalfellsströnd
bjó þá Barna-Kjallakur, frændi Kjallaks hins gamla í Bjarn-
arhöfn. Kjallakur átti átta sonu, sem allir munu hafa verið
uppkomnir um 930. Var Kjallakur stórættaður og frænd-
margur. Og er liklegt, að hann hafi sótt Alþingi 930. Saur-
bæ hafði numið Steinólfur hinn Iági. Hann var ættstór
maður, en mun hafa verið andaður 930. Þar á móti mun
Sléttu-Björn, dótturmaður hans, hafa verið þá á lífi og
verið mestur virðingamaður þar um slóðir. í Gilsfirði mun