Skírnir - 01.01.1930, Page 34
28
Merkisár í sögu Alþingis.
[Skírnir
þá enn hafa verið á lifi. En í ísafirði hefir Vébjörn Sygna-
kappi verið mestur maður. Hann lifir 930, og var veginn
litlu síðar á fjórðungsþingi í Þórsnesi. Annar göfgasíur
landnámsmaðyr þar vestur var Snæbjörn bróðir Helga
magra. Hans son var Hólmsteinn faðir Snæbjarnar galta.
Hólmsteinn hefir verið uppi 930. Þeir feðgar, Snæbjörn og
Hólmsteinn bjuggu í Vatnsfirði og hafa verið þar fyrir
mönnum. Göfgastir landnámsmenn á Ströndum voru þeir
Skjalda-Björn og Önundur tréfótur. Sonur Skjalda-Bjarnar
var Þorbjörn, afi Þorbjarnar Þjóðrekssonar. Synir Önundar
voru þá rosknir. Var Þorgrímur hœrukollur fyrir þeim. Þá
hefir og Flosi, sonur Eiríks snöru í Árnesi verið gildur
maður. Þessir eru líklegastir Strandamanna til að hafa sótt
þing 930. í Hrútafirði voru Þorkell á Kerseyri og Bersi
goðlauss, sonur Bálka Blæingssonar landnámsmanns, víst
rnestir menn. Bersi fluttist síðar suður, en það mun hafa
orðið eftir 930.
Notðlendingafjórðungur. Kemur nú fyrst að MiðfirðL
Miðfjarðar-Skeggi var þá enn á lífi, en roskinn maður.
Hann var langmestur höfðingi þar. í Víðidal nam land
Auðunn skökull, göfugur maður. Hann getur hafa verið á
lífi 930, en ef það hefir eigi verið, þá hefir sonur hans eða
stjúpsonur, Ásgeir œðikollur, haft forustu þar í sveit. í
Vatnsdal hefir Þorsteinn Ingimundarson hins gamla, sem
þá var kominn í elli og blindur, verið forustumaður. Og
hafa þessir höfðingjar verið meðal stofnenda íslenzka rik-
isins. Vesturhóp hafði numið Haraldur hringur, ættstór
maður. Þorbrandur hét sonur hans. Þessir menn hafa
haft forustu í sinni byggð. í austasta hluta Húnavatnsþings
voru niðjar Ævars gamla rikastir. Hafa þeir feðgar, Æuar
og Véfröður sonur hans, á Móbergi, verið þar fyrir mönnum.
í Skagafirði hafa þessir verið mestir menn: Eilifur
örn og ef til vill synir hans, Koðrán að Giljá, faðir Þor-
valds kristniboða, og Þjóðólfur goði að Hofi á Skagaströnd..
Eirikur í Goðdölum, tengdasonur Þórðar skeggja, en svili
Ketilbjarnar gamla, Hjalti, er nam Hjaltadal, og Höfða-