Skírnir - 01.01.1930, Page 35
Skirnir]
Merkisár i sögu Alþingis.
29
Þórdur hafa þá allir verið í fullu fjöri, því að sonarsynir
þeirra eru samtíðarmenn Grettis.
í Eyjafirði hafa synir Helga magra verið göfgastir,
Hrólfur á Gnúpufelli og Ingjaldur, afi Víga-Glúms, að Þverá.
Á Espihóli hefir búið Þórir Hámundarson heljarskinns. í
Auðbrekku í Hörgárdal mun hafa búið Björn hinn auðgi,
sonur Geirleifs, er nain Hörgárdal. í Öxnadal hefir Stein-
röður hinn rammi líklega verið gildastur maður. Gunnar,
sonur Úlfljóts, skal hér enn nefndur. Hann var tengdason-
ur Helga magra. Hann bjó í Djúpadal. Auðunn rotinn, ann-
ar tengdasonur Helga magra, hefir búið í Saurbæ 930.
Hann var langafi Guðmundar ríka og Einars Þveræings.
Vera mætti líka, að Einar sonur hans, afi Guðmundar ríka,
hafi þá tekið við búi. Hitt nær engri átt, að Eyjólfur Val-
gerðarson, faðir þeirra Guðmundar og Einars, sem lifa fram
yfir 1020, hafi verið kominn til mannvirðinga um 930, eins
°g segir í höfðingjatali Landnámu. Svarfaðardal nam Þor-
steinn svörfuður. Hefir hann eða sonur hans, Karl rauði,
verið fyrir Svarfdælum 930. í Eyjafirði var mikið mannval,
fiiest venzlafólk Helga magra. Hefir þaðan að líkindum
verið talsverð þingreið þetta ár.
Þá kemur Þingeyjarþing. Fnjóskadal nam Þórir snep-
ill. Sonur hans var Ormur töskubak. Hann mun hafa verið
þar fremstur manna um 930. Gnúpa-Bárður nam Bárðardal
snemma landnámsaldar. Synir hans, er ilenzt hafa þar
norður, voru Sigmundur og Þorsteinn, afi Vémundar kög-
nrs. Þorsteinn hét sonur Sigmundar, afi Þorgeirs ljósvetn-
ingagoða. Hafa þeir frændur verið virðingamenn i Bárðar-
dal. Um Ljósavatnsskarð hefir Þorkell leifur, faðir Þorgeirs
Ljósvetningagoða, verið mestur maður, eða jafnvel faðir
hans, Þórir Grimsson gráfeldaimúla, er þar nam land. í
Reykjadal nam Eyvindur Þorsteinsson höfða land, faðir
Áskels goða. Landnáma telur Áskel meðal mestu höfðingja
fyrir norðan land um 930. Ef þetta er rétt, þá hlýtur hann
að hafa verið ungur maður. Hitt er líklegra, að Eyvindur
faðir hans, sem komið hefir út síð landnámsaldar, hafi enn
verið forustumaður í Reykjadal. Sonarsonur hans, Víga-