Skírnir - 01.01.1930, Síða 37
Skirnir]
Merkisár í sögu Alþingis.
31
mun hafa verið aldurhniginn 930 eða ef til vill látinn, enda
getur Landnáma hans ekki meðal höfðingja um þessar
mundir. Synir hans eru nefndir þrír, Özur, afi Síðu-Halls,
Hróaldur, forfaðir Sturlunga, og Önundur. Þessir menn hafa
þá tekið við mannaforráði af föður sinum. í Öræfum námu
land synir Ásbjarnar Heyangurs-Bjarnarsonar. Mestur mað-
ur þeirra mun hafa verið Özur, faðir Þórðar Freysgoða,
föður Brennu-Flosa. Özur hefir verið höfðingi Öræfinga
930. Þórður sonur hans er þá reyndar talinn meðal höfð-
'ngja í Landnámu, en farið mun vera feðgavillt. Þórður
faðir Brennu-Flosa, sem virðist vera á sæmilega góðum
aldri um og eftir 1000, getur tæplega hafa verið kominn
bl mannvirðinga 930. Á Síðu mun mest hafa kveðið að
niðjum Ketils fíflska. Sonur hans var Ásbjörn, langafi Sig-
hvats Surtssonar lögsögumanns. Ketill var mágur Auðar
djúpúðgu. Hann hefir sennilega verið látinn 930. En Ás-
björn sonur hans hefir verið gildastur maður á Síðu. En
kristnir voru þeir frændur, og má því vera, að Ásbjörn
hafi ekki tekið þátt i meðferð landsmála með heiðnum
mönnum. í Skaftártungu mun Leiðólfur kappi, er vá Una
hinn danska, hafa verið atkæðamestur maður. í Meðallandi
var Áslákur örgoði, sonur Hrafns Hafnarlykils, víst helztur
aiaður. Fyrir vestan Mýrdalssand voru atkvæðamestir menn
Egsteinn landnámsmaður, er bjó i Fagradai, Reyni-Björn
og Loðmundur hinn gamli, er bjó á Sólheimum, og syn-
ir hans.
Hefir nú verið farið kringum land og nefndir þeir menn,
sem liklegastir þykja eða víst er um, að staðið hafi að
stofnun Alþingis og íslenzka ríkisins. Eru þetta 79—80
manns. Vel má vera, að einhverir sé oftaldir og aðrir van-
taldir. En þó mun eigi vanta neina stórhöfðingja. Grímur
geitskör hefir sótt heim flesta þá höfðingja, sem hér hafa
taldir verið, og rætt við bá málið. Var í rauninni nauð-
synlegt að ná loforði þeirra allra eða flestra til þingsókn-
ar og þátttöku í störfum fyrirhugaðs þings.
Ekki vita menn það nú, hvaða dag samkoma sú hófst,
er Alþingi setti. En hitt er kunnugt, að til 999 hófst Al-