Skírnir - 01.01.1930, Síða 41
Skirnir]
Merkisár i sögu Alþingis.
35
séð á frásögninni, að þau voru færri áður í þeim hluta
landsins. En ef þetta hefir verið svo, þá hljóta allmargir
af þeim mönnum, sem forustu höfðu haft í sinni sveit, að
hafa orðið útundan. En menn hafa fundið ráð til að friða
þá. Þessi ráð hafa aðallega verið fólgin í skipun þeirri,
sem ákveðin var á goðorðunum og á sjálfri lögréttunni.
Goðorðin gátu fyrst og fremst verið i sameign tveggja
manna eða fleiri. Með þeim hætti þurfti ekki að svifta
neinn berlega því valdi, sem hann hafði aflað sér. Tveir
eða fleiri forustumenn gátu því orðið sameigendur að goð-
°rði, þegar lýðríkið var stofnaö, goðorðatalan ákveðin og
lögrétta skipuð. Og eigi nóg með það. Þeir áttu að ákveða,
hver með goðorð skyldi fara, og mátti skifta um meðfar-
armenn eftir hver þrjú þing, vorþingi, Alþingi og leið. Með
þessu var hverjum þeim manni, er forystu hafði fengið
fyrir 930, veittur möguleiki til þess að halda þeirri forystu
bæði í orði og verki. Ennfremur var mönnum veitt heim-
ild til þess að játast undir forræði (»vera í þingi með«)
hvaða goða, sem þeir vildu. Þar með var hverjum for-
ystumanni veittur möguleiki til að auka þingmannalið sitt.
Lika gátu menn fengið goðorð að erfð, keypt þau eða
^engið þau með konu sinni. Allt gat þetta stuðlað til þess,
að goðorð gæti komizt á hendur manna í viðbót við þau
mannaforráð, er þeir höfðu áður. Þetta skipulag goðorð-
anna hafði að vísu sína ókosti, en það var hentugt til
þess að fá alla forystumennina 930 til þess að samþykkja
36-goðorða-skipunina.
Þá var skipun lögréttu sjálfrar. Það er auðsætt, að
með 36 goðorðum á landinu hlutu meira en helmingur
þeirra manna, sem mannaforráða höfðu aflað sér fyrir 930,
að verða útundan um meðför goðorða á hverju þingi. Á
miðpalli lögréttu hafa aðeins setið 36. Þessir menn hafa
að vísu ráðið úrslitum mála. En hinum mátti veita ráö-
gjafarréit um þau mál, sem til lögréttu komu. Þetta var
og gert. Eftir Grágás sátu, sem fyrr segir, jafnmargir menn
á frampalli og afturpalli lögréttu sem á miðpalli. 72 mönn-
um mátti því í upphaíi veita setu á þessum tveimur pöll-
3*