Skírnir - 01.01.1930, Page 43
SkírnirJ Merkisár i sögu Alþingis. 37
En gefið hann svo upp í þinglok. Og þá hefir Hrafn Hængs-
son verið kosinn.
Samkvæmt framansögðu hafa þá 3X36+1=109 setið
i lögréttu upphaflega. Þá var aðalstofnun þingsins, lögrétta,
fullskipuð. Þá hefir Úlfljótur skýrt tillögur sinar um þing-
sköp hennar (lögréttuþátt og lögsögumannsþátt). Þau ákvæði
hafa svo verið lögtekin. Þau hafa ekki heldur getað verið
tekin eftir erlendum fyrirmyndum, hvorki Gulaþingslögum
né öðrum, því að engar erlendar fyrirmyndir gátu átt við,
enda þekkjast þær engar nú, er til greina geti komið.
Á þingum annara landa, er íslendingar þekktu til,
voru dómar uppkveðnir. Á Gulaþingi virðast, sem áður seg-
'r, þrennar tylftir manna hafa dæmt eða undirbúið dóms-
úrlausnir. Hersar og síðar lendir menn skipuðu dómendur.
Efalaust hefir dómstóll verið settur á Þingvelli þegar í önd-
verðu (Alþingisdómur). Engar sagnir eru til um það, að.
lögrétta hafi nokkurn tíma haft dómsvaldið. Áður en land-
inu var skift í fjórðunga, hefir einn allsherjardómur verið
á Þingvelli. Hann hefir verið skipaður þrennum tylftum
dómenda, eins og lögréttan á Gulaþingi var samkvæmt
Egilssögu. Hver þeirra manna, sem með eitt goðorðanna
af 36 fór á Alþingi, hefir þá nefnt einn af þingmönnum
sinum í Alþingisdóminn. Fyrirmælin um skipun og störf
þessa dómstóls hafa verið sett á fyrsta þinginu. Þau eru
nú í þingskapaþætti Grágásar um fjórðungsdómana. Vér
uitum nú að vísu ekki, að hve miklu leyti dómsköp í AI-
þingisdómi hafa verið sniðin eftir Gulaþingslögum, að því
fráteknu, að dóma'atalan var 36 á báðum stöðum og að
goðar höfðu hlutverk hersa (lendra manna) um dómnefnu.
En dómsköp Grágásar og Gulaþingslaga frá 11.—12. öld
aru afarólík. Má einkum vísa til sönnunarreglnanna, sem
jafnan eru höfuðþáttur allra dómskapa. í Noregi voru eið-
ar aðilja (eineiði, lyrittareiður, tylftareiður) aðalsönnunar-
gögnin. En eftir Grágás búakviður (5 eða 9 bænda) eða
goðakviður (tylftarkviður). Vegna þessa meginmunar hlutu
nálega öll dómsköpin að verða önnur á íslandi en í Nor-
eg>- Og það eru engar líkur til þess, að eiðarnir norsku