Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 47
Skírnir]
Merkisár í sögu Alþingis.
41
á íslandi. Rekareglur þær, sem í Gulaþingslögum eru, hafa
að vísu verið hafðar til fyrirmyndar íslenzkum rekalögum
að einhverju leyti, en íslenzku ákvæðin eru þó allt önnur.
Sömu orð eru að visu höfð um sömu hugtök, t. d. finn-
anda spik um þann hlut af hval, sem sá fékk, er hval fann
á floti. Sá, er kom skutli í hval, átti eftir íslenzkum lög-
um hluta af hvalnum, ef hann rak síðar með skutli í sér
og ef eigandi skutuls sannaði eignarrétt sinn (skothvalur,
skotmaður, skotmannshlutur). Engin slík ákvæði voru í
norskum lögum. Höfuðregla í íslenzkum rekarétti var það,
að landeigandi eignaðist það, er rak á land hans og eig-
andalaust var, hvali, tré, fiska o. s. frv. Um það voru all-
frábrugðin ákvæði í Gulaþingslögum. í Gulaþingslögum eru
fyrirmæli um leiðangursgerð (framlag skipa og manna til
landvarnar). Engin slik fyrirmæli hafa verið í islenzkum
lögum. Óðalsréttur (þ. e. bann við sölu fasteigna undan
aettingjum og heimild þeirra til að brigða sölu) var í Gula-
þingslögum. Slík lagafyrirmæli hafa eigi komizt í fornlög
íslands, svo að vitað sé..
Eins og nærri má geta, þá hafa Gulaþingslög allítar-
!eg ákvæði um víg, áverka, vígsbœtur og rétt manna svo-
nefndan, en það voru bætur, er sá skyldi greiða, er á
hluta manns gerði. Á þeim tímum þurfti rækileg ákvæði
um þessi efni, því að menn sáust lítt fyrir um mannvig og
áverka. Grágás hefir líka mjög rækileg fyrirmæli um þessi
ufni öll. Og sum þeirra virðast vera mjög forn. En allólik
eru fyrirmæli Gulaþingslaga ákvæðum Grágásar. í Noregi
fór réttur manna t. d. eftir mannvirðingu þeirra (bóndi —
höldur — lendur maður — jarl — biskup). Sá, er hærra
vur í metorðastiga, fékk hærri rétt. Þessu var ekki svo
varið eftir íslenzkum lögum. Hver frjáls maður, af hvaða
stigum sem hann var, átti sama rétt á sér að lögum, 6
merkur vaðmála eða 288 álnir. Orðin réttur og fullrétti eru
höfð i báðum löndunum, en lögskipun þessara mála er
allólik.
Víg og áverkar vörðuðu auðvitað við lög í báðum
löndunum, og mörg þeirra orða, sem höfð voru í norskum