Skírnir - 01.01.1930, Side 60
54
Alþingi árið 955.
[Skírnir
úr því. Gallarnir og veilurnar eru á hinn bóginn einnig
miklar. Hér er eigi unnt að fara ítarlega út í það mál, og
nægja ætti að minnast á hið helzta.
Sá, sem hefði búið til þetta misseristal úr gamla stíl,
hefði hlotið að vera gagnkunnugur því tímatali, og var á
þeim tímum eigi öðrum til að dreifa en hálærðum klerkum.
Auðvitað gæti þá ekkert verið satt í því, sem Ari fróði
og aðrir fyrri alda rithöfundar hafa ritað um fund sumar-
aukans og þá atburði, sem þá gerðust, og margt fleira í
sögunum yrði þá að skoðast tilhæfulaust, þótt hingað til
hafi verið lagður á það trúnaður. Það virðist ekki geta náð
neinni átt, að gera þessari tilgátu um sumarkomuna hærra
undir höfði en frásögn jafn trúverðugs sagnaritara og Ara
fróða. Það er glöggt, að hann hefir gert sér mikið far um
að fá sem sannastar sagnir um hvað eina. Má t. d. benda
á það, að sumt hefir hann eftir Úlfhéðni lögsögumanni.
Mun þó hafa verið langt á milli þeirra. Úlfhéðinn noið-
lendingur, liklega úr Þingeyjarþingi, samanber grein mína
um Stjörnu-Odda í Skírní 1926, en Ari prestur mun hafa
dvalið allan sinn aldur á Suður- og Vesturlandi. Þeir hafa
því sjaldan hitzt, nema á Alþingi, en þá hefir verið lítill
tími til að ræða um fornar sagnir. En Ari prestur hefir
auðsjáanlega notað hverja stund, er færi gafst. til að auka
sögufróðleik sinn.
Þá er það annað athugavert, að Bilfinger reiknar með
því, að sumar hafi ávallt verið talið koma fimmtudaginn
9.—15. apríl í gamla stíl, svo sem gert var á ofanverðri
12. öld og eftir það. En í rauninni vita menn ekkert, hve-
nær sumar var talið koma á 10. og 11. öld, og þá verða
rök Bilfingers, sem byggð eru á sumarkomunni, algerlega
ónýt. Þar er ýmislegt, sem mælir með því, að sú regla um
sumarkomuna, sem Bilfinger reiknar með, sé tekin hér upp
á 12. öld, annaðhvort eftir fyrirsögn Bjarna prests hins
tölvísa, eins og prófessor Beckman hefir getið til, eða
Stjörnu-Odda, sem mér virðist sennilegra. Ef það hefir
verið með ráði gert, að setja sumarkomuna í það sam-
band við páskana, sem Bilfinger hefir bent á, þá er þess-