Skírnir - 01.01.1930, Síða 76
70
Alþingi árið 1000.
[Skírnir
Kirkjubæ á Síðu. Hans niðjar, sem þar bjuggu, héldu trú
sína. Og er það eina ættin, sem kristin trú hélzt í, að því
er ritað er. En niðjar Ketils ííflska, sem ekki bjuggu í Kirkju-
bæ, urðu þó heiðnir. Dóttur Ketils, Þorgerðar, fékk Váli, sonur
Loðmundar hins gamla, sem var rammheiðinn og tröllauk-
inn, líkt og þeir Hrafnistumenn. Og þarf eigi að spyrja að
trú niðja þeirra. Þó að landnámsmenn væri einhverir kristn-
ir að nafni til og jafnvel vel kristnir, eins og Auður og
Ketill fíflski, þá hirtu þeir hvergi um trú barna sinna eða
niðja, eins og sést á því, að þeir gefa dætur sinar ramm-
heiðnum mönnum, ef þeim þótti gjaforðið annars sér og
ætt sinni samboðið.
Loks eru fáeinir alírskir menn eða skozkir meðal land-
námsmanna (Avangur, Kýlan, Kalman, Bekan, Erpur og ef
til vill fleiri). Þessir menn hafa sjálfsagt verið kristnir, að
minnsta kosti flestir. En þeir voru bæði offáir og of lítils
um koinnir til þess, að þeirra gætti nokkuð í þessu efni.
Og hafa einnig niðjar þeirra flestra orðíð heiðnir, eins og
niðjar annara landsmanna. Eitthvert slangur af írsku og
skozku fólki ánauðugu hefir og verið flutt til landsins, en
þess hefir auðvitað einskis gætt um trúarháttu hins norska
kynþáttar á íslandi.
í rauninni er þessi niðurstaða i samræmi við frásögn
Landnámu um trúarskoðanir Iandnámsmanna. Þar eru nefnd-
ir nokkurir kristnir landnámsmenn, er skírðir hafi verið,
»flestir þeir, er komu vestan um haf . . . Helgi magri ok
Örlygr hinn gamli, Helgi bjóla, Jörundr kristni, Auðr djúp-
úðga, Ketill hinn fíflski ok enn fleiri menn, er komu vest-
an um haf, ok héldu þeir sumir vel kristni til dauðadags«.
Á þessu sést, að sagnaritarinn telur jafnvel suma þá menn,
er kristnir voru, hafa kastað trúnni. Og er slíkt ekki neitt
furðulegt, þegar betur er að gætt. Menn þessir eru flestir
í öndverðu heiönir víkingar, aldir upp í norrænum siðum.
Þeir fá nasasjón af kristinni trú hjá írum og Skotum, en
sú trú rennur þeim litt í merg og bein. Svo koma þeir í
félag við alheiðna menn á íslandi. Trú þeirra, kristna trú-
in, þykir fíflska. Þjóðskipulagið islenzka byggist allt á