Skírnir - 01.01.1930, Síða 80
74
Alþingi árið 1000.
[Skírnir
haldið því fram í riti sínu um kristnitökuna, að sumir sé
þannig til komnir, að ýmsar höfðingjaættir hafi orðið út-
undan árið 965, þegar landinu hafi verið skift í fjórðunga
og goðorðatalan hafi þá verlð takmörkuð, og að aðrir sé
svo til komnir, að rnenn, er kristni hafi tekið fyrir 1000,
hafi þar með orðið að lögum ófærir til. að gegna þing-
mannaskyldum sínum gagnvart goða sínum, með því að
þeir hafi ekki getað innt af hendi hin heiðnu lögskil. Þá
hafi þeir sagzt úr þingi við hina heiðnu goða sína og
horfið undir forráð einhverra annara kristinna manna i
héraðinu, er þeir treystu bezt til þess að veita sér vernd
og aðstoð. Við þessar skýringar er þó ýmislegt athugakert.
Það, að nokkrar ættir hafi orðið útundan 965 og misst
þann þátt í landsstjórninni, er þeir hafi haft til þess tíma,
mun ekki rétt. Lögin um fjórðungaskiftinguna fœkkuðu ekki
goðorðum, heldur fjölguðu þeim. Goðorðatalan hefir verið
ákveðin 36 árið 930. Ef því einhverir hafa orðið útundan
um hluttöku í landsstjórn, þá mun það hafa orðið þegar
930, en ekki 965. Nú er fremur ólíklegt, að nýju goðorðin,
sem víst eru alls ekki upp komin fyrr enn á síðari hluta
10. aldar, stafi af óánægju þeirra höfðingja, er orðið kynni
að hafa útundan 930. En svo er annað, og það er þetta:
Fár eða enginn hefir þurft að verða útundan að lögum
930 eða 965 vegna skipunar þeirrar, sem höfð var á goð-
orðunum. Sameign þeirra mun hafa átt að koma í veg
fyrir það. Að lögum áttu því fáir eða engir að þurfa að
verða útundan. En vera mætti þó, að þetta sameignar-
skipulag hefði ekki verkað, eins og til var ætlazt. Og er
hugsandi, að einhverjum hafi þótt sinn hlutur skarður af
hinum sameigendunum. Verið gat, að hann hefði t. d. eigi
fengið að fara með goðorðið að réttri tiltölu. Þetta hefði
getað leitt til þess, að sá hefði tekið sig út úr með þeim,
er honum vildu fylgja- En sá goði fékk enga hlutdeild í
landsstjórn fyrir þetta. Ef tíl vill er þessi ástæða senni-
legust.
Þá er hin ástæðan, að ný goðorð hafi risið upp vegna trú-
arskifta manna. Það gæti ekki hafa orðið fyrr en á 2 síðustu