Skírnir - 01.01.1930, Page 92
86
Alþingi árið 1000.
[Skírnir
dælir, Hjaltdælir og Höfðamenn og hafa goðorð gengið í
þeim ættum. Um 1000 hafa þeir Eiríkur Hölmgöngu-Starra-
son í Goðdölum, Hjalti Þórðarson á Hofi í Hjaltadal og
Halldór Þórðarson, Höfða-Þórðarsonar, að Hofi á Höfða-
strönd haft goðorðin í Skagafirði. Þeir munu allir hafa
heiðnir verið.
í Vaðlaþingi var langríkastur Guðmundur hinn riki
Eyjólfsson á Möðruvöllum í Eyjafirði. Hann mun hafa ver-
ið rammheiðinn. Eyfirðingar söfnuðu liði og vörnuðu Þang-
brandi yfir Skjálfandafljót. Sennilegt er, að Guðmundur ríki
hafi átt þátt í því. En þó var faðir hans, Eyjólfur Valgerð-
arson, primsigndur. í Svarfaðardal var Valla-Ljótur voldug-
astur maður, og var heiðinn. í Öxnadal bjó þá Víga-
Glúmur, hrakinn úr Eyjafirði og var þá við aldur, en eigi
er þó grunlaust, að hann hafi þar verið fyrir mönnum.
í Þingeyjarþingi var langgöfgastur Þorgeir lögsögu-
maður að Ljósavatni Þorkelsson. Hann var að vísu heið-
inn, en reyndist kristninni þó bjargvættur hin mesta, ágæt-
ur maður og spakur að viti. í Reykjadal voru ættmenn
Áskels goða Eyvindarsonar. Víga-Skúta var þá veginn, en
Þorsteinn sonur Áskels gæti hafa haft þar mannaforráð.
í Kelduhverfi hafði Þórir í Garði Skeggjason goðorð og
var höfðingi mikill. Hefir hann verið heiðinn.
Austfirðingafjórðungur.
í Múlaþingi, er síðar varð, eru höfðingjar taldir í Njálu
um 1010, enda eru surnir þeirra nafnkunnir af öðrum sög-
um. Bjarni Brodd-Helgason að Hofi í Vopnafirði og Þor-
kell Geitisson i Krossavík voru mestir höfðingjar í nyrzta
hlutanum. Svo nefnir Njála Hrafnkel Þórísson, Hrafnkels-
sonar Freysgoða, Hólmstein Spak-Bersason á Bersastöðum,
Sörla Brodd-Helgason á Valþjófsstöðum og Hallbjörn sterka
í Heydölum. Þessir höfðu allir mannaforráð í Múlasýslum,
og bað Brennu-Flosi þá alla liðs eftir Njáls-Brennu. Ekk-
ert er kunnugt um trú þeirra. Sennilega hafa þeir verið
heiðnir, nema Þangbrandur kynnni að hafa kristnað ein-
hverja þeirra sumarið 998 (eða 997). Sunnar í fjórðungnum