Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 100
94
Alþingi árið 1000.
[Skírnir
Sá, er kristnir menn kusu sér lögsögumann, var Hall-
ur af Síðu Þorsteinsson, einn hinn ágætasti maður íslands
á söguöldinni. Og hafa þeir vafalaust ekki getað betri mann
til þessa starfa kosið. En Halli hefir ekki þótt það fýsilegt
ráð, að segjast úr lögum við meira hlut landsmanna. Gætn-
um mönnum, eins og Njáli, Gizuri hvíta, Gesti Oddleifs-
syni o. fl., hlýtur líka að hafa þótt það fullkomið neyðar-
úrræði. Hinsvegar hafa margir hinna heiðnu manna sjálf-
sagt líka fundið það, að í mikið óefni var stefnt. Sumum
þeirra hefir eigi verið mjög sárt um hina heiðnu trú, eins
og Snorri goði, FIosi og Þorgeir lögsögumaður. Og allir
hafa þeir skilið, hver hætta vofði yfir gislunum í Noregi,
og ef til vill, að samgöngubann við Noreg vofði líka yfir.
Má nærri geta, að þeir höfðingjarnir Guðmundur ríki og
Runólfur Úlfsson hafa átt í baráttu við sjálfa sig á þessari
stund. Annarsvegar var hin heiðna trú, sem þeim mun
hafa verið mjög hjartfólgin, og hinsvegar vofði dauði eða
pindingar yfir sonum þeirra í Noregi, ef þeir köstuðu ekki
trú sinni. En svo var þó að sjá sem fastheldnin við hina
fornu siðu myndi verða yfirsterkust í upphafi.
Jafnskjótt sem Hallur hafði gengizt undir lögsögu fyrir
kristna menn, hefir hann hitt að máli vini sína í herbúðum
heiðinna manna, og þá sjálfsagt fyrst og fremst Þorgeir
lögsögumann. Hefir Hallur án efa farið þess á leit við Þor-
geir, að hann reyndi að miðla málum og sætta flokkana.
Þorgeir, og eflaust margir svonefndra heiðinna manna með
honum, hafa verið þess allfúsir. Hafa þeir Hallur líklega þá
þegar búið til og rætt með sér miðlunartillögur þær, er
reynt skyldi að fá menn til að fallast á í báðum flokkum.
Síðan hafa þeir Þorgeir og trúbræður hans einhverir leitað
til við heiðna menn og lýst enn rækilega fyrir þeim, hvað
við lægi, ef eigi tækist sættir, og áður getur. Hefir hann
þá að lokum unnið höfðingja hinna heiðnu manna á sitt
mál, og hafa þeir lofað að sætta sig við miðlunartillögur
þeirra Halls og Þorgeirs. í annan stað hefir Hallur kynnt
flokksmönnum sínum tillögur þessar og fengið þá með
fortölum sínum til þess að sveigja lika til, enda ætti það