Skírnir - 01.01.1930, Side 102
96
Alþingi árið 1000.
[Skirnir
hefir hann gefið Þorgeiri jafnvirði 2 hundraða vaðmála eða
2 kýrverð. Þetta var að vísu hið fasta lögsögumannskaup,
en það fékk Þorgeir af lögréttufé (Grágás, Konungsbók I.,
bls. 209). Úr því að sögumenn höfundar Kristnisögu hafa
orðið að gizka á einhverja upphæð, þá hefir verið hendi
næst að gizka á sömu upphæð, sem hin föstu laun lög-
sögumanns voru. Mörk silfurs hefir þá verið sem næst 4
mörkum vaðmála. Nú er mörk vaðmála 8 aurar, en eyrir
vaðmála er 6 álnir. Mörk vaðmála gerði þá 48 álnir, og
4 merkur þá 192 álnir, eða eitt kýrverð og 72 álnir. En 3
merkur silfurs, sem sumar heimildirnar láta Hall gjalda,
hafa þá numið 576 álnum eða 4 kýrverðum og 86 álnum.
Ari getur ekkert um mannblót af hendi heiðinna manna,
en Kristnisaga fullyrðir, að þeir hafi ákveðið að blóta 2
mönnum úr hverjum fjórðungi landsins. Til andsvara hafi
kristnir menn ákveðið að gefa guði einnig 2 menn úr lands-
fjórðungi. Sennilega er hvorttveggja tómur uppspuni hinna
kristnu höfunda til ófrægðar heiðnum mönnum, en lofs
hinum kristnu. Við þetta skal þó ekki dvalizt.
Nú segir Ari, að Þorgeir lögsögumaður hafi, »er menn
komu í búðir« (á sunnudaginn 23. júní), lagzt niður, breitt
feld sinn á sig, hvílt þann dag allan og nóttina eftir og
mælt ekki orð. Kristnisaga segir hann hafa legið fram
á næsta dag »til jafnlengdar«, eða með öðrum orðum, að
hann hafi legið þannig sólarhring, án þess að bragða vott
eða þurt og án þess að mæla orð frá vörum. Ari lætur
Þorgeir þar á móti rísa upp þegar um morguninn eftir
(mánudaginn 24. júní, Jónsmessudag skírara). Og er ein-
sætt, að Ari segir hér réttar frá. Ef Kristnisaga færi hér
rétt með, þá hefði Þorgeir lögsögumaður átt að hafa legið
kyrr og þögull undir feldi sínum langt fram á mánudaginn
24. júní (Jónsmessu skírara). Hann á að hafa legið þannig
á mánudaginn til þess tíma dags, er hann gekk í búð sína
sunnudaginn. En það getur ekki hafa verið fyrr en síðla
dags, því að tíðindunum, sem á sunnudaginn gerðust, hefir
ekki verið lokið fyrr en seint þann dag. En að lögsögu-
maður, formaður þingsins, hafi legið þögull undir feldi heil-