Skírnir - 01.01.1930, Síða 114
108
Alþingi árið 1117.
[Skírnir
nema Jiokat sé síðan,« þá er sem til þess sé bent, að Haf-
liði hafi verið forkólfuri.nn.
Ari getur ekki um þau rök, er færð hafi verið fyrir
þessari tillögu, en geta má sér til, að lög íslendinga hafi
þá verið orðin svo tjölþætt og viðamikil, að hverjum manni
hafi verið það ærið erfiði að muna þau öll. Ekki er það
ólíklegt, sem til hefir verið getið, að tíundarlögin (frá 1096
eða 1097) hafi verið færð í letur, þar sem þau voru sam-
in af ritlærðum mönnum og voru allmikill lagabálkur, en
hafi svo verið, var þar fordæmi, sem vitna mátti í til eftir-
breytni.
Hvað sem um þetta er, þá var með skrásetningu lag-
anna stigið spor, sem ætla má, að hafi haft miklar afleið-
ingar, þó að erfitt verði að sanna það í einstökum atriðum.
Verðum vér þar eins og oftar í sögulegum efnum að ráða
mest af líkum.
Fyrst er þá að lita á, hvaða breytingu ritun laganna
hefir valdið á aðstöðu lögsögumanns annarsvegar og hins-
vegar á viðhorfi annara manna til lögsögunnar.
Lögsögumannsstaðan var eflaust merkilegasta og veg-
legasta embættið, sem verið hefir á íslandi. Til þess þurfti
afburðamann í mörgum efnum. Lögsögumaðurinn var æðsta
lögvitund þjóðarinnar, lifandi lagasafn hennar, Hann skyldi
segja upp á Alþingi svo gerla alla þáttu laganna, að eng-
inn vissi þar öllu meira. Væri hann í vafa um eitthvert
atriði, mátti hann að vísu taka sér fimm lagamenn til að
ráðgast við, áður en hann segði upp lagaþáttinn, en auð-
vitað varð hann að bera ábyrgð á því, að rétt væri það,
er hann síðan sagði upp. Þess var og lögsögumaður skyld-
ur, að segja öllum þeim, er hann spurðu, hvað lög værí,
bæði á þingi og heima. En lögsögumaðurinn var jafnframt
lifandi almanak þjóðarinnar, og hefir Jjví orðið að vera vel
að sér í tímatalinu. Hann skyldi hvert sumar að þinglausn-
um segja upp misseristal, imbrudagahald og föstuinnganga.
Til uppsögunnar hefir lögsögumaður þurft góða rödd, sem
dæmi Gríms Svertingssonar að Mosfelli sýnir: »Hann tóc
lngsogu efter Þorgeir oc hafþe .ii. sumor, en þá fecc hann