Skírnir - 01.01.1930, Síða 120
114
Alþingi árið 1117.
[Skirnir
að hafa að viða til. Slikt hefði verið hrein og bein móðg-
un og vanþakklæti við höfundinn. Allt öðru máli gegndú
ef þeir hefði beðið hann að skrifa bókina í ákveðnum til-
gangi. Þá voru þeir réttir dómarar um það, hvað í henni
skyldi vera.
íslendingabók »fyr útan áttar t(do oc conunga æve«
sýnir nú, hvað biskuparnir vildu í henni hafa, og af efni
hennar virðist því mega ráða, í hvaða tilgangi þeir vildu
láta rita bókina. Hún er raunar öll, beinlínis og óbeinlínis,
saga íslenzkrar löggjafar og stjórnar 1 veraldlegum og and-
legum efnum, frá því er land byggðist og þangað til 1120.
En hvers vegna vildu biskuparnir fá bók um þetta efni og
annað ekki? Gáum að, hvernig á stóð. Það var nýbúið að
rita meginið af hinum íslenzku lögum á bók. Biskuparnir,
Þorlákur og Ketill, höfðu sjálfir »að ráði Sæmundar og
margra kennimanna annara« látið rita kristinna laga þátt.
Hvað var eðlilegra en að biskupunum hugkvæmdist nú, að
vel ætti við að geyma líka á bók frásögn um það, hvern-
ig þessi lög, veraldleg og andleg, væri til orðin og hvaða
ágætismenn hefði að því unnið, að semja þau og setja?
Slíkt var vel til þess fallið að varðveita með þjóðinni til-
finninguna fyrir helgi þessara laga og þar með virðingu
fyrir þeim og hlýðni við þau. En þá'varð sú saga auðvit-
að að vera á íslenzku eins og lögin sjálf. Og hún átti að
vera til hjá biskupum báðum, eins og lagaskrárnar. í Lög-
réttuþætti stendur: »Þat er ok, at þat skulu lög vera á
landi hér, sem á skrám standa. En ef skrár skilr á, ok skal
þat hafa, er stendr á skrám þeim, er biskupar eigu.« Þar
með er auðskilið, hvers vegna Ari gerði bók sína handa
biskupum báðum.
Þrekvirki Ara verður jafnaðdáanlegt fyrir því, þó að
íslendingabók hans sé til orðin með þeim atvikum, sem nú
var lýst. Hann er meðal söguritara vorra þvílíkur sem Ing-
ólfur meðal landnámsmanna. »Ingólfr var frægastr allra
landnámsmanna, því at hann kom hér at óbyggðu landi
ok byggði fyrstr landit; gerðu þat aðrir landnámsmenn
eftir hans dæmum,« segir Landnáma. Verkefni Ara var